Við vorum vígðir himninum í heilagri skírn sem ungabörn og fermdir fjórtán árum síðar árið 1963. Haukur heitinn Böðvarsson fór heim í himin Guðs þennan dag, 25. febrúar 1980, er hann fórst í Ísafjarðardjúpi með skipi sínu mb. Eiríki Finnssyni. Blessuð sé minning þeirra sex manna er fórust í þessu óveðri og megi Guð styrkja ástvini þeirra nú sem þá.
Mannkyns fley á mari rekur, Guð man allra barna nöfn. Hafið gefur, hafið tekur, himinninn er örugg höfn.
Birti hér nokkrar vatnslitamyndir sem hafa orðið til á Hofi í Vopnafirði í byrjun árs 2025
„Hof í ljósi nætur“ tók á móti mér í janúar – hálf örk 38×56 cmAbstrakt Ljósvera I – hjálf örk 38 x 56Abstrakt Ljósvera II – hjálf örk 38 x 56Tilbrigði við Nostalgiu Tarkovskys Fjórðungur af örk 28×38 cmAbstrakt Blessað ljósið I 22.2.25 Heil örk 56×76 cmAbstrakt Blessað ljósið II – 22.2.25 Heil örk 56×76 cm
Kona nokkur sem heitir Evrópa, fögur, rík og fönguleg, er nú loks farin að átta sig á því að hún þarf að yfirgefa mömmu og pabba, þau Unu Siggu og Ara. Hún þarf hætta að biðja um vasapeninga, húsaskjól og vernd og standa á eigin fótum.
Amma og afi skrifa til hennar hvetjandi bréf:
Elsku Evrópa, þú stendur nú á tímamótum eins og allt ungt fólk, sem kemst að því að „Hótel mamma“ mun senn loka.
Mamma þín og pabbi hafa mörg járn í eldinum og í raun er heimilið orðið að einhverskonar farsakenndum vígvelli þar sem eilíf togstreita á sér stað og hagsmunabarátta. Pabbi þinn er orðinn undarlegur í háttum og mamma úti á þekju andlega talað. Okkur blöskraði þegar við fórum í heimsókn nýlega.
Að þroskast og fara að heiman er mikilvægt skref í lífi ungs fólks.
Elsku Evrópa, gangi þér vel á eigin vegum!
Þú getur þetta! Þú ert flott!
Una Sigga og Ari, komast af á eigin forsendum og vonandi hangir hjónabandið saman og megi fjölskylduerjur fara dvínandi í ætt okkar.
Var að lesa fróðleik um þennan „frænda minn“ í bókinni VESTFIRZKAR SAGNIR og hafði ánægju af v.þ.a. margt hef ég heyrt um hann og prestana honum tengdum.
Setti saman þessa grein með upplýsingum um ætt mína og svo eru hljóðskrár neðst með upplestri mínum úr
Hrafnseyri við Arnarfjörð – mynd fengin að láni af vefnum
Eitt sinn er ég átti samtal við séra Sigurbjörn Einarsson, biskup og velgjörðarmann minn, nefndi ég að ég hefði ekki fundið marga presta í föðurætt minni, en í móðurættinni væru einir þrír ættliðir presta sem hefðu þjónað í Holti í Önundarfirði. Þá glotti biskup og sagði:
„Jæja, blessaður minn, þeir voru víst dálítið drykkfelldir!“
Nota Bene:
Til að lesa alla greinina þarf að smella á fyrstu fyrirsögn og þá kemur framhaldið og svo hjóðupptökurnar!!!
Sálmur séra Hallgríms Péturssonar sem flestir þekkja, einkum af fyrsta og seinasta versi, er magnaður kveðskapur, einskonar fræðsluerindi um dauðann, sem allir verða að lúta fyrr eða síðar.
Hér flytur Örn Bárður Jónsson sálminn utanbókar og þú getur hlustað á upptökuna sem tekur sex og hálfa mínútu í hlustun með innganginum.
Guð blessi þig!
Hér geturðu nálgast texta sálmsins í sálmabókinni:
https://kirkjan.is/salmabok/$Hymn/Detail/?Id=373a
Og hér er frétt af vef RÚV um flutning minn á sálminum í Neskirkju haustið 2024:
You must be logged in to post a comment.