Í fréttinni á bak við tengilinn neðanmáls segir frá því að ætla megi að viðtengingarháttur sé að hverfa úr málinu. Í prófi sem lagt var fyrir ungmenni voru 2 valkostir, annar með viðtengingarhætti en hinn ekki. Börnin völdu flest síðari valkostinn
En einn augljós galli var á könnuninni. Fyrri setningin í báðum tilfellum er ekki með réttri tíð.
Spurt var:
Það er grillveisla hjá Siggu um helgina. Ég vona að Jón verði þar.
Það er grillveisla hjá Siggu um helgina. Ég vona að Jón verður þar.
Hefði ekki veri réttara að spyrja: Það verður grillveisla hjá Siggu um helgina?
Hvers vegna er sögnin höfði í nútíð um atburð sem mun eiga sér stað í framtíð?
Ég skal viðurkenna að stundum spyr ég einmitt á sama hátt, nota nútíð í stað framtíðar, en er þó að reyna að leiðrétta slíkt í tjáningu minni. Mikilvægt er að við ræktum með okkur blæbrigði tungumálsins, gefum tjáningu okkar gaum og æfum okkur í meferð orða í háttum og tíðum.
Ég mun sakna viðtenginarháttarins en ég hef um leið áhyggjur af því að þátíð og framtíð séu einnig í hættu. Allt of margt sem sagt er gerist í núinu, þátíð vantar oft í setningar og framtíðin ekki til lengur til í tjáningu allt of margra.
Hér er tengill á umrædda frétt sem sögð var á Stöð 2 – 29. janúar 2022:
Heldur þykir mér þeim hafi skriplast á skötu almannatenglum Goða og Kjarnafæðis þar sem þeir hafa látið fúkyrðin ganga yfir þjóðina dögum saman í auglýsingum sínum um þorramat.
Myndin var fengin að láni á vefnum.
Blót er skv. orðabók Árnastofnunar: „1.trúarathöfn til heiðurs guðum í heiðnum sið“. Merking 2 er hins vegar útskýrð svo: „ljótt orðbragð, bölv“.
Fólk fagnaði þorra forðum daga og það var hvorki gert með bölvi né ragni heldur lotningu gagnvart goðum og guðum, náttúruöflum og hinu stóra samhengi alls sem er.
Auglýsendur og stórnendur fyrirtækja þurfa að vera næmir fyri menningu og sögu, siðum og venjum og gæta sín á nálægðarmörkum gagnvart fólki. „Aðgát skal höfð í nærveru sálar“, segir í ljóði Einars Benediktssonar, Einræður Starkaðar. Þeir eiga að vita að blót og bölv er tvennt ólíkt.
Svonefnd þorrablót urðu algeng á liðinni öld og endurvakin af veitingahúsi í Reykjavík, sem vinur minn og kollega, séra Halldór heitinn Gröndal, stýrði á sínum tíma, áður en hann lauk guðfræðiprófi og fór að deila út brauði og víni í kirkjunni. Veitingahúsið Naust var vinsælt og þótti eitt það fínasta í landinum um árabil.
Þorrablótin voru endurvakin um land allt. Ég man þegar afi minn fór með sitt trog á þorrablót eða þorragleði í Gúttó á Ísafirði uppúr miðri síðustu öld og naut þar þjóðlegra rétta, hlustaði á harmonikkuspil og fékk sér snúning. Þetta voru góðar og þjóðlegar skemmtanir en lausar við bölv og ragn, blótsyrði og djöfulgang, nema einn og einn gestur færi kannski framúr sjálfum sér og öðrum hófsamari í dálæti á snöfsum og yrði sér til skammar.
Nú hafa fyrrnefnd fyrirtæki orið sér til skammar og gengið fram af mörgum landanum.
Ég sendi báðum fyrirtækjunum tölvupóst og fékk svar um að þeir hafi „verið að leika sér með tungumálið“ en hafi nú ákveðið að eftirleiðis verði sett „bíp“ yfir bölvið, breitt verði yfir ósómann og skömmina. Það er kannski fyrsta skref í átt til iðrunar og eftirsjár sem leiðir til þess að sekir biðji fólk að fyrirgefa sér eins og bréfritarinn bað mig. Honum verður þar að ósk sinni hvað mig varðar.
En mér finnst fyrirtækin bæði tvö og fjölmiðlar einnig – og þar með Ríkisútvarpið – sem er allra landsamanna, þurfi að biðja þjóðina afsökunar á að hafa útvarpað blótsyrðum dögum saman með orðfæri andskotans yfir landsmenn, nú þegar sólin er blessunarlega loksins farin að lyfta sér í hænufetum upp himinhvolfið og við farin að vona fyrir endann á kófinu, ætlandi okkur að þreyja bæði þorrann og góuna.
Gerði 2 myndir eftir gömlum ljósmyndum fyrir atbeina vinar míns, Þorsteins Haraldssonar.
Fyrri myndir er af Laugarvegi 58b, þar sem ungur knattspyrnumaður bjó, Jón Karel Kristbjörnsson (1911-1933) sem lést eftir úrslitaleik móti KR. Hann var kistulagður heima eins og þá tíðkaðist og kistan var svo borin út á viðbyggingu og henni síðan slakað niður í garð. Þaðan var farið í Dókmkirkjuna og síðan jarðsett í Hólavallagarði.
Ég vara þig við því þetta er montfærsla á samfélagsmiðli.
Í dag hjólaði ég úr Miðbæ Reykjavíkur, vestur í Sundlaug Seltjarnarness. Synti þar skriðsund og gerði æfingar, fór í heitan nuddpott og gufubað, sem er reyndar annað en Sauna – Nota Bene!
Kristján hét maður Gíslason (1887-1963) sem var vinur minn á bernskuárunum á Ísafirði. Hann var ljúfmenni og mikill húmoristi og þegar hann ávarpaði mig og aðra bætti hann oft við orðinu „ljúfur“ eða „ljúfurinn“. Hann var einn fárra fullorðinna sem spjallaði við okkur börnin og gaf sig að okkur með sínu ljúfa vimóti og skemmtilegum orðatiltækjum.
Hann þekkti foreldar mína og vissi að faðir minn rak verzlanir í bænum og þegar hann klappaði mér á kollinn, sem hann gerði gjarnan, sagði hann oftast: „Kaupmannsblóð í þér, ljúfurinn!“ Af þessu orðatiltæki var hann jafnan nefndur „Kitti ljúfur“.
Galleri 16, Vitastigur 16, Reykjavik, Iceland 2.-8. December 2021
The painter enjoys painting and had great fun setting up the exhibition. Gaman var að koma þessu loksins í verk að setja upp sýningu.
To enlarge each painting click twice. The Watercolor paintings have been framed with wood by a professional, with acid-free carton (passepartout) and back and Artglass AR 70 TM which give a much clearer view with less light reflection.
Smelltu tvisvar á myndirnar til að stækka. Vatnslitamyndirnar eru rammaðar inn í viðarramma, með sýrufríu kartoni og baki og Artglass AR 70 TM gleri sem er glampafrítt.
White Christmas Hvít jól í Volbu, Noregi Watercolor/Vatnslitir 2014. Size: 52×42 Cm. Sold – Seld.Flying Boat and Fishing Huts in Reykjavik Iceland „Sigla himinfley“ – Bátur og kofar við Ægisíðu. Watercolor/Vatnslitir ca. 2005. Size: 46×39 Cm. Fishing Huts and Boat in Reykjavik Fiskiskúrar og bátur við Ægisíðu Watercolor/Vatnslitir 2012. Size: 52×42 Cm. Sold. Seld.Oddi House at Isafjordur, Iceland Húsið Oddi á Ísafirði og Íshúsfélag Ísfirðinga Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: Sold. Seld.A Street in Pisa, Italy with artistic freedom! Götumynd frá Písa, Ítalíu með skáldaleyfi! Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 52×40. Sold. Seld.
S
Doc Martins Village, Port Isaac, Cornwall Þorpið hans Martins læknis í Cornwall Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 52×40 Cm. Price/Verð ISK: 83.000.Red Boat in Mevagissey, Cornwall Rauður bátur á þurru í höfn í Cornwall Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 52×40 Cm. Sold. Seld.The House of the Rising Sun (?), New Orleans Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 52×40 Cm. Sold. Seld.Lobster Boat in Portloe, Cornwall Humarbátur í Portloe, Cornwall Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 52×40 Cm. Price in USD: Price/Verð ISK: 83.000.Le Noir Bar, The Black Bar, St. Jean de Cóle, France Svarti bar í Frakklandi Watercolor/Vatnslitir 2012. Size: 66×48 Cm. Price in USD: 750. Verð ISK: 93.000.A Castle in Bourdeilles, France Kastali í Frakklandi Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: Sold. Seld.Mt. Esja, Reykjavik, Iceland Esjan og Skarðsheiðin Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 49×39 Cm. Price in USD: 600. Verð ISK: 78.000.Towers and Fish Háhýsi og auur hafsins Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 49×39 Cm. Price in USD: 560. Verð ISK: 73.000.Storage Hut Forðabúrið við prestssetrið Watercolor/Vatnslitir 2014. Size: Sold. Seld.Women Buying Bread in France Konur kaupa ekta franskbrauð Watercolor/Vatnslitir 2012. Size: 48×39 Cm. Price in USD: 560. Verð ISK: 73.000.Öxará Waterfall Thingvellir Iceland Öxarárfoss Þingvöllum Watercolor/Vatnslitir 2012. Size: 52×40 Cm. Price in USD: 560. Verð ISK: 73.000.34 Laufásvegur, Reykjavik Laufásvegur 34, Rvk. Watercolor/Vatnslitir 2012. Size: 53×40 Cm. Price in USD: 700. Verð ISK: 89.000.Grótta Lighthous Seltjarnarnes – Night Sky (Reykjavik) Gróttuviti í kvöldsól Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: Sold. Seld.Flowers in the Field „Allt eins og blómstrið eina“ II Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 49X39 Cm. Price in USD: 560. Verð ISK: 73.000.House of Love at Tjarnargata Reykavik Kærleikshús: Tjarnargötu Rvk. Watercolor/Vatnslitir 2012. Size: Sold. Seld.Grótta Lighthouse Seltjarnarnes (Reykjavík) Gróttuviti Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: Sold. Seld.A House Clad in Leaves Laufiskrýtt hús við Sólvallagötu Rvk. Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 49×40 Cm. Price in USD: 750. Verð ISK: 93.000.Blue Eyes „Bláu augun þín“ Acryl on Canvas, Akrýl á striga ca. 2005. Size: Price in USD: 1.770. Verð ISK: 230.000.Woman of the Ocean Hafdís Oil on Canvas, Olía á striga 1998 Price in USD: 1.770. Verð ISK: 230.000.Wind and Fire Fjúk og funi Acryl on Canvas, Akrýl á striga 2021. Size: Price in USD: 1.770. Verð ISK: 230.000.The Beauty of Autumn Haustið er fagurt Acryl on Canvas, Akrýl á striga ca. 2005 Size: Price in USD: 2.300. Verð ISK: 290.000.Hens of the Settlers Landmámshænur: Ingólflur og Hallveig Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 38×47 Cm. Price in USD: 490 – „Sold“. Verð ISK: 63.000 – Seld.Houses Reflect Across the Street Gamalt hús speglast í nýju við Laugarveg Watercolor/Vatnslitir 2021 Size: 38×29 Cm. Price in USD: 450. Verð ISK: 58.000.A Musical Couple Músíkalskt par Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 39×32 Cm. Sold. Seld.Abstract 2018 Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 29×30 Cm. Price in USD: 290. Verð ISK: 38.000. With Grandma in Traditonal Costumes and Good Mood Með ömmu í þjóðlegum búningi og góðu skapi Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 29×35 Cm. Price in USD: 480 – Sold. Verð ISK: 58.000 – Seld.The House at Stapi, Snæfellsnes, Iceland Stapahús Snæfellsnesi Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 38×29 Cm. Price in USD: 370. Verð ISK: 48.000.A Rooster Hani Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 38×47 Cm. Sold. Seld.A Red Rasaturant by the Harbour Rautt veitingahús við Höfnina Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 48×38 Cm. Price in USD: 750. Verð ISK: 98.000.Aldan – Old House in Isafjordur, Iceland Aldan heitir hús fyrir Vestan Watercolor/Vatnslitir 2021. Size: 48×39 Cm. Price in USD: 490. Verð ISK: 63.000.
Í tilefni af því að ég mun halda sýningu á vatnslitamyndum og málverkum eftir mig í Galleríi 16, Vatnsstíg 16, dagana 2.-8. desember 2021 birti ég hér á þessari síðu tvö dagatöl með myndum og skissum eftir mig. Þú finnur nánari upplýsingar um sýninguna á Facebook-síðu minni.
Tvö ár í röð lánaði ég Neskirkju í Noregi myndir efitr mig án endurgjalds en þar þjónaði ég sem sóknarprestur frá 2015-2019. Söfnuðurinn gaf út dagatöl fyri árin 2019 og 2020 með myndum mínum sem þú getur skoðað með því að opna skjölin fyrir neðan myndina.
English:
Below you can see some of my watercolor works and sketches I allowed Nes church, Norway to use on a Calendar for two years. You can open the Downloads below the cover painting and see my contribution. Hope you enjoy it!
You must be logged in to post a comment.