Um heimasíðuna

Á heimasíðunni eru birtar þrennskonar færslur

a) prédikanir sem ég flyt sem sóknarprestur í Neskirkju, hvort sem er í minni sóknarkirkju eða á öðrum kirkjulegum vettvangi

b) pistlar þar sem ég viðra persónulegar skoðanir mínar á ýmsum málum,

og

c) líkræður ef ættingjar óska eftir að fá þær birtar.

Segja má að í
a) og c) flokki tali ég sem embættismaður – „amts person“ en í
b) flokki sem einkaaðili eða „privat person“.

Nú kann skipting sem þessi að valda einhverjum heilabrotum en ég áskil mér rétt til þess að fara stundum úr hempunni (enda er hún heit og fyrirferðarmikil) og tjá mig sem einstaklingur endrum og sinnum.

Þannig hef ég t.d. komið fram á fundum um þjóðfélagsmál. Og enda þótt fjölmiðlar hafi síðan sagt frá þátttöku minni og titlað mig séra var ég ekki á staðnum sem prestur og aldrei í hempunni!

Fjölmiðlar eiga stundum í vanda með að aðgreina persónu og embætti. Sá vandi er reyndar furðu algengur og birtist t.d. oft í framkomu æðstu embættismanna framkvæmdavaldsins.

Annállinn er vistaður hjá WordPress á minn kostnað og ég ber ber sjálfur fulla ábyrgð á annálnum sem er ekki á vegum Neskirkju, Þjóðkirkjunnar né nokkurs annars aðila.

2 athugasemdir við “Um heimasíðuna

  1. Kæri vinur. Gleðilegt ár og þökk fyrir allt gamalt og gott. Ég sé í fréttum að þú hefur heldur betur söðlað um. Gangi þér allt í haginn í Noregi. Gefðu mér endilega upp netfang þitt og ég reyni að hafa upp á þér á vinamótum (fésbók).

    Við Lísa biðjum kærlega að heilsa ykkur Fríðu.

    Guðmundur á Strandakursgarði.

Færðu inn athugasemd

Please log in using one of these methods to post your comment:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.