Afi og elsta barnabarnið, Máni Lucjan f. 2004. Afi í heimsókn í Róm í september 2024, foreldrar Mána: Hrafnhildur Arnardóttir aka Shoplifter og Michal JurewiczF.v. Úrsula dóttir Hrafnhildar og Mihá f. 2007, afi Örn, Katrín f. 2009, Ástrós Ynja f. 2003 og Arnfríður f. 2006, dætur Svölu Bjarkar og Þorsteins Gunnars Ólafssonar, sem búa í Lúxemborg. Myndin tekin í Höfuðstöðinni í Reykjavík í ágúst 2023Yngsta afastelpan, Miriam Anna f. 2024 býr í Varsjá, foreldrar Örn B jr. og Kasia. Myndin tekin vorið 2025
Hofskirkja undir lok vetrarPassíusálmalestur í Hofskirkju, föstudaginn langaStaldrað við á leið út á Tanga – Ásbrandsstaðir í HofsárdalStepen J. Yates við orgelið á kirkjuloftinu í Þórshafnarkirkju á 2. í páskumTekin gröf að Hofi – frost í jörðuSkissuæfing af ímynduðum hjólreiðamönnumPrestssetrið að Hofi teiknað í gegnum sáluhliðið og klerkur skáldaður inn í myndina í hempu og með pípuhatt!
Erfitt reynist mér að þegja undir rándýrum áróðri kvótaþega í fjölmiðlum þessa dagana með nytsama sakleysingja, sem aðalleikara, auðsveipa undirmenn.
Að nota fjármuni á þann hátt sem þið gerið um þessar mundir, er í raun að beita „auðbeldi“. Ég sendi þetta nýyrði hér með til Árnastofnunar.
Við, almenningur þessa lands, og ekki síður þau sem þið hafið tekið lífsviðurværið frá í mörgum bæjum og þorpum landsins, búum ekki yfir auði til að svara ykkur. Við höfum ekkert nema orð og atkvæði okkar, auk vonar og trúar, en við vitum um leið að orð eru máttug og að trúin flytur fjöll.
Guggan gula
Leik ykkar má líkja við að senda skriðdrekadeild til að skjóta á hóp auðnutittlinga, en orðið auðna merkir m.a. það þegar jörðin hristir af sér snjó og vetur. Það auðnar í náttúrunni um þessar mundir.
Við setjum von okkar á sumar og réttlæti. Við biðjum um réttlæti í þessu landi.
Auður er valtastur vina, segir í gömlu máltæki. Eins og allt vald spillir, þá gjörspillir alvald. Auður spillir líka og mikill auður fíflar frekt.
Komið er að skuldadögum
Að greiða fyrir greiðann. Þið eruð í stórri þakkarskuld við þjóð ykkar og fenguð grunninn að auði ykkar á silfurfati og á vafasömum forsendum. Illa upplýstir þingmenn veittu ykkur auðveldið, sem þið hafið í höndum og eflt með braski í skjóli spilltra stjórnmálamanna, sem þið hafið keypt í sumum tilfellum, til þess að berjast fyrir ykkar málstað og halda á lofti ósanngjörnum kröfum um eignarhald á því sem þjóðin á.
Kerfið sem stjórnvöld hafa leyft að þróast í sjávarútvegi er gjörspillt og fársjúkt og ennfremur fjársjúkt. Ég veit hvað SFS merkir en freistandi er að leysa nafnið upp í SamtökFjárSjúkra. Auður sýkir, auður spillir, auður getur gengisfellt bæði siðvit og sóma.
„Ekki þurfa heilbrigðir læknis við heldur þeir sem sjúkir eru. Ég er ekki kominn til að kalla réttláta heldur syndara“ sagði Kristur. Hann sagði líka söguna af eyri ekkjunnar, en hún gaf af skorti sínum og gaf því mest. Margt gott býr í kristnum siðagrunni þjóðar okkar.
Eitt af stórbrotnum málverkum af sjómönnum eftir Gunnlaug Scheving
Og nú bið ég ykkur að hætta árásum ykkar á almenning og spara þessar auglýsingar og láta peningana heldur renna í góðgerðarmál. Af nógu er að taka í þeim efnum.
Hristið af ykkur slyðruorðið og forðist auðbeldið sem þið nú stundið.
Viðsnúningur ykkar og væntanleg vöknun
gæti um leið verið sumargjöf
handa þeim sem leggja meir upp úr:
fegurð lífs en fjármunum,
samhjálp en sérhyggju,
ást en auði,
sannri vináttu en keyptri.
Vonandi auðnar brátt á landi og ennfremur í heimi auðs og valda.
Prédikun í Skeggjastaðakirkju á 2. í páskum 2025. Flutt án handrits.
Magnað að fá að messa í elstu kirkju á NA-landi sem byggð var 1845. Hiti úti 1 gráða en bjart og fagurt veður. Þetta var sjöunda messan á fjórum dögum!
Fyrr um morguninn messaði ég í Þórshafnarkirkju og talað líka blaðalaust þar og tók reyndar báðar ræðurnar upp en valdi þessa handa þér til að hlusta á.
Í ræðunni tala ég m.a. um hinn auðuga gæfumann, Job, sem missti allt og var að auki þjakaður af vinum sínum sem vildu fá hann tril að játa afglöp sem hlytu að hafa valdið þessum hörmungum því slíkt gæti ekki hent góða menn.
Akandi um dali og yfir fjöll á NA-landi í hálku og þæfingi skírdags, á ferðum mínum til messuhalds, hlustaði ég á sögu drengsins Oscars frá Kólumbíu, á Rás1. Hún snerti streng í hjarta mínu.
Oscar var sendur úr landi af yfirvöldum í umsjá ofbeldisfulls föður, sem virðist vera heillum horfinn, enda yfirgaf hann drenginn um leið og þeir komu til áfangastaðar í S-Ameríku. Hann hafði víst beitt drenginn ofbeldi og einskærri mannvonsku.
Í Morgunblaðinu, 16. apríl 2025 birtist útdráttur úr þessari grein sem ég set inn hér í fullri lengd og les hana um leið inn fyrir þau sem vilja hlusta fremur en lesa. Svo ég taki samlíkingu af þorski þá var greinin í blaðinu bara annað flakið af fiskinum en hér kemur þorskurinn allur.
Nú kaupir SFS – Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi – auglýsingar í fjölmiðlum fyrir stórfé og flytur hræðsluáróður sinn. Réttlæti verður ekki komið á með auðvaldi, en hins vegar er unnt að vinna gegn órétti með samstöðu almennings.
Í kyrruviku/dymbilviku, þegar við erum hvött til þess að huga að hinum alvarlegri stefjum lífsins, birti ég hér Kristsmynd, sem ég málaði nýlega með vatnslitum.
Hún minnir á þjáningu Krists,
sem endaði með algjörum sigri,
er hann reis upp frá dauðum á páskadag.
Í myndinni er vísað til þjáningar og sorgar
með fjólubláum lit föstunnar
og strikum sem tjá svipuhögg
og misþyrmingu illra og spilltra yfirvalda.
Boðun fagnaðarerindis Krists skiptir heiminn miklu máli – og hefur ætíð gert.
Samtíminn þarfnast friðar og kærleika í anda Krists sem stóð og stendur með þjáðum, fyrirgefur illvirkjum og ódæðismönnum, varar við fordómum og dómsýki og boðar mönnum sáttargjörð og frið.
Gott er að fá að vera í hans hjörð.
Nú á þriðjudegi í dymbilviku bíða mín 9 athafnir í 5 kirkjum á NA-landi og einni í Reykjavík um bænadaga, páska og dagana eftir páska.
Taktu eftir!
Sama hvort þú víkur frá myndinni til hægri eða vinstri þá fylgja þér augu Frelsarans.
Viltu lesa eða hlusta? Þú getur valið hvort tveggja
eða annað tveggja!
Margt er það sem hefur áhrif á okkur í samtímanum. Samfélagsmiðlar eru nýtt fyrirbrigði og þar hafa sprottið fram einstaklingar sem kalla sig áhrifavalda en segja má að séu fátt annað en venjulegir nobodies sem vilja verða somebodies. Oftast er um að ræða reynslurýrt fólk.
You must be logged in to post a comment.