Á næsta borði sátu menn og gæddu sér á kaffi. Three men drinking coffee and enjoying each others company.Þjónninn tilbúinn við diskinn og bíður nýrra kúnna. The waiter expecting new customers.Horft á sjónvarp um jól. Séra Brown leysir öll mál. Watching TV at Christmas: Father Brown is a clever detective but and an able priest.Fíasól fór með mér í göngutúr og kannaði sinn „félagsmiðil“ Fiasol took a walk with me and checked her own social media by sniffing every square meter and leaving some likes with a leak but made only one comment with something more contextual.
My daughter Hrafnhildur Arnardóttir aka. Shoplifter.
Icelandic: Hún er í mínum huga – KONA HÁRSINS!
Norwegian: Hun er etter min mening – HÅRETS KVINNE!
English: She is in my view – WOMAN OF THE HAIR!
KONA ÁRSINS. Ég tilnefni hana einnig í þann flokk. Hún fékk 300 þúsund gesti á árinu á sýningu sína í Listasafni Finnlands í Helsinki fyrr á árinu, tugi þúsunda á sýningu sína Chromo Sapiens í Feneyjum og sló met allra listamanna sem sýndu þar með 40 þús. færslum á Instagram. Geri aðrir betur! Veit að ég er vanhæfur en er eftir sem áður óforbetranlegur aðdáandi!
Jeg nominerer henne også til ÅRETS KVINNE på Island. Hun fikk 300 tusen besøkere til sin utstilling i Finlands Nasjonal Museum i Helsinki tidligere i året, flere titusen til sin utstilling Chromo Sapiens i Venezia og fikk over 40 tusen kommentarer på Instagram, flere en noen andre av dem som stilte ut på Biennalen. Jeg vet jeg er inhabil men jeg er en uforbederlig tilhenger!
I further nominate her also as WOMAN OF THE YEAR in Iceland. She got over 300 thousand visitors to her show at National Museum of Finland in Helsinki earlier this the year, tens og thousand to her show Chromo Sapiens at the Venice Biennial and over 40 thousand comments on Instagram, more than any other artist at the Biennial. I know I’m incompetent but I’m still an incurable fan!
Sendi fjölskyldu, ættingjum og vinum nær og fjær mínar bestu óskir um gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár. Í haust þýddi ég norskan jólasálm sem tjáir lífsbaráttuna á norðurslóðum. Mér varð hugsað til bernskujólanna á Ísafirði „í faðmi fjalla blárra“ og skemmdegismyrkri. Sálminn söng ég inn í hljóðveri og er það frumraun mín á því sviði. Takið viljann fyrir verkið, kæru vinir! Textinn er hér á frummálinu, norsku og svo íslensku:
Vestfirzkur jólasálmur
Send blessun og frið yfir fjörðinn,
fær blessun og ljós yfir lönd.
Og blessa þau eilífu orðin
um vonir og útrétta hönd.
Vernda það smáa þú gafst oss
þann daginn oss bar hér að strönd,
gef oss að trúa og lát oss ei flækjast í fátæktarbönd.
Söng sálminn „Heims um ból“ með íslenskum ferðafélögum í kapellunni í Obendorf þar sem hann var frumfluttur á aðfangadag árið 1818 fyrir 201 ári en hann ber heitið „Stille Nacht“ á þýsku.
Alparnir sýndu sig í fjarska þar sem þeir rísa upp úr landinu og þennan dag voru þeir í móðu og mystri. Teiknaði þá af svölum kastalans i Salzburg en borgin var þá þegar komin í aðventuskap með jólaskrauti, kórsöng, glöggi og gleði.
Teiknaði nokkrar myndir í afmælisferðinni og litaði með vatnslitum. Ferðin var einkar ánægjuleg, fararstjórn í góðum höndum og ferðafélagar sem best verður á kosið.
English:
Sang the hymn „Silent Night“ together with an Icelandic group in the Oberdorf Chapel where the premiere took place 201 years ago in 1818. We sang it in Icelandic and it was a marvellous and moving experience.
The Alps as seen from Salzburg Castle rising from the plain, majestic and mysterious in mist and fog. Salzburg was already in the advent mood with decorations, choir sang, glüwein and gladness.
Did some sketching during my birthday trip and painted with watercolours. The trip was a true pleasure with a good guide in a fine company of interesting people.
Most of the handwritten texts are in Icelandic and some in Norwegian but I wrote English texts under the sketches.
Watched a very interesting interview done by a German reprorter with Michael Gorbatsjov (1931- ) one of the most important politicians of last century. Broadcasted on NRK1 Norwegian TV.
He is 88 years old and frail but his mind is still sharp and clear.
In October I put the winter tires under my small BMW i3 Electric car and saw this one at the parking. Glad I do not have to buy tires under this one!
When autumn and winter show up it is good to have an effectiv wood stove in the living room and a good cup of strong coffee. Called a good friend in Iceland.
„The Tomato History has origins traced back to the early Aztecs around 700 A.D: therefore it is believed that the tomato is native to the Americas. It was not until around the 16th century that Europeans were introduced to this fruit when the early explorers set sail to discover new lands.“
So the Romans did not eat tomatoes 2000 years ago and I doubt that Martin Luther had them on his table 500 yers ago.
On Friday Nov. 7th I had the privilege to visit The Eidsvoll House where the Norwegian constitution was written in 1814. It is the second oldest in the world which is still in use. It was my friend Mr. Lars Mengshol who invited me to this remarkable place where we met his friend Mrs. Kari Kirkeby Venger, a former teacher of German and French, who guided us around the building. She has a marvelous knowledge about the building and its history.
For me this was of special interest because I had the privilege to write a new constitution for Iceland in 2011 together with 24 other members of the Constitutional Council, elected for the task by the public of Iceland. http://www.stjornlagarad.is/english/
Grein rituð í Kjarnann sunnudaginn 20. okbóber 2019 þegar 7 ár eru liðin frá því að þjóðin sagði hug sinn til nýju stjórnarskrárinnar og lýsti yfir stuðningi við helstu atriði hennar. Þjóðin bíður enn eftir efndum Alþingis.
Í dag, 18. október 2019, þegar 70 ár eru liðin frá fæðingu æskuvinar míns, Hauks Böðvarssonar, minnist ég hans með virðingu og þökk. Hann fórst með skipi sínu, m/b Eiríki Finnssyni og áhöfn í Ísfjaðardjúpi 25. febrúar 1980 í miklu óveðri sem enginn sá fyrir.
Vinátta okkar hófst fyrir fermingaaldur og við brölluðum margt saman fram á unglingsár. Eftir að ég flutti suður hittumst við sjaldnar en gleði ríkti ávalt er fundum okkar bar saman. (meira…)
Margar eru þær Neskirkjurnar á Norðurlöndum og ein er sú sem ég þjóna í Noregi og hef gert frá ársbyrjun 2016. Á kirkjugarðsveggnum er skjöldur til að minnast atburðar í ársbyrjun 1814. Christian Fredrik konungur hafði sent út bréf í febrúar sama ár til allra landshluta og beðið um að kosnir yrðu fulltrúar til stjórnlagaþings.
Mynd ÖBJ
Um allt land fór kosning fram í hverju prestakalli nema í Nordland. Pósturinn barst heimamönnum þar ekki fyrr en í mars og þá var árleg fiskgengd í algleymingi og karlarnir sögðust þurfa að stunda veiðar meðan færi gæfist og hefðu því engan tíma til að sinna svona verkefni, þeir þyrftu að sækja björg í bú. Þessa var minnst í útvarpi nýlega og þá sagt að karlarnir hefðu nú bara getað haldið áfram að fiska en sent konurnar á stjórnlagaþingið. En þá voru aðrir tímar en nú. En hvað um það. Um allt land fór fram kosning í höfuðkirkjum hvers prestakalls og fulltrúarnir valdir.
Mynd ÖBJ
Í Neskirkju er líka mynd af bréfi sem sýnir niðurstöðuna hér í sveit.
Þingfulltrúarnir 112 komu svo saman á Eiðsvelli 10. apríl 1814 og skiluðu tilbúinni stjórnarskrá sem var samþykkt 17. maí sama ár.
Þjóðin hafði valið sína fulltrúa og þeir samið stjórnarskrá í umboði hennar.
Ferillinn var þessi. 12. apríl setti Ríkissamkoman (Riksforsamlingen, þ.e. þingfulltrúarnir 112) á fót stjórnlaganefnd sem skyldi koma með tillögu að stjórnarskrá. Christian Magnus Falsen var valinn til forystu. Fjórum dögum síðar lagði nefndin fram 11 grundvallaratriði til frekari úrvinnslu. Noregur skyldi vera frjálst, óháð og óskiptanlegt ríki. Konungur skyldi hafa framkvæmdavald, þing valið af þjóðinni löggjafar- og ákvörðunarvald, og sjálfstæðir dómstólar dómsvald. Trúfrelsi og prentfrelsi skyldi tryggja en Gyðingar fengu þó ekki að búa í ríkinu. Þeir fengu réttindin síðar. Eftir þetta hóf stjórnlaganefndin vinnu sína við sjálfa stjórnarskrána. 2. maí lagði hún fram tillögu með 115 greinum. Einhugur ríkti um tillöguna og 4.-11. maí samþykkti Ríkissamkoman stjórnarskrána. Þá hófst nokkurra daga deila um hlutverk konungs sem lauk þegar Ríkissamkoman kom prúðbúin saman 17. maí og valdi sér konung hins nýja ríkis. 19. maí tók Christian Frederik við krúnunni og daginn eftir var Ríkissamkoman leyst upp.
Á Íslandi var sett í gang sambærilegt ferli árið 2009 og 25 fulltrúar valdir af þjóðinni 2010 til setu á stjórnlagaþingi. Kosningin var síðan lýst ógild vegna þess að hugsanlega hefðu einhverjir hugsanlega getað séð á milli kjörklefa. Hæstiréttur sem hefur frá upphafi verið skipaður að mestu leyti flokkshollum undirsátum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks lýstu kosninguna ógilda út frá eintómum hýpótesum um að hugsanlega hefði einhverjir hugsanlega getað svindlað. Engin dæmi voru til um neitt misferli og kosningabásarnir sem notaðir voru eru samskonar og tíðkast við kjör í mörgum nágrannalöndum. Reynir Axelsson, stærðfræðingur, jarðaði niðurstöðu Hæstaréttar, með gildum rökum og óhrekjanlegum. En úrskurðurinn stóð. Spyrja má í því samhengi: Hafa ekki allar kosningar á Íslandi verið haldnar í samskonar samhengi hugsanlegra ágalla eða möguleika til misferlis, það er hýpotetiskt ólöglegar? Og eru þá ekki allar íslenskar kosningar ógildar?
Nóg um það.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sem af hugrekki og skilningi á lýðræðinu setti ferlið af stað valdi eina rétta kostinn í stöðunni og skipaði þá 25 einstaklinga sem þjóðin hafði valið til stjórnlagaráðs.
Ráðið samdi stjórnarskrá á 4 mánuðum með 114 greinum og skilaði til Alþingis. Aldrei fyrr í mannkynssögunni hefur stjórnarskrá verið samin í eins mikilli samvinnu við almenning og í þessu tilfelli. Fræðimenn við helstu háskóla heims þar sem stjórnarskrár eru sérstaklega til umfjöllunar og rannsóknar hafa lokið upp lofi um þetta verk.
En á Íslandi eru til valdablokkir sem vilja ekki réttlæti handa fólkinu í landinu. Þær braska með valdið til að tryggja sérhagsmuni einstaklinga og hópa sem þeim eru þóknanlegir. Eða kannski er þessu einmitt öfugt farið: Sérhagsmunahóparnir hafa krækt sér í veð í fulltrúum ákveðinna flokka og stýra þeim svo sem strengjabrúður væru?
Framkoma Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, Vinstri grænna og Samfylkingar hefur verið fyrir neðan allar hellur í þessu máli en síðast nefndi flokkurinn klofnaði og stóð ekki í lappirnar á lokametrunum. Stjórn Jóhönnu féll og síðan hafa spillingaröflin ráðið ríkjum á Íslandi.
Og nú talar forsætisráðherra um Alþingi sem stjórnarskrárgjafann og nefnir samræðugátt um að möndla með það sem er þjóðinni heilagt. Ég er gáttaður á að forsætisráðherra hafi ekki dýpri skilning á mikilvægi þess að þjóðin setji sér stjórnarskrá.
Stjórnarskrá verður aldrei, ég endurtek, aldrei, skrifuð af pólitískum fulltrúum, sem berjast fyrir sérhagsmunum tiltekinna hópa. Hún verður aðeins samin af stjórnlagaþingi/ráði sem vinnur í umboði þjóðar sinnar sem hefur valið fulltrúana án tengsla þeirra við pólitíska flokka eða sérhagsmuni.
Komið ykkur nú að verki, alþingismenn, hysjið upp um ykkur buxurnar og samþykkið tillöguna sem mikill meirihluti þjóðarinnar hefur lýst sig samþykka í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þar með getum við sagt að réttilega hafi verið að verki staðið.
I Hamar Arbeiderblad birtist viðtal við mig 16. mai 2019, daginn fyrir þjóðhátíðardag Norðmanna eða stjórnlagadaginn, 17. maí. Þeirra grunnlovs-menn eru allir komnir undir græna torfu og þess vegna er fyrirsögnin svo fyndin sem raun ber vitni.
You must be logged in to post a comment.