Örn Bárður Jónsson – and "BARD-art"

The beauty of Life – Social Issues – Justice – Truth // Fegurði lífsins – Þjóðfélagið – Réttlæti – Sannleikur

Greinar og hugvekjur / Articles

Minningarorð / Funeral Speeches

Myndlistin mín / My Art ,

„Vona að Vesturlönd opni augun“ Kona sem veit, þekkir og skilur, skrifar skilaboð til okkar allra

Viltu hlulsta í innan við 6 mínútur?

Fawzia Zouari

Fawzia Zouari, rithöfundur frá Túnis, blaðakona og doktorshafi í frönskum- og samanburðarbókmenntum frá Sorbonne-háskóla, birti þessa grein um að henni væri nóg boðið í blaðinu Jeune Afrique. Hún er hugrökk en ég er ekki viss um að allir skilji það. Ég mæli með lestri.

„Það eru dagar þar sem ég sé eftir því að hafa fæðst sem arabi.

Dagar þar sem ég vakna við sjónina af úfnum andlitum tilbúnum til að slátra í nafni Allah, og sofna við hljóð sprenginga sem duna undir upplestri úr Kóraninum.

Dagar þar sem ég horfi á lík liggja á víð og dreif um götur Bagdad eða Beirút af völdum sjálfsmorðsárásarmanna; þar sem eineygðir og handalausir sjeikar eigna sér réttinn til að gefa út trúarúrskurði (fatwa) vegna þess að þeir eru fullir af hatri og blóði eins og bólgin skinn; þar sem ég sé litlar stúlkur, sumar hlaupa til að verja líkama mæðra sinna sem verið er að grýta, og aðrar klæðast brúðarkjól við 9 ára aldur.

Og svo þessir dagar þar sem ég heyri kristnar mæður segja grátandi frá því að börn þeirra, sem hafa snúist til íslam, neiti að snerta þær á þeim forsendum að þær séu óhreinar.

Þegar ég heyri þennan múslimska föður gráta vegna þess að hann skilur ekki hvers vegna sonur hans fór til að láta drepa sig í Sýrlandi. Á meðan sá hinn sami gengur um úthverfi Aleppo með kalasjníkov um öxl, bíðandi eftir því að gæða sér á unglingsstúlku sem komin er úr úthverfum Túnis eða London, sem hefur verið talin trú um að nauðgun sé aðgöngumiði að paradís.

Þessir dagar þar sem ég sé menn á borð við Bill Gates nota peninga sína fyrir afrísk börn og François Pinault fyrir listamenn álfunnar sinnar, á meðan sjeikar Persaflóa sóa auði sínum í spilavítum og vændishúsum, og auðmönnum Maghreb-svæðisins dettur ekki í hug að hugsa til atvinnulausa mannsins sem sveltur, skáldsins sem lifir í felum eða listamannsins sem hefur ekki efni á pensli.

Og allir þessir trúuðu sem halda að þeir hafi fundið upp púðrið, þótt þeir kunni ekki einu sinni að binda bindi, hvað þá getu þeirra til að búa til spjaldtölvu eða bíl. Þeir sömu og telja upp vísindaleg kraftaverk í Kóraninum en skorta minnstu þekkingu til að vinna bug á sjúkdómum.

Þessir hrokafullu prédikarar sem finna Vesturlöndum allt til foráttu, þótt þeir geti ekki verið án farsíma þeirra, lyfja þeirra eða hvers kyns framfara þeirra.

Og öngþveiti þessara „byltinga“ sem fellur myrkvunarsinnunum í skaut eins og þroskaður ávöxtur af tré.

Þessir íslamistar sem tala um lýðræði en trúa ekki einu orði af því, sem hrópa um virðingu fyrir konum, en koma fram við þær sem þræla.

Og þessar einföldu konur sem hylja sig og beygja sig í stað þess að sjá gildruna, sem krefst þess að þær séu aukakonan, sem viðbót, sem er minna en ekki neitt!

Og þessar „nikab-klæddu“ sem, í Evrópu, hafa lúmska ánægju af því að hneyksla hinn almenna Frakka eða Belga, eins og það sé afrek að ganga um eins og kafari í köfunarbúningi!

Eins og það væri leið til að upphefja íslam að kynna það í sínum afturhaldssamasta búningi.

Að lokum, þessir dagar þar sem ég leita líknar en finn hvergi, ekki einu sinni hjá arabísku menntaelítunni sem gerir sig breiða í ljósvakamiðlum en hunsar raunveruleikann á vettvangi, sem predikar um daginn og endar á börum um nóttina, sem talar háfleygt um hugsjónir en selur sig fyrir hnefafylli af dollurum, sem hefur hátt en gagnast engum!

Jæja, þetta var mitt reiðikast í garð minna eigin… Vona að Vesturlönd opni augun…“

Posted on

Greinar og hugvekjur / Articles
Minningarorð / Funeral Sermons
Myndlist / Art
Prédikanir / Sermons
,