Viðbrögð prests við tvíbirtri grein Illuga Jökulssonar um ljúgandi presta landsins
(Mynd: Aðdáun hirðanna eftir Rubens)
„En það bar til um þessar mundir að boð kom frá“ Illuga Jökulssyni um að sproksetja skyldi alla presta landsins eða „því sem næst“ fyrir að ljúga blákalt, standandi ábúðarmiklir í stólnum með burstaðar tennur og bullandi yfir blásaklausum lýðnum sem hlustar ógagnrýninn í „sparifötun[u]m með hárið greitt“. Í orðunum og á milli línanna liggur fnykur af fordómum. Höfundur virðist ekki þola þetta lið, prestinn fína og fólkið, sem hlustar á hann. Fyrirlitningin skín úr orðum hans. Hvernig á að skilgeina svona skoðanir á heilli stétt manna? Og hvað með afstöðu höfundar til almennings?
4. sunnudag í aðventu 22. des. var messa í Neskikju kl. 11. Kyrrlátur morgunn og nú er farið að birta á ný.
Hugvekju dagsins er hægt að hlusta á hér fyrir neðan:
Á þessari mynd er séra Sigurður Kristjánsson með systurnar Hólmfríði t.v. og Agnesi síðar biskup t.h. sem horfir skelfd á jólasveininn. Örn Bárður er neðst á myndinni 2. f. hægri í gráum fötum og sést í hnakkann á honum milli ljóshærðrar stúlku og hávaxins drengs.
Á þessari mynd sýnist mér sr. Sigurður halda á Hólmfríði. Agnes er væntanlega byrjuð að dansa á gólfinu! Verðandi sóknarprestur Neskirkju er lengst til hægri á myndinni.
Agnes líklega á 3ja ári á efri myndinni og Örn Bárður 7 eða nýorðinn 8 ára.
You must be logged in to post a comment.