
H 56 x B 38

H 38 x B 56
Artist Quality vantnlitir á Saunders Waterford 300 gsm pappír.
Myndirnar sjást hér í sýndarveruleika sem gerir þær stærri en þær eru í raun.
Raunstærðir eru gefnar upp í sentimetrum og má líkja við
opnu í íslensku dagblaði.
Writer – Painter – Theologian
Rithöfundur – Málari – Guðfræðingur
“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

H 56 x B 38

H 38 x B 56
Artist Quality vantnlitir á Saunders Waterford 300 gsm pappír.
Myndirnar sjást hér í sýndarveruleika sem gerir þær stærri en þær eru í raun.
Raunstærðir eru gefnar upp í sentimetrum og má líkja við
opnu í íslensku dagblaði.
Með hækkandi sól og stöðugum sýningum himinhvolfsins á litbrigðum lífsins urðu þessar til.
Árið 2025 verður gott ár enda er það í réttri hönd:
Í hendi Guðs er hver ein tíð,
í hendi Guðs er allt vort stríð,
hið minnsta happ, hið mesta fár,
hið mikla djúp, hið litla tár.
Sb 74 – 6. vers eftir hinn magnaða Sr. Matthías Jochumsson




Myndirnar eru allar til sölu en óinnrammaðar.
Stærð mynda vísar til myndflatar án kartons.
Þær eru hér birtar í sýndarramma.
Sendið fyrirspurn á netfangið:
ornbard@gmail.com
Grein eftir Örn Bárð Jónsson sem birtist í Morgunblaðinu þriðjudaginn 7. janúar 2025 og er hér lesin inn af höfundi og tekur sjö og hálfa mínútu í hlustun.

Þankar um hollustufæði og heilbrigt líf
8 kíló á 8 vikum!
Grein eftir Örn Bárð Jónsson
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á upplestur -10 mín:
(meira…)Fréttir af umferð
Yfir hundrað og fjórtánþúsund hafa hlustað!
Ég hef haldið úti vefsíðu árum saman og hún hefur smátt og smátt aukið afla sinn.
Smelltu á spilarann. Hlustun tekur rúmar 4 mínútur.
Hvert árið hefur afli farið fram úr tölum fyrra árs og hér koma rauntölur fyrir árið 2024 sem senn er á enda. Forritið WordPress heldur utan um bókhaldið svo þetta eru ekki neinar ímyndanir þess er rekur síðuna.

Flettingar í desember voru 2.936 en niðurhal á upptökum töldu 7.208.
Fjöldi heimsókna vikuna 23. des. til 29. des. var 890 og hlustanir 6.520 en á þessu tímabili flutti ég aðeins 2 prédikanir þannig að fólk leitar í eldra efni til að hlusta.
Og kl. 11:14 á gamlársdag hafa 43 hlustað á upptökur af líkræðum, prédikunum, pistlum eða greinum og hálfur dagurinn enn eftir!
Heimsóknir á síðuna mína allt árið 2024 þ.e. til moguns 31. desember voru 44.903.
En svo koma hljóðupptökurnar eða m4a-skrárnar og þeim hefur verið hlaðið niður í 114.350 skipti.
Þessi tala segir mér fjölda hlustenda eða öllu heldur hlustana því sumir hlusta aftur og aftur.

Ég frumsem allar ræður sem ég flyt og svo rita ég greinar og hugvekjur og ef ég rita grein í prent- eða vefmiðil þá les ég hana upp svo þau sem vilja geti hlustað.
Þetta er miðill sem nær til margra og hlustun hefur tekið rækilega fram úr lestri.
Og það er með þessa miðlun að hún virkar eins og fræin sem Jesús talaði um:
Líkt mustarðskorni
Aðra dæmisögu sagði Jesús þeim: „Líkt er himnaríki mustarðskorni sem maður tók og sáði í akur sinn. Smæst er það allra sáðkorna en nær það vex er það öllum jurtum meira, það verður tré, og fuglar himins koma og hreiðra sig í greinum þess.“ (Matteus 13.31-32)


Varð að aflýsa 5 af 7 guðsþjónustum vegn ófærðar á fjallvegum.
Örn Bárður Jónsson
Fyrirhugaðar voru guðsþjónustur í
Bíldudalskirkju, Tálknafjarðarkirkju og Patreksfjarðarkirkju kl. 18 kl. 21 kl. 23.
(Að auki var helgistund á hjúkrunarheimilinu HVest Patreksfirði kl. 13 en þar var aðeins flutt stutt hugvekja)
Aflýsa varð öllum guðsþjónustum nema á Patreksfirði.
Kórfólk mætti í kirkjuna á Bíldudal og söng og las jólaboðskapinn í prestsleysinu en ég hef ekki fengið frengir frá Talknafirði hvort helgistund var haldin þar af heimafólki.
En hér er hægt að lesa og hlusta á prédikunina:
(meira…)Kæra fjölskylda, vinir og samferðafólk. Sendi ykkur kveðju mína á jólum og um áramót og óska ykkur velfarnaðar. Er við þjónustu í Vesturbyggð en átta kirkjur tilheyra prestakallinu. Fyrirhugaðar eru fjórar athafnir á aðfangadag og þrjár í sveitakirkjum á jóladag, en færð og veður ráða öllu hér á þessum árstíma.
Kveðja mín er ofin inn í meðfylgjandi sálm sem ég þýddi og umorti úr norsku og lýsir lífsbaráttu á norðurslóðum og á því vel við hér á Vestfjörðum og um allt land ef svo ber undir.

Jólasálmur á Norðurslóðum
–
Send blessun og frið yfir fjörðinn,
fær blessun og ljós yfir lönd.
Og blessa þau eilífu orðin,
um vonir og útrétta hönd.
Vernda það góða þú gafst oss,
þann daginn oss bar hér að strönd,
gef oss að trúa og forð´oss að flækjast
í fátæktarbönd.
–
Vér horfðum oft grátand’ í gaupnir,
en glæst er hin sterka trú,
nú karlarnir konunum jafnir,
í kærleiksverkum sem þú.
Nú bíður vor harðasta hríðin,
með harðfylgi náum vér heim,
þar ljósið lýsir og aðventutíðin,
með líkn frá Betlehem.
–
Guðs friður í djúpi, á fjalli,
svo farnist vel byggð og jörð,
Guðs friður í fjárhús’ og stalli,
yfir fannir og harðan svörð.
Þú sérð gegnum mæðu og myrkur,
þín miskunn nær út yfir jörð,
heimilin, fjörðinn, fjöllin og kirkjur
og fólkið – þína hjörð.
Lag og norskur texti: Trygve Hoff 1985.
Þýðing: Örn Bárður Jónsson, október 2019
Píanóleikinn fann ég á Netinu en hljóðfæraleikarans var ekki getið þar. Guð blessi fingrafiman flytjanda.



Guðspjall lesið fyrr í athöfninni:
13 Þá færðu menn börn til Jesú að hann legði hendur yfir þau og bæði fyrir þeim en lærisveinar hans átöldu þá. 14 En Jesús sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er himnaríki.“
15 Og hann lagði hendur yfir þau og fór þaðan. (Matt 19. kafli)
Hér er upptakan með ræðu prestsins:
Og hér er streymið sem unnt er að horfa á alla athöfnina:
https://beint.is/streymi/bergurfelixson
(meira…)Grein sem birtist í dag á visir.is.
Hljóðupptaka hér fyrir neðan sem tekur 4 mínútur.

Eru konur betri en karlar?
3K – þrjár konur – leiða næstu stjórn,
Kristrún, Þorgerður Katrín og Inga.
Þetta sagði ég, daginn fyrir kosningarnar, föstudaginn 29. nóvember –
og ég held að sú stjórn gæti orðið sterk –
græn og góð,
heilbrigð, holl
og réttlát.
(meira…)
You must be logged in to post a comment.