Ákvörðun RÚV um að sniðganga Júróvisjón var auðvitað fyrirsjáanleg. Hún var tekin 11. desember 2025.
Þankar eftir Örn Bárð Jónsson sem les.
Viltu lesa og/eða hlusta. Tekur 2 mínútur plús.

Á RÚV er hamast alla daga og pólitískum áróðri dreift gegndarlaust af starfsfólki, sumu með pólitískar agendur, sem hallað hefur réttu máli í hverjum fréttatímanum á fætur öðrum undanfarin misseri.
Hvar er hlutlaus fréttamennska í málum Ísraels og Gaza á þessari vegvilltu og guðsvoluðu stöð?
BBC hefur verið tekið í bakaríið fyrir sömu, slælegu vinnubrögð og hlutdræga fréttamennsku, en þar hefur starfsfólki verið gert að sitja námskeið í antisemitisma til að vinda ofan af gyðingahatri sínu.
Og fyrir utan Útvarpshúsið í Reykjavík stóð fólk undir fána Hamas og með Hamas-klúta á herðum sér.
Fólkið á Gaza á sér þann draum að útrýma gyðingum og leggja Ísrael í rúst, eina alvöru lýðræðisríkið í Mið-Austurlöndum.
Þetta styður Gaza-RÚV og íslenska Hamas-fólkið með ráðum og dáð og stjórn RÚV situr hjá og lætur starfsfólkið taka málið í sínar hendur með þeim rökum að um sé að ræða dagskrármál. Þetta er auðviðtað rammpólitískt mál og RÚV til skammar. Gleðispilla mætti kalla ykkur öll upp til hópa, sem farið fram með þessu ólýðræðislega móti og undirlægjuhætti við brenglaðan málstað sem hefur verið rekinn um allan hinn Vestræna heim af heilaþvengum Hamasliðum með ómældum olíupeningum Araba.
Og Vesturlönd láta fífla sig alla daga og nætur eins og kaupsjúkt fólk og auðblekkt á bazar í Arabíu og kaupir draslið í tonnavís sem minnir mig á ákafan sölumann sem eitt sinn sagði hneikslaður við mann sem vildi ekki kaupa hlut sem var falur og sagði: Og viltu ekki kaupa þessa „ekta eftirlíkingu“?

Hver er málstaður þinn RÚV
og hvar er réttlætið í æðum þér?
Megi réttlæti og friður kyssast, eins og skrifað stendur í helgum texta.
Góðar stundir.
You must be logged in to post a comment.