“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Breytt hýsing

    Síðustu dagana hafa sumir átt erfitt með að finna færslur og einkum hljóðupptökur á heimasíðu minni.

    Ástæðan er sú að ég þurfti að færa allar færslur s.l. 12 ára eða svo úr einni vefþjónustu í aðra.

    Í dag, 18. nóvember, held ég að allar skrár hafi skilað sér á rétta staði og því vona ég að þið, sem oft leitið á síðuna og aðrir sem líta stundum inn, getið notið efnisins bæði til lestur og líka að hlusta á upptökur.

    Verið ávalt velkomin á heimasíðuna!

  • GRUNNGILDI og MENNING VESTURLANDA

    eftir Örn Bárð Jónsson

    Mynd fengin að láni á vef
    LONDON METROPOLITAN
    UNIVERSITY

    Mér hefur verið tíðrætt um gildagrunn Vesturlanda í pistlum og ræðum á liðnum árum. Þá hef ég minnt á að öll grunngildi Vesturlanda koma í raun úr Biblíunni eða eru leidd af gildum þeirrar merku bókar. Juergen Habermas, nýlátinn stjörnuheimspekingur og guðleysingi, lagði áherslu á þetta í kenningum sínum. Dómskerfið, menntakerfið, heilbrigðiskerfið, allt sem viðkemur mannréttindum Vesturlanda er þaðan komið.

    Viltu hlusta á lestur höfundar?

    Talandi um mannréttindi þá þarf líka að tala um mannskyldur.

    Ekkert er einhliða.

    Það er nefnilega ekki hægt fyrir nokkurn fugl,

    hvað þá flugvél, að fljúga á einum væng.

    Ég nefni fjórar mikilvægar tvenndir:

    Kærleikur helst í hendur við réttlæti,

    réttindi við skyldur,

    réttur við meðalhóf,

    mannréttindi við miskunn.

    Fjórar tvenndir sem eru hver fyrir sig tengdar.

    (more…)
  • Kynusli – reynslusaga móður

    Grein úr breska dagblaðinu The Telegraph 5. nóv. 2026

    Þýdd af Google Translate

    Mynd af vefsíðu The Telegraph

    Samkvæmt nýjum lögum hefði ég verið handtekin fyrir að vernda dóttur mína gegn áróðri um kynbreytingar
    Móðir var stimpluð sem slæmt foreldri og ofbeldismaður fyrir að vera ekki „stuðningsrík“ – hegðun sem hún óttast að verði gerð refsiverð

    Viltu hlusta í 7 mínútur +

    (more…)
  • Varnaðarorð Jesú – eiga þau enn við?

    Þankar á viðsjárverðum tímum

    Viltu hlusta í 14 mínútur?

    Les þessa dagana í Lúkasarguðspjalli. Tek fyrir einn eða tvo textabúta sem afmarkast af millifyrirsögnum. Neðanmáls eru sömu textar á mynd úr gríska Nýja testamentinu en á þeirri tungu voru þeir ritaðir upphaflega.

    Nýlega las ég þetta:

    Tákn (Lúkas 21.20-24)

    20 En þegar þér sjáið herfylkingar umkringja Jerúsalem, þá vitið að eyðing hennar er í nánd. 21 Þá flýi þau sem í Júdeu eru til fjalla, þau sem í borginni eru flytjist burt og þau sem eru á ekrum úti fari ekki inn í hana. 22 Því þetta eru refsingardagar, þá er allt það rætist sem ritað er. 23 Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum því að mikil neyð mun þá verða í landinu og reiði yfir þessum lýð. 24 Menn munu falla fyrir sverðseggjum og verða herleiddir til allra þjóða og framandi þjóðir munu fótum troða Jerúsalem þar til tímar heiðingjanna eru liðnir.

    Títus keisari eyðir Jerúsalem. Málverk eftir franska málarann Nicolas Poussin frá 17. öld.
    (more…)
  • Meistari Jón

    Magnað ljóð Einars Benediktssonar um Jón biskup Vídalín, sem var mergjaður prédikari og fræðimaður og lifði á árunum 1666-1720.

    Nýlega var mér færð gjöf sem er dýrmæt. Góð vinkona mína, Guðrún Eggertsdóttir, bókasafnsfræðingur færði mér bók úr safni föður síns, Eggerts Steinþórssonar, læknis er heitir Hvammar og er eftir stórskáldið Einar Bendiktsson. Þar er mergjað ljóð sem ber yfirskriftina Meistari Jón og er um andagift og innblástur Jóns biskups Vídalísn.

    Ljóðið er hér lesið af Erni Bárði Jónssyni, sem segir stuttlega frá bókinni í byrjun.

    Myndir af kápu og forsíðu eru hér neðar og svo texti ljóðsins.

    Upptakan er hér og tekur rúmar 7 mínútur í flutningi.

    Neðanmáls eru slóðir á fróðleik um Jón Vídalín og Einar Benediktsson.

    Einar Benediktsson
    Mynd sótt á síðuna lestu.is
    (more…)
  • Er eitthvað nýtt undir sólinni?

    Hugvekja eftir Örn Bárð Jónsson

    Ég byrja daginn gjarnan á að lesa í Biblíunni og biðja. Í Nýja testamentinu kom ég að þessum texta í 21. kafla Lúkasarguðspjalls þar sem ég er staddur nú og sit við eldhúsborðið í Varsjá í Póllandi.

    Ég les textann bæði á íslensku og á grísku til þess að rifja upp frummálið og auka orðaforðann þeim megin.

    Viltu hlusta í rúmar 8 mínútur?

    Jesús kenndi oft með dæmisögum og með ýktum stíl og yfirdrifnum, en það heitir að tala í hýberbólum. Orðið er gegnsætt og við þekkjum íslenska tökuorðið og lýsingarorðið hýber sem merkir að eitthvað sé yfir mörkum og bóla sem vísar í eitthvað uppblásið. Jesús talaði oft í slíkum stíl til að ögra og ýta undir ímyndunarafl fólks og svo beitti hann gjarnan ríku myndmáli.

    Ekkert er nýtt undir sólinni, en til er eitthvað gamalt sem við þekkjum ekki. Myndin er fengin að láni af Vefnum og hún er merkt höfundi
    en hugvekjan er algerlega mín.

    Heyrum hina þekktu sögu um konuna sem á að vera okkur fyrirmynd um aldir og eilífð:

    (more…)
  • Verk eftir mig á sýningu í Varsjá!

    S.l. sumar var ég í Varsjá í 9 vikur og fór víða um borgina, mest á rafmagnshjóli.

    Ég fann Urban Sketchers hóp í alþjóðlegri hreyfingu, sem er samansettur af fólki sem skissar myndir í borg og bæ, sveitum og á fjöllum – bara allsstaðar.

    Ég hitti Varsjár-hópinn nokkrum sinnum s.l. sumar og eitt sinn vorum við beðin um að láta af hendi eina skissu sem skyldi fara á sýningu síðar. Ég skissaði fólk sem sat á bekk.

    Viltu hlusta? Hljóðupptaka aðeins neðar.

    Hér eru 3 myndir af hópnum sem tekin var s.l. sumar:

    Urban Sketchers Warsaw
    (more…)
  • Um óeirðir og róstur

    Heimur, hamingja, hugmyndafræði, hamfarir

    Laugardaginn 17. október s.l. ræddi ég við dóttur mína sem býr á meginlandi Evrópu í myndsíma. Hún var þá í sambandi við dóttur sína sem er við nám í annarri borg þ.e. í Frakklandi. Ég tengdist þeim báðum. Myndsíminn sýndi æstan múg á götunni fyrir utan heimili dótturdóttur minnar.

    Viltu hlusta? Smelltu!

    Kveikt hafði verið í bálkesti á götunni og æst fólk æddi fram og aftur. Eftir smátíma var komin lögregla á svæðið. Hópur þeirra myndaði röð við næstu gatnamót, þeir fóru sér hægt og hreyfðu sig yfirvegað og rólega, færðust nær mótmælendum. Þá fór að sjást reykur frá táragashylkjum sem fylltu andrúmsloftið á svæðinu og hafði áhrif á fólk. Hægt og bítandi gekk lögreglan fram og leysti hópinn upp. Ég sá ekki annað en að hún hefði farið fram af yfirvegun og fagmennsku.

    (more…)
  • Umferðarlöggan!

    Fréttir af umferð um heimasíðu mína

    Viltu hlusta á höfundinn lesa færsluna? Smelltu hér:

    Fyrst vil ég þakka ykkur öllum sem lagt hafið leið ykkar inn á heimasíðu mína á liðnum árum til að lesa og/eða hlusta á líkræður, greinar og hugvekjur eftir mig. Um árabil hef ég tekið þetta allt upp og birt hljóðskrár ásamt texta.

    (more…)
  • Obama tekinn í sögutíma og leiðréttur

    Grein úr Jerusalem Post eftir
    MICHAEL FREUND

    Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, og eiginkona hans Michelle við minningarathöfn í tilefni af 25 ára afmæli hryðjuverkaárásanna 11. september, í New York.
    (Ljósmynd: Adam Gray/Reuters)

    GREININ

    1. október 2026, kl. 23:47
      Barack Obama virðist hafa uppgötvað nýjan sögulegan glæp: Gyðingaþjóðin stal sínu eigin heimalandi.

    Það er að minnsta kosti sú tilfinning sem situr eftir af nýjustu tilraun hans til að endurskrifa sögu Mið-Austurlanda.

    Í ræðu sem hann flutti í Belfast þann 13. október tókst fyrrverandi forseta Bandaríkjanna að breyta endurkomu Gyðinga til Ísraelslands í sögu um ofsótta evrópska Gyðinga sem leituðu skjóls, tóku land af Palestínumönnum og kölluðu þannig fram skiljanlega kröfu um að fá landið aftur.


    Látum liggja á milli hluta 3.000 ára sögu Gyðinga, tvö musteri í Jerúsalem og aldalanga þrá Gyðinga eftir Síon. Samkvæmt frásögn Obama urðu Gyðingar, einhvern veginn, að utanaðkomandi aðilum í því landi þar sem þjóðarsaga þeirra hófst.

    (more…)