Örn Bárður Jónsson – and "BARD-art"

The beauty of Life – Social Issues – Justice – Truth // Fegurði lífsins – Þjóðfélagið – Réttlæti – Sannleikur

Greinar og hugvekjur / Articles

Minningarorð / Funeral Speeches

Myndlistin mín / My Art ,

Laugardaginn 17. október s.l. ræddi ég við dóttur mína sem býr á meginlandi Evrópu í myndsíma. Hún var þá í sambandi við dóttur sína sem er við nám í annarri borg þ.e. í Frakklandi. Ég tengdist þeim báðum. Myndsíminn sýndi æstan múg á götunni fyrir utan heimili dótturdóttur minnar.

Viltu hlusta? Smelltu!

Kveikt hafði verið í bálkesti á götunni og æst fólk æddi fram og aftur. Eftir smátíma var komin lögrelga á svæðið. Hópur þeirra myndaði röð við næstu gatnamót, þeir fóru sér hægt og hreyfðu sig yfirvegað og rólega, færðust nær mótmælendum. Þá fór að sjást reykur frá táragashylkjum sem fylltu andrúmsloftið á svæðinu og hafði áhrif á fólk. Hægt og bítandi gekk lögreglan fram og leysti hópinn upp. Ég sá ekki annað en að hún hefði farið farm af yfirvegun og fagmennsku.

Mér fannst ótrúlegt að horfa á þetta í gegnum myndsíma barnabarns míns og skynjaði hvað þessi heimur er í raun lítill og nálægur okkur þótt við búum norður við heimskautsbaug.

En hvað var eiginlega í gangi? Hverju var mótmælt og af hverjum? Hvaða fólk er þetta sem kveikir bál og veldur skemmdum, ræðst inn í verslanir og stelur varningi í trylltu ástandi?

Þetta eru að hluta til námsmenn og fylgifiskar ýmsir, sem krefjast betri kjara handa skólafólki og þar er vísað til skorts á námsgögnum, kennurum og fleiru. Bækur vantar, strokleður og stílvopn. Í sumum greinum vantar kennara. Vissuelga er ástæða til að koma á framfæri kröfum um betri kjör námsmanna í víðum skilningi. En er það leiðin að fara um í einhverri sögulegri vímu frönsku byltingarinnar í hug og hjarta og brjóta allt og bramla?

Og hvað gengur fólki til þegar það merkir sig fána Hamas samtakanna illræmdu sem hafa heilaþvegið hinn Vestræna heim með fölskum kröfum sínum og hatri á gyðingum og Ísraelsríki? Hvernig stendur á því að eitrað tákn brjálaðra islamista er orðið að skrauti fólks á austurvöllum veraldar, bæði fáni og herðasjal? Hvað er þarna á ferðinni annað en innrætt villa vafasamra kenninga og rangs söguskilnings?

Og við búum við skóla þar sem börnum er innrætt allskonar vitleysa, reyndar í bland við margt gott. En hér er ég t.d. að vísa í innrætingu svonefndra „kynjafræðinga“ sem eru sjálfskapaðir áróðursmeistarar hugmyndafræði sem á sér litlar vísindalegar rætur ef nokkrar.

Trúir fólk því í raun að til séu 73 kyn!

Allir vita auðvitað í hjarta sér, bæði almenningur og bestu vísindamenn veraldar, að kynin eru bara tvö. Meira að segja sjálfur Richard Dawkins, sem ég kalla páfa guðleysingja heimsins, segir þau bara vera tvö.

Við fæðumst annaðhvort sem drengir eða stúlkur.

Kynhegðun er svo allt annað. Kynhvöt og fabúlur um kynlíf er allt önnur Ella og slíkt á ekkert erindi við börn sem eru ekki komin á kynþroskaaldur. Auvitað eru til allskonar frávik í sálarlífi fólks þegar kemur að kynhegðun. En er það allt gott og uppbyggjandi? Líður fólki betur sem hefur ekkert taumhald og hegðar sér sem ótemjur? Ég tek það fram að mér ber að elska náungann, fólk með allar þessar meintu 73 ólíku hegðanir -Nota Bene – hegðanir! Ég reyni að elska þau öll, en alls ekki breytnina!

Hvað segir hinn heimsfrægi þróunarlíffræðingur, Richard Dawkins um þetta allt. Ég spurði Claude, gervigreindina og hún svaraði þannig:

Dawkins segir að kynin séu tvö og að „gender“ (félagslegt kyn/kynvitund) sé annað og huglægt fyrirbæri, sem hann hefur lítinn áhuga á að reyna að telja.

• Kyn (sex): Hann heldur því fram að kyn sé tvískipt í eðli sínu (tvíhyggja), skilgreint út frá stærð kynfrumna (litlar, hreyfanlegar sáðfrumur á móti stórum, kyrrstæðum eggfrumum). Hann segir að tilvik þar sem kyneinkenni eru ekki afgerandi (intersex) séu of sjaldgæf til að hnekkja þeirri staðhæfingu að kyn séu tvö.

• „Gender“ (félagslegt kyn/kynvitund): Í þætti Piers Morgan sagði hann að „gender“ gæti verið „huglægt“ fyrir suma. Þegar hann var spurður út í fullyrðingar um að til séu 100 „gender“ svaraði hann því til að hann hefði engan áhuga á slíku. Í grein sinni í *New Statesman* gerði hann grín að því hvernig fjöldi „gender“-flokka hefur margfaldast, og hann lítur á kynvitund sem „skáldað kyn“ fremur en líffræðilegan flokk.

• Víðtækari afstaða: Hann hefur varið J.K. Rowling gegn því sem hann kallar einelti. Hann undirritaði einnig yfirlýsingu þar sem lýst er andstöðu við notkun kynþroskablanda og kynleiðréttingaraðgerða hjá börnum sem skilgreina sig sem trans. Hann hefur viðurkennt að kynami (e. *gender dysphoria*) sé raunverulegt fyrirbæri, en hefur jafnframt sagt að fjölgun þeirra sem skilgreina sig sem trans megi að hluta til rekja til „tísku“.

Hitt sjónarhornið: Gagnrýnendur segja ummæli hans bera vott um transfælni; ásakanir um „ofbeldisfullt orðbragð“ og „transfælni“ komu fram eftir að hann gagnrýndi „harðstjórnarlega“ aðgerðarsinna. Í *New Statesman* hélt Jacqueline Rose fram gagnstæðu sjónarmiði, þess efnis að draga ætti tvíhyggjuna um kyn í efa. Margir fræðimenn benda einnig á að kyn feli í sér ýmis líffræðileg lögmál (litninga, hormóna, líkamsgerð), ekki einungis gerð kynfrumna. Stuðningsmenn Dawkins svara því til að hér sé verið að rugla saman því hvernig kyn einstaklings þróast annars vegar, og hvernig kynin eru skilgreind hins vegar.

Heimildir:

• Why biological sex matters (*New Statesman*)

• Dawkins says JK Rowling is being „bullied“ (*Christian Post*)

• Dawkins accused of transphobia (*The College Fix*)

• Dawkins vs. Rose on the sex binary (*Why Evolution Is True*)

Hér lýkur tilvísun í Dawkins. Höldum þá áfram með þráðinn á undan.

Á bak við helstu tilraunir til að endurhanna veruleikann með fölskum fræðum eru kenningar sem ekki eru alveg nýjar af nálinni, a.m.k. ekki þær elstu sem hér verða nefndar:

-marxismi

-kommúnismi

-sósíalism

-feminismi

-wókismi

Síðustu ismarnir fimm sem taldir eru upp, eru allir kvæmi eða efleggjarar af þeim fyrsta. Í þeim öllum er hugmyndafræði sem vill kollvarpa þeim grunni sem lagður var að Vesturlöndum.

Ég hef ítrekað vitnað í nýlátinn heimspeking og guðleysingja sem sagði Vesturlönd eiga öll sín gæði að þakka þeim grunni sem er að finna í Biblíunni í hugtökunum tveimur, réttlæti og kærleika. Habermas vissi þetta og hélt því á lofti hvernig hugarheimur Gyðinga og framsetning á hugtakinu réttlæti hefði mótað dómskerfi, mannskilning, mannréttindi og fleira og kærleikskenning Krists gefið tóninn fyrir farsælu þjóðfélagi í boðinu um að elska náungann eins og sjálfan sig.

Fyrrnefndar áróðursfylkingar samtímans sem allar eiga rætur í marxisma, fara mikinn og fótgönguliðar þeirra vilja brjóta niður öll gildi, allar reglur og innleiða taumleysi og ímyndað markalaust frelsi, sem mun aðeins leiða fólk í helsi.

Unga kynslóðin er að hluta til heilaþvegin í skólum (NB, þó ekki algjörlega) og teymd eins og hundur í bandi með ól og hálskraga falskrar hugmyndafræði, sem sagan sannar að hefur haft í för með sér eyðingu, fjötrun og frelsissviptingu milljóna manna í meir en heila öld.

Nú sjá fjölmiðlar og fréttastofur vinstrivillunnar um að dæla áróðrinum út, þau sem túlka fréttirnar, velja sjónarhorn og taka sér stöðu með vitfirringunni alla daga.

Vörumst hugmyndafræði og framsetningu allra slíkra villinga!

Posted on

Greinar og hugvekjur / Articles
Minningarorð / Funeral Sermons
Myndlist / Art
Prédikanir / Sermons
,