Nokkur riss frá síðustu tveim vikum eða svo
– sept/okt 2025


Séra Jón Ragnarsson og safnaðarfólk





ræddi stjórnmálastefnur og kom víða við
Hlustaði á hann á YouTube




Writer – Painter – Theologian
Rithöfundur – Málari – Guðfræðingur
“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari
Nokkur riss frá síðustu tveim vikum eða svo
– sept/okt 2025











Útför frá Neskirkju fimmtudaginn 30. október 2025
Jarðsett í Görðum


Örn Bárður Jónsson
Minningarorð
+Haraldur Antonsson
1934-2025
búfræðingur
Útför frá Neskirkju,
fimmtudaginn 30. október 2025 kl. 13
Ritningarlestur:
Davíðssálmur 8
Guðspjall:
Jóh 14.1-6
Hvernig Vesturlandabúar hjálpuðu Hamas að vinna áróðursstríðið
Grein eftir Tom Gross
í The Spectator
Þýdd af Google Translate
með aðstoð
Arnar Bárðar Jónssonar sem les.
Eftir tveggja ára stríð, og þrátt fyrir marga sigra Ísraels á vígvellinum, getur Hamas einnig státað af eins konar sigri – að minnsta kosti í bili. Hryðjuverkasamtökin hafa lifað af og eru enn á ný að ná völdum á svæðunum á Gaza sem eru undir þeirra valdi. Opinberar aftökur, hýðingar, grýtingar og mölbrot á hnéskeljum manna, hafa snúið aftur. Á fyrstu fimm dögum vopnahlésins tók Hamas að minnsta kosti 100 Gazabúa af lífi.

Bálför frá Neskirkju fimmtudaginn 23. október 2025 kl. 13


Örn Bárður Jónsson
Minningarorð
Ursula Szalewski Sigurgeirsson
Granaskjóli 5
f. 12. janúar 1937 d. 14. október 2025
Bálför frá Neskirkju
fimmtudaginn 23. október 2025 kl. 13
Smelltu á nafnið hennar efst og þá birtist texti ræðunnar
og hér er unnt að hlusta á upptöku ræðunnar:
Grein eftir Örn Bárð Jónsson sem les. Tekur 8 mín. í hlustun.

Lýðræðið og lygin
Orðið lýðræði er í hávegum haft. Borgarar heimsins vilja flestir búa við lýðræði þar sem stjórnmálamenn stýra í umboði lýðsins.
(meira…)Myndirnar úr Neskirkju teiknaðar af aftasta bekk og mótífin öldnum augum því nokkuð langt í burtu!





Messaði á Mörkinni við Suðurlandsbraut
sunnudaginn 12. október 2025 kl. 14
Prédikaði út frá punktum en tók ræðuna upp.

Viltu hlusta? Smelltu á tengilinn!
Textar dagsins eru á þessari slóð, lexía, pistill og guðspjall. Smelltu á auða svæðið innan svigans:
(https://kirkjan.is/kirkjan/kirkjuarid/kirkjuarid-nanar/?itemid=ba537853-ab4c-11ef-9bb4-005056bc428f
)


Punktar ræðunnar II
Í fyrsta hauststorminum ók ég út á Nes miðvikudaginn 8. október og fór á „þjóðmálafund“ í Seltjarnarneskirkju.
Þar hlýddum við á Birgi Þórarinsson, fv. alþingismann segja frá því hvernig honum tókst með þekkingu sinni og tengslum að leysa úr haldi rússneska konu með þarlendan- og ísraelskan ríkisborgararétt sem var gísl hryðjuverkasamtaka í Írak og fá gíslatökumenn til að falla frá lausnargjaldi uppá 2,4 milljarða króna!
Hrífandi frásögn sem er ævintýri líkust en vakti með okkur mörgum þá tilfinningu og hugrenningatengsl að þarna hafi Birgir gengið á Guðs vegum og notið himneskrar handleiðslu.
Þessi teikning varð til af honum á staðnum. Öðru bætti ég við heima og litaði svo með vatnslitum.

Séra Sveinn Valgeirsson, Dómkirkjuprestur, flutti erindi á Krossgötum Neskirkju, mánudaginn 6. október 2025, sem hann flutti af munni fram og með sínum góða húmor. Góðar umræður urðu í kjölfarið.
Þetta riss varð til á fundinum, teiknað með penna og vatnsheldu bleki og því engu unnt að breyta!
Að kvöldi dags var játningin færð inn á blaðið
en erfitt reyndist að sjá fyrir hvort hún kæmist þar fyrir.
Það náðist með smá tilfærslum og bið ég lesendur að taka viljann fyrir verkið.

Hér má svo heyra rissara lesa játninguna:
You must be logged in to post a comment.