
Ég er með nákvæma klukku í símanum mínum og treysti henni algjörlega og sé að fréttir RÚV eru hættar að hefjast á slaginu t.d. í hádegi kl. 12:20. Sama gildir kl. 18 og á öðrum stundum.
Auglýsingar eru látnar leka inn í fréttatímann og oft byrja fréttir ekki fyrr en 45 sekúndum eða 1 mínútu eftir réttan tíma.
Frá því ég var barn sló útvarpsklukkan og svo hófust fréttir á réttu andartaki, návæmlega á slaginu.
Ber þetta vott um græðgi RÚV eða er gervihnattarklukkan í símanum mínum ekki rétt?
—
Sæl, Örn og takk fyrir póstinn.
Ég get fullvissað þig um að útvarpsfréttir eru settar í gang á slaginu 12.20 og svo á heila tímanum þess utan, samkvæmt okkar klukku. Get ekki sagt til um hvar hún hittir á klukkuna hjá þér.
Bestu kv.
Þorgils
Þorgils Jónsson
Fréttamaður – RÚV
Þá svaraði ég:
Þakka þér svarið, Þorgils.
Undarelgt að úrið mitt, símninn og tölvarn, sem taka tímann frá gervitunglum, skuli ekki hafa sama tíma og RÚV.
Ég spurði Netið:
Where does the iPhone get its time from?
Cellular Networks: Timekeeping on the Go
Whenever your phone connects to a cell tower, it receives time information broadcasted by the tower. Cell towers are synchronized using GPS satellites and local atomic clocks, so the time information they provide is extremely accurate. (letrubr mín)Mbk,
Örn B
Svo mörg voru þau orð. Ég leitaði á vefnum á time.is og þar kemur fram að klukkan mín er of fljót sem nemur ca. 90 sekúndum!
Og hvernig stendur svo á því? Það þarf ég að kanna. Búinn að skrifa Apple og bíð svars!








You must be logged in to post a comment.