Örn Bárður Jónsson
Af illa lærðum og lygnum
Viðbrögð prests við tvíbirtri grein Illuga Jökulssonar um ljúgandi presta landsins
(Mynd: Aðdáun hirðanna eftir Rubens)
„En það bar til um þessar mundir að boð kom frá“ Illuga Jökulssyni um að sproksetja skyldi alla presta landsins eða „því sem næst“ fyrir að ljúga blákalt, standandi ábúðarmiklir í stólnum með burstaðar tennur og bullandi yfir blásaklausum lýðnum sem hlustar ógagnrýninn í „sparifötun[u]m með hárið greitt“. Í orðunum og á milli línanna liggur fnykur af fordómum. Höfundur virðist ekki þola þetta lið, prestinn fína og fólkið, sem hlustar á hann. Fyrirlitningin skín úr orðum hans. Hvernig á að skilgeina svona skoðanir á heilli stétt manna? Og hvað með afstöðu höfundar til almennings?
(meira…)
You must be logged in to post a comment.