Besta skissubók sem ég hef fundið og þá vísa ég í pappírinn sem er með nákvæmlega réttar tennur eins og það heitir á vatnslitamáli. Á ensku er talað um „tooth“ pappírsins og það vísar í hrjúfleika og hvernig hann mætir pensilstrokunni.
Ég, sem sagt, beit á jaxlinn og kláraði bókina. Sæki mér svo nýjar skissubækur af sömu gerð eftir verzlunarmannahelgina.
Hér koma skissurnar sem auðvitað eru líka skyssukenndar eins og gengur þegar teiknað er fjálslega! Njóttu!
Horft út um gluggann heima. Esjan og Sundin blá gleðja stöðugt. Skýjað hefur verið undanfarnar vikur og litir því í þeim dúr.Sá kvikmyndina GENIUS sem er um bandaríska rithöfundinn Thomas Wolfe 1900-1938 sem skáldið Ólafur Gunnarsson kynnti mig fyrir á sínum tíma. Myndin er með dimmri lýsingu. Tökur fagrar með mildum blæ. Leikur góður.
Smelltu á yfirskrift færslunnar ef næstu myndir sjást ekki!
Fulltrúi útfgáfunnar sem lét skáldið strika út hálfar og heilu síðurnar. Myndin snýst að miklu leyti um samskipti þeirra og eiginkonur beggja. Hann var allaf með hattinn. Líklega svaf hann með hann!Skip mætast í hafnarkjaftinum í Reykjavík.Gítaristi á skjánum á YouTubeHús á skjánumKaffi og croissantVerk eftir Sigurð Guðmundsson og fleiri munir af annarra höndumMannequin og skál með stiga eftir finnskan listamann sem ég keypti. Á einnig forláta krossmen eftir hann sem ég hef notað við athafnir um árabil.Lokasíða skissubókarinnar með rétt-tenta pappírnum! Vinstri hönd höfundar og fingrafar hægri þumals.
Ég kynntist félagsskapnum Urban Sketchers árið 2013 og tengdist honum á Netinu. Hann heldur utan um fólk sem hefur gaman af að skissa, einkum úti. Pappír, blýantur, penni og önnur einföld verkfæri eru notuð. Sumir lita og nota þá vatnsliti eða aðra miðla. Málið er að teikna á staðnum.
Ég nota blekpenna með vatnsheldu bleki og teikna beint og þar með er ekki unnt að stroka neitt út. Teikningin verður að takast og maður venst því að mistök geti jafnvel gætt verkið einhverju skemmtilegu sem annars hefði ekki gerst.
Ég hef fyllt meir en tug bóka með skissum. Þetta er afar skemmtileg dægradvöl
Nóg um það.
Hef verið nokkuð iðinn síðustu dagana og hér eru nokkrar sem urðu til við ýmsar aðstæður.
Þúfan fagra gleður mig gjarnan þar sem hún kallast á við olíutankana í Örfirisey.Kominn heim og þarf að hafa hægt um mig eftir aðgerð. Horft á sjónvarp og út um gluggann þar sem þessir tveir hlutir standa og bera við himin.
Ef framhaldið birtist ekki, skaltu smella á FYRIRSÖGN færslunnar efst!
Gellur er góður matur. Fiskurinn, á grísku IXÞYS er eitt af elstu táknum kristninnar, en stafirnir mynda játninguna: Jeús Kristur Guðs Sonur Frelsari Á gellan kannski best við sem tákn íslensku kirkjunnar nú um þessar mundir sem reynir að ná athygli fólks m.a. með sprikli og glamúr?(meira…)
Þeir fela sig í „civil“ klæðum og koma aldrei fram sem hermenn nema í meintum árásum á sitt eigið fólk sem þeim er algjörlega sama um.
Þeir nota fólkið sem skjöld og fórnar þeim á altari lyginnar.
Þegar Hamas hafði drepið 2000 manns 7. okt. 2023 og dregið lík nauðgaðra og svívirtra kvenna, um götur og torg þá trylltist Palestínu-fólkið í frigðarfullri gleði yfir hroðanum!
You must be logged in to post a comment.