Þríeinn Guð. Þríeitt fólk! Þrjú meginsvið lífsins.
Sjö börn fermd
Organisti Stephen J. Yates
Kór Hofskirkju
Ræðan tekur 8 mínútur og svo fylgir trúarjátningin! Fermingarmessa í Hofskirkju, Vopnafirði 17. júní 2025. Séra Þuríður Björg Wiium Árnadóttir þjónaði með mér í messunni en hún er fv. sóknarprestur í Hofsprestakall en þjónar nú syðra.
Hugvekja sr. Arnar Bárðar tekur 8 mín. í hlustun.
Myndir teknar við athöfnina sendi mér Guðjón Snær sem var einn af hópnum.
Sr. Þuríður og hópurinnVið altariðPrestssetrið að Hofi og Safnaðarstofan fjær. Hofskirkja sem er á milli fyrrnefndar húsa er horfin í trjágróður.
Tjáning er oft eins og glerhált svell. Maður segir eitthvað, heldur fram einhverju ákveðnu, en segir um leið eitthvað allt annað, ómeðvitað eða jafnvel meðvitað.
Tökum dæmi. Maður nokkur tekur afgerandi afstöðu með Palestínumönnum á ímynduðum forsendum mannúðar og kærleika. En þá tekur svellið við og afstaða hans snýst í andhverfu sína og verður óvart stuðningur við Hamas og útrýmingu Gyðinga.
Annar styður málstað Gyðinga, en er þá um leið stimplaður sem mannvoskan sjálf í margfeldi, vegna þess að það bitnar á Palestínumönnum.
Hamas notar svo blessað fólkið í Palestínu sem skjöld og teflir því fram í skák sinni sem peðum, vitandi vits að þau verði stráfelld. Fórnarkostnaður, heitir það á hagfræðimáli og í þessu tilfelli hagfræði helvítis.
Og hver er þá skúrkurinn í skákinni?
Ísraelsmenn?
Palestínumenn?
Hamas?
Íran – bakhjarlinn stóri?
Að segja eitt en óvart annað.
Eða, að segja eitt og meina annað.
Er það stundum svo að menn nota viljandi Albaníu-aðferðina og meina öfugt við það sem sett er fram?
Fyrir ykkur sem eruð of ung til að þekkja Albaníu-aðferðina þá var hún notuð á valdatíma kommúnista í Sovétríkjunum. Þegar Sovétmenn vildu gagnrýna Kínverja þá beindu þeir skömmum sínum að Albaníumönnum.
Heimurinn er hálagler
hugsun margra í hvelli
umhverfist í skaðans sker
í skautadans á svelli.
Dettu varlega!
Mynd af Vefnum fengin að láni með góðfúslegu leyfi
Viltu lesa? Viltu hlusta? Upptakan tekur rúmar 18 mínútur.
Ef greinin birtist ekki öll skaltu smella á heiti hennar.
Eitt af margræðum listaverkum eftir Escher
Andar og áhrif
Í Biblíunni, þeim mikla mannslífsspegli, er sagt frá því að andar geti haft áhrif á fólk.
Til eru andar í veröldinni. Ég hef kynnst þeim bæði góðum og illum. Unnt er að skynja anda í einstaklingum og hópum.
Hjarðhugsun er hugtak sem Wikipedia skilgreinir t.d. með þessu hætti:
„Hóphugsun er sálfræðilegt fyrirbæri sem á sér stað innan hóps fólks þar sem löngunin til sáttar eða samræmis í hópnum leiðir til óskynsamlegrar eða óvirkrar ákvarðanatöku. Samheldni, eða þrá eftir samheldni, í hópi getur valdið tilhneigingu meðal meðlima hans til að koma sér saman um afstöðu, hvað sem það kostar. Þetta veldur því að hópurinn lágmarkar átök og nær samstöðuákvörðun án mikilvægs mats.“ (Þýðing min í samvinnu við Gúgglu)
You must be logged in to post a comment.