My watercolor sketches for the June calendar supporting repair of the church organ. This is the second year the Nes parish, Church of Norway (Lutheran), published a calendar with my works.
Clockwise from top: Sun and sand, Alicante, Spain Jonas drilling down fundament for the parasol The average family enjoying life at the beach
I was on my bike and the evening was cold. I stopped for a while and drew the fishing hut and the lighthouse in the evening sun.The Seltjarnarnes Church looking from East to West.
Veldu mynd og smelltu á hana og þá stækkar hún.Choose a sketch and it will expand.1.Þúfan í Reykjavík, The Knoll in Reykjavik 2. Á rökstólum. Discussing Covid and other important things.3. A boat at Reykjavik Harbor. 4. Seltjarnarneskirkja á köldum vormorgni. The Church at Seltjarnarnes (Capital Area) on a cold spring morning!
Þessi þjónuðu við guðsþjónustuna þar sem saman komu um 50 manns sem er hámark þar til í næstu viku en þá mega 200 koma saman! Séra Magnús Björn Björnsson þjónar fyrir altari. Séra Örn Bárður Jónsson, fyrrverandi sóknarprestur predikar. Lesarar: Kristín Kristjánsdóttir, djákni í Fella- og Hólakirkju, Ragnheiður Sverrisdóttir, djákni Biskupsstofu og Þórey Dögg Jónsdóttir, djákni, framkvæmdastjóri Eldriborgararáðs Reykjavíkurprófastsdæma. Organisti og stjórnandi: Örn Magnússon. Kór Breiðholtskirkju syngur.
Hljóðupptöku finnur þú á vef RUV, Rás 1, 21. maí 2020 kl. 11 en getur lesið ræðuna hér fyrir neðan. Hún er auðvitað áhrifameiri með hljóði!
Komið þið sæl og blessuð.
Ég var spurður um það á þorranum, að mig minnir, hvort ég væri tilbúinn að prédika við þessa guðsþjónustu. Ég var hikandi í fyrstu, enda kominn á úreldingarlista eins og gamall ryðgaður togari, kominn á eftirlaun, en lét þó til leiðast. Ég hef varla prédikað á íslensku í 5 ár enda starfaði ég og prédikaði yfir norskum söfnuðum, skírði, fermdi, gifti og jarðsöng Norðmenn og varð að tala bæði nýnorsku og svonefnd bókmál. Og nú er ég hér í dag sem fyrrverandi sóknarprestur, einskonar ellismellur, en það orð er notað um gamalt lag sem kannski var einu sinni vinsælt.
Í gær, 5. maí, horfði ég á heimildamynd á RÚV um Íraksstríðið 2003 og hvernig það var réttlætt og undirbúið með lygum og falsfréttum af hálfu Bandaríkjastjórnar.
Mér varð hugsað til útifunda í Reykjavík, þar sem mörg okkar, sem sáum í gegnum lygavefinn, stóðum og mótmæltum því að íslenskir ráðamenn hefðu lagt innrásinn lið. Fólk kom einnig saman á Ísafirði, Akureyri og í Snæfellsbæ, til að mótmæla.
Ísland hafði lýst yfir stríði á hendur annarri þjóð með því að styðja hernað stórveldis gegn mun minna ríki þar sem allur málatilbúnaður var byggður á blekkingum og lygum.
Við bjuggum hvorki við lýðræði né þingræði heldur bjálfræði á þeim tímum. Bjálfar og undirlægjur voru við stjórnvölinn í landinu sem hirtu ekki einu sinni um að ráðfæra sig við útanríkismálanefnd Alþingis.
Á einum mótmælafundanna sem haldinn var á Lækjartorgi, einn kaldan laugardag, flutti ég ávarp. Að fundi loknum sendi ég textann til vefútgáfu Morgunblaðsins, mbl.is. Textinn fékkst birtur þar en um það bil tveimur tímum eftir birtingu var hann horfinn af vefnum. Ég komst að því síðar að ritsjórinn hafði hringt í fréttamann á vaktinni og spurt: „Hvað er þessi texti hans Arnar Bárðar að gera á vefnum?“ Starfsmaðurinn vissi hvað til síns friðar heyrði og tók færsluna út. Svona var nú sannleiksástin á þeim bæ á þeim tíma.
Stríðið hafði 10 árum síðar (2013) kostað Bandaríkjamenn 1,7 billjónir dollara og talið að heildarútgöld gætu numið 6 billjónum þegar öll kurl væru komin til grafar, 6 milljónum milljóna.
Við vorum með í þessu. Saga Íslands er breytt og landið á nú sína stríðsherra.
Lighthouse near the Reykjavik harbour, the second from my home showing things that say so much though silent.
I just made my own sketchbook, that is to say, I bound the book myself and used a 200 gsm watercolour Serene paper. What a difference to sketch on a thicker paper!
Sástu íslensku þáttaröðina Ófærð í Sjónvarpinu? Ég sá hana í Noregi og þar ber hún heitið Innesperret eða Innilokuð. Mér kemur hún í hug þegar ég heyri fólk tala um innilokun vegna veirunnar skæðu.
Já, við erum innilokuð. Það er ófærð og við neyðumst til að finna nýjar leiðir til þess að komast af í daglegu lífi og fábreytileika hversdagsins. Í leit okkar og fálmi breytist hið einhæfa og nýjar víddir kunna að opnast.
Ég hitti nokkra karla yfir kaffisopa og við spjölluðum. Einn hafði fundið mikla gleði í matseld, annar í bóklestri, einn í bíltúrum, annar í æfingum fyrir líkama og sál.
Innilokuð. Erum við innilokuð? (Smelltu á síðu 2 hér fyrir neðan til að sjá framhaldið).
Heyrst hefur að Rio Tinto hyggist loka álverinu í Straumsvík.
Ekki græt ég álver sem hættir stafsemi.
En hvað á þá að gera við þetta stóra ver, allar byggingarnar, sem eru gríðarlegt ílát?
Ég sé fyrir mér risavaxið fyrirtæki sem sér okkur fyrir grænmeti árið um kring. Hugsið ykkur þessi stóru hús sem breyta mætti í gróðurhús með því að skipta út bárujárni og setja í staðinn gler eða plast.
Ekki vantar raforkuna til að knýja grænverið og hugsið ykkur þegar túristarnir aka inn í höfuðborgina úr Keflavík og sjá græniðjuna gróa við veginn, knúna raforku úr fallvötnum og sólarorku.
Við þekkjum það vel að tómatarnir sem framleiddir eru hér á landi með þessari orku og hreinu vatni eru bragðmeiri en nokkrir aðrir sem vaxa í útlöndum. Sama má segja um kálið, salatið og allt. Ég fæ vatn í munninn! Ummmmm!
Hættum að selja orkuna á útsölu til auðhringja sem reka eiturspúandi stóriðju og snúum okkur að uppbyggingu innlendrar græniðju, iðju sem er græn í gegn.
Nú fer tískuorð sem eldur í sinu í munni íslenskra sérfræðinga innan ólíkra fræðigreina. Orðið er „sviðsmynd“.
Ég heyrði það fyrst notað á dögunum í nýju samhengi af eldfjallafræðingi í viðtali í fjölmiðli. Hann sá fyrir sér aðstæður í framtíðinni og kallaði þær sviðsmynd eða sviðsmyndir ef miklar breytingar voru í spákortum.
Líklega er um að ræða þýðingu á enska orðasambandinu „worst-case scenario“ þegar búist er við verstu hugsanlegu aðstæðum. Orðið í umræddri merkingu er því mest notað í spámannatali þegar reynt er að ráða í framtíðina. Ætli við megum ekki kalla menn, sem hvað mest spá í sviðsmyndir af þessu tagi, áhættustjórnendur. Flott orð það sem kemst varla fyrir á venjulegu nafnspjaldi í greiðslukortastærð.
Í hádegisfréttum RÚV, 25. mars, voru fluttar miklar sviðafréttir úr Seðlabankanum. Þar töluðu sviðatungur fjálglega um hugsanlegar aðstæður í framtíðinni, sviðsmyndir. Engar aðstæður, bara sviðsmyndir.
Stjórnmálamenn hafa líka tekið orðið upp í sig á liðnum vikum og nú tala þeir hver um annan þveran eins og sviðakjammar í stuði á sjálfum þorranum.
Hingað til hefur dugað að tala um aðstæður eða verstu hugsanlegu aðstæður og það skilja allir og hafa skilið um aldir, jafnvel algjörir sviðakjammar.
Sviðsmynd vísar, eins og orðið ber með sér, til leikhúss þar sem leikmyndahönnuðir starfa. Þeir búa til sviðsmyndir.
„Veröldin öll er leikhús“, sagði enska stórskáldið Spjararskekill. Við erum víst öll í hlutverkum á ýmsum sviðum í henni veröld þar sem við tjáum okkur um margt og sumir nú á þessum síðustu og verstu tímum eins og sviðakjammar.
You must be logged in to post a comment.