Nýárskveðja 2023 – Gleðilegt nýtt ár og þakka liðið.
Þankar á tímamótum. Hér er birt þýðing á „negrasálmi“ sem ég þýddi í gær, gamlársdag 2022 og tók svo upp söng minn á honum ásamt hugvekju um mannlíf um áramót og einnig á þeim tímamótum sem hinst verða á jörðu.
Mynd af Veraldarvefnum
Hér fyrir neðan er hljóðskrá með söng mínum og hugvekju
Sálmur sem ég þýddi úr norsku fyrir nokkrum árum og tjáir jólin í lífi fólks á köldum norðurslóðum.
Guð hefur gefið fólkinu bústað og ból og þar þraukar það veturinn og er hörku duglegt eins og Guð sjálfur! Konur og karlar starfa saman og eru jöfn. Lífið er friðsælt og gjöfult en hafa þarf fyrir því.
Neðst er að finna hljóðupptöku þar sem þýðandinn raular sálminn. Takið viljann fyrir verkið, kæru áheyrendur!
Myndin var fengin að láni af vef Rannís: Vísindavika Norðurslóða 2020
Send blessun og frið yfir fjörðinn, fær blessun og ljós yfir lönd. Og blessa þau eilífu orðin um vonir og útrétta hönd. Vernda það smáa þú gafst oss þann daginn oss bar hér að strönd, gef oss að trúa og lát oss ei flækjast í fátæktarbönd.
Vér horfðum oft grátand' í gaupnir en glæst er hin sterka trú, nú karlarnir konunum jafnir, öll hörkudugleg sem þú. Nú bíður vor harðasta hríðin með harðfylgi náum vér heim, þar ljósið lýsir og aðventutíðin er kom frá Betlehem.
Guðs friður í djúpi, á fjalli, svo farnist vel byggð og jörð, Guðs friður í fjárhús' og stalli, yfir fannir og harðan svörð. Þú sérð gegnum mæðu og myrkur, þín miskunn nær út yfir jörð, heimilin, fjörðinn, fjöllin og kirkjur og fólkið - þína hjörð.
Lag og norskur texti: Trygve Hoff 1985. Þýðing: Örn Bárður Jónsson, október 2019.
Ef Drottinn byggir ekki húsið, erfiða smiðirnir til ónýtis. Ef Drottinn verndar eigi borgina, vakir vörðurinn til ónýtis. (Sálmarnir 127.1)
Úr Fjallræðu Jesú: Mattheus 7:
24 Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, sá er líkur hyggnum manni er byggði hús sitt á bjargi. 25 Nú skall á steypiregn, vatnið flæddi, stormar blésu og buldu á því húsi en það féll eigi því það var grundvallað á bjargi.
Sálmaskráin er neðanmáls. Og sérstakar kveðjur eru aftast í skjalinu, aftan við ræðuna og voru fluttar á eftir blessunarorðunum.
Viltu lesa ræðuna og hlusta á hana. Hún er hér fyrir neðan. Smelltu á þríhyrninginn. Ræðuna varð ég að lesa upp aftur að athöfn lokinni þar sem upptakan í kirkjunni mistóks og því heyrist ekki kliðurinn í kirkjunni eða hlátur á vissum stöðum. En njóttu samt!
You must be logged in to post a comment.