Hugvekja eftir Örn Bárð Jónsson
Ég byrja daginn gjarnan á að lesa í Biblíunni og biðja. Í Nýja testamentinu kom ég að þessum texta í 21. kafla Lúkasarguðspjalls þar sem ég er staddur nú og sit við eldhúsborðið í Varsjá í Póllandi.
Ég les textann bæði á íslensku og á grísku til þess að rifja upp frummálið og auka orðaforðann þeim megin.
Viltu hlusta í rúmar 8 mínútur?
Jesús kenndi oft með dæmisögum og með ýktum stíl og yfirdrifnum, en það heitir að tala í hýberbólum. Orðið er gegnsætt og við þekkju íslenska tökuorðið og lýsingarorðið hýber sem merkir að eitthvað sé yfir mörkum og bóla sem vísar í eitthvað uppblásið. Jesús talaði oft í slíkum stíl til að ögra og ýta undir ímyndunarafl fólks og svo beitti hann gjarnan ríku myndmáli.

en hugvekjan er algerlega á mín.
Heyrum hina þekktu sögu um konuna sem á að vera okkur fyrirmynd um aldir og eilífð:
Eyrir ekkjunnar
1 Þá leit Jesús upp og sá auðmenn leggja gjafir sínar í fjárhirsluna. 2 Hann sá og ekkju eina fátæka leggja þar tvo smápeninga. 3 Þá sagði hann: „Ég segi ykkur með sanni, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir. 4 Hinir allir lögðu í sjóðinn af allsnægtum sínum en hún gaf af skorti sínum, alla björg sína.“
Framar í kaflanum kemur fram að Jesús er að ávarpa og svara spurningum æðstu presta og fræðimanna gyðinga, öldunga þeirra og einnig svonefndra saddúkea, sem voru áhrifamiklir á sviði stjórnmála í samtíma Jesú.
Næst er kafli sem vísar til helgidómsins eða musterisins sem Salómon, sonur Davíðs reisti. Davíð stofnaði konungsríki í Ísrael um 1000 árum f.Kr. en sonurinn tók við ríki hans og reisti musterið í Jerúsalem. Rómverjar brutu það niður árið 70 e.Kr. eða 47 árum eftir að Jesús var krossfestur ári 33, en þá hafði hið heilaga musteri gyðinga staðið í tæp 1100 ár og verið miðpunktur tilbeiðslu þeirra og lífs í víðum skilningi. Musterið var reist fyrir 3000 árum talið frá samtíma okkar og fjöldi gyðinga búið þar í landinu helga allar götur síðan.
Ekki steinn yfir steini
5 Einhverjir höfðu orð á að helgidómurinn væri prýddur fögrum steinum og heitgjöfum. Þá sagði Jesús: 6 „Þeir dagar koma að allt sem hér blasir við verður lagt í rúst, ekki steinn yfir steini eftir.“
Gætið yðar
7 En þeir spurðu Jesú: „Meistari, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess að það sé að koma fram?“
8 Hann svaraði: „Varist að láta leiða yður í villu. Margir munu koma í mínu nafni og segja: Það er ég! og: Tíminn er í nánd! Fylgið þeim ekki. 9 En þegar þér spyrjið hernað og upphlaup, þá skelfist ekki. Þetta á undan að fara en endirinn kemur ekki samstundis.“
10 Síðan sagði Jesús við þá: „Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, 11 þá verða landskjálftar miklir og drepsóttir og hungur á ýmsum stöðum en ógnir og tákn mikil á himni.
Minnir þetta okkur eitthvað á samtímann? Leyfum Jesú að halda áfram að tala um ófrið og andstöðu:
Tækifæri til vitnisburðar
12 En á undan öllu þessu munu menn leggja hendur á yður, ofsækja yður, færa yður fyrir samkundur og í fangelsi og draga yður fyrir konunga og landshöfðingja sakir nafns míns. 13 Þetta veitir yður tækifæri til að bera mér vitni. 14 En festið það vel í huga að vera ekki fyrir fram að hugsa um hvernig þér eigið að verjast 15 því ég mun gefa yður orð og visku sem engir mótstöðumenn yðar fá staðið í gegn né hrakið. 16 Jafnvel foreldrar, systkin, frændfólk og vinir munu framselja yður og sumir yðar munu líflátnir. 17 Og allir munu hata yður af því að þér trúið á mig 18 en ekki mun týnast eitt hár á höfði yðar. 19 Verið þrautseigir, með því munuð þér ávinna lífið.
Orðin hér að framan hafa verið fólki hvatning og styrkur í ótryggum heimi, því þannig hefur heimurin ætíð verið. Við teljum okkur lifa betri tíma en aðrir, en er það svo? Við höfum betri undirtök í baráttunni við sjúkdóma og heilsu en við erum verr stödd en fyrri kynslóðir hvað varðar umhverfisspjöll, yfirgang gagnvart náttúrunni og svo erum við að brjálast í bergmálshellum þeim er birtast okkur daglega í samfélagsmiðlum. Og hér er ég einmitt að nýta mér þann heimska heim! Já, heimurinn er alltaf samur við sig og það vissi Jesús. Hann talaði inn í heimskan heim. Orðið samfélagsmiðlar er falskt því það skapar ekki bara samfélag heldur líka sundrungu. Orðið gervigreind er vinsælt og spennandi orð. Samfélagsmiðlar eru hluti af þeim veruleika. En allt það sem kennt er við gervi er í raun fjarri því að vera samfélagslega eflandi. Það sem ætti að geta sameinað, sundrar.
Í kaflanum úr Lúkasarguðspjalli sem ég vitnað til seinast hér að ofan talar Jesús um ofsóknir gegn fylgjendum hans sjálfs. Í dag eru kristnir menn, karlar, konur og börn, líflátin daglega í þúsundatali í Afríku og víðar. Fólkið þar á bæ upplifir þessi orð Jesú eins og fréttaflutning af þeirra eigin píslum og dauða. Svo nærri eru orð Jesú okkar samtíð og hafa ætíð verið nærri í tilvistarglímu fólks s.l. tvöþúsund ár.
Átökin á Gaza vitna um það sama. Þar er tekist á um líf og land og stríð eru ætíð hræðileg og skelfileg fyrir fólkið sem verða fyrir átökum.
Orð Jesú eru eilíf. Þau tala inn í samtíð okkar. Verum á verði.
Stöndum með Kristi og sannleikanum sem hann boðaði. Hann sagði: „„Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig.“ (Jh 14.6)
Jesús er Sannleikurinn með stórum staf og hann var Sannleikurinn í holdi og blóði, í þjáningu sinni og dauða, og er og verður Sannleikurinn eini um alla eilífð í upprisu sinni!
You must be logged in to post a comment.