Varð að aflýsa 5 af 7 guðsþjónustum vegn ófærðar á fjallvegum.
Örn Bárður Jónsson Fyrirhugaðar voru guðsþjónustur í Bíldudalskirkju, Tálknafjarðarkirkju og Patreksfjarðarkirkju kl. 18 kl. 21 kl. 23. (Að auki var helgistund á hjúkrunarheimilinu HVest Patreksfirði kl. 13 en þar var aðeins flutt stutt hugvekja)
Aflýsa varð öllum guðsþjónustum nema á Patreksfirði.
Kórfólk mætti í kirkjuna á Bíldudal og söng og las jólaboðskapinn í prestsleysinu en ég hef ekki fengið frengir frá Talknafirði hvort helgistund var haldin þar af heimafólki.
Kæra fjölskylda, vinir og samferðafólk. Sendi ykkur kveðju mína á jólum og um áramót og óska ykkur velfarnaðar. Er við þjónustu í Vesturbyggð en átta kirkjur tilheyra prestakallinu. Fyrirhugaðar eru fjórar athafnir á aðfangadag og þrjár í sveitakirkjum á jóladag, en færð og veður ráða öllu hér á þessum árstíma.
Kveðja mín er ofin inn í meðfylgjandi sálm sem ég þýddi og umorti úr norsku og lýsir lífsbaráttu á norðurslóðum og á því vel við hér á Vestfjörðum og um allt land ef svo ber undir.
Úr Fossvogskapellu, glerverk Leifs Breiðfjörð. Kristur lýtur sínu þyrnumkrýnda höfði og ber kross sinn upp á Hausaskeljastað
Jólasálmur á Norðurslóðum
–
Send blessun og frið yfir fjörðinn,
fær blessun og ljós yfir lönd.
Og blessa þau eilífu orðin,
um vonir og útrétta hönd.
Vernda það góða þú gafst oss,
þann daginn oss bar hér að strönd,
gef oss að trúa og forð´oss að flækjast
í fátæktarbönd.
–
Vér horfðum oft grátand’ í gaupnir,
en glæst er hin sterka trú,
nú karlarnir konunum jafnir,
í kærleiksverkum sem þú.
Nú bíður vor harðasta hríðin,
með harðfylgi náum vér heim,
þar ljósið lýsir og aðventutíðin,
með líkn frá Betlehem.
–
Guðs friður í djúpi, á fjalli,
svo farnist vel byggð og jörð,
Guðs friður í fjárhús’ og stalli,
yfir fannir og harðan svörð.
Þú sérð gegnum mæðu og myrkur,
þín miskunn nær út yfir jörð,
heimilin, fjörðinn, fjöllin og kirkjur
og fólkið – þína hjörð.
Lag og norskur texti: Trygve Hoff 1985.
Þýðing: Örn Bárður Jónsson, október 2019
Píanóleikinn fann ég á Netinu en hljóðfæraleikarans var ekki getið þar. Guð blessi fingrafiman flytjanda.
13 Þá færðu menn börn til Jesú að hann legði hendur yfir þau og bæði fyrir þeim en lærisveinar hans átöldu þá. 14 En Jesús sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er himnaríki.“ 15 Og hann lagði hendur yfir þau og fór þaðan. (Matt 19. kafli)
Hér er upptakan með ræðu prestsins:
Og hér er streymið sem unnt er að horfa á alla athöfnina:
DAUÐINN, DÓMSDAGUR, EILÍFÐIN- hvað verður um okkur? Ég mun fjalla um þetta í NESKIRKJU kl. 11 í dag – ef þú þorir! Í dag er síðasti sunnudagur kirkjuársins og íhugunarefni kirkjunnar eru upphafsorð þessarar færslu. Við prestur ákveðum ekki umfjöllunarefni sunnudaganna. Þau voru öll ákverðin fyrir mörgum öldum. Þjóðkirkjan fer eftir textaröðum eins og hinar klassísku kirkjudeildir gera. Og nú eru þessi hugtök í textaröð dagsins: DAUÐINN, DÓMSDAGUR, EILÍFÐIN.
VELKOMIN/N!
Prédikunin var flutt út frá punktum en tekin upp. Hér er hægt að hlusta:
You must be logged in to post a comment.