Merkilegt hefur verið að upplifa viðbrögð við grein sem ég ritaði nýlega og birti í DV og tel mjög upplýsandi um áhrif islam í heiminum. Greinin ber yfirskriftina Taktu þér stöðu. Þar er því m.a. haldið fram að 3. heimstyrjöldin sé þegar hafin og framrás islam á Vesturlöndum staðreynd.
Vilstu hlusta á höfundinn lesa textann? Smelltu hér:
Fjöldi þeirra sem létu sér líka greinina er margfaldur við þá sem eru á öndverðum meiði en úr síðari hópnum eru ótrúlega margir sem geta ekki hamið sig í samskiptum við annað fólk, kunna hvorki háttvísi né samræðulist.
Ég hef ítrekað vitnað í Jürgen Habermas, einn frægasta heimspeking Evrópu á síðustu öld og þessari. Hann lést í vor er leið. Habermas (18. júní 1929 – 14. mars 2026) var þýskur heimspekingur og þjóðfélagsfræðingur sem fylgdi hinni svoenfndu krítísku hefð og raunhyggju (critical theory og pragmatism).
Hann sagði að Vesturlönd ættu alla sína verlferð og grunn að þakka Biblíunni og nefndi hugtakið réttlæti í túlkun gyðinga í GT og kenningu Krists um kærleikann. Á þessum hugtökum er dómskerfi Vesturlanda byggt, mannréttindi, mannhelgi og allt sem við teljum tilheyra siðuðu samfélagi. Habermas var guðleysingi NB!
Þessi sama hugsun kemur skýrt fram í viðtali sem John Anderson, fv. varaforsætisráðherra Ástralíu tók við Melanie Phillips, blaðakonu sem er gyðingur og skrifar mikið um heimsálin.
Hvað hefur hún að segja um heiminn í dag og Vesturlönd spólandi föst í hjólförum villunnar. Tek það fram að samlíkingin er mín. En hér kemur viðtalið. Ef tengillinn sést ekki, smelltu þá á auða svæðið!
Merkilegur fyrirlestur Helen Andrews um framþróun feminisma og hvernig konur hafa breytt heiminum.
Afar yfirveguð umfjöllun sem bæði konur og karlar verða að heyra!!!
Tekið skal fram að ritstjóri síðunnar valdi ekki myndina sem kemur upp fremst í þessu myndbandi. Fyrirlesarinn er aftur á móti yfirveguð kona og ógrettin sem flytur frábæran fyrirlestur án upphrópana eða æsings.
Leiðtogar gyðinga þurfa hratt að brúa bilið sem hefur myndast milli síonisma og gyðingdóms.
Grein eftir Melanie Phillips (sjá nánar um hana neðanmáls).
Bandarískur og ísraelskur fáni standa á fundarborði á meðan Bob Work, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, undirbýr fund með Dan Harel, framkvæmdastjóra ísraelska varnarmálaráðuneytisins, í Pentagon í Washington D.C., til að ræða mál sem varða báða aðila, 20. október 2014. Mynd: Master Sgt. Adrian Cadiz/Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna.
Hér geturðu hlustað á greinina og það tekur tæpar 13 mínútur.
Hver er staða gyðinga í heiminum? Hvernig getum við sem búum hér í N-Atlantshafinu, skilið fólkið sem telst til Ísraelsríkis og hvað með gyðingana sem búa í díasfórunni eða dreifingunni eins og það heitir á máli fræðanna?
Hvað veldur hatrinu á gyðingum? Hvað er til ráða? Eru þeir jafn voldugir og haldið er fram? Eða eru þeir bara eins og við en hafa þurft að búa við tortryggni og öfund um aldir og árþúsund? Greinina sem hér fylgir þýddi ég með Google Translate og svo eftir eigin smekk á köflum og læt hana hér inn á vefsíðu mína til mótvægist við allan misskilninginn sem býr í mörgum vegna þessa merkilega hóps sem kallaður er gyðingar.
You must be logged in to post a comment.