eftir Örn Bárð Jónsson

LONDON METROPOLITAN
UNIVERSITY
Mér hefur verið tíðrætt um gildagrunn Vesturlanda í pistlum og ræðum á liðnum árum. Þá hef ég minnt á að öll grunngildi Vesturlanda koma í raun úr Biblíunni eða eru leidd af gildum þeirrar merku bókar. Juergen Habermas, nýlátinn stjörnuheimspekingur og guðleysingi, lagði áherslu á þetta í kenningum sínum. Dómskerfið, menntakerfið, heilbrigðiskerfið, allt sem viðkemur mannréttindum Vesturlanda er þaðan komið.
Viltu hlusta á lestur höfundar?
Talandi um mannréttindi þá þarf líka að tala um mannskyldur.
Ekkert er einhliða.
Það er nefnilega ekki hægt fyrir nokkurn fugl,
hvað þá flugvél, að fljúga á einum væng.
Ég nefni fjórar mikilvægar tvenndir:
Kærleikur helst í hendur við réttlæti,
réttindi við skyldur,
réttur við meðalhóf,
mannréttindi við miskunn.
Fjórar tvenndir sem eru hver fyrir sig tengdar.
ISMAR Í UMFERÐ
Marxismi, kommúnsimi, sósíalismi, feminismi. Allt eru þetta þekktir ismar í sögu og samtíð, þó ekki lengri en 150-200 ár.
Fólkið sem fylgir þessum ismum gerir það í góðri trú, en vandinn með alla þessa isma er, að þeir eru oft einvængja. Það gengur ekki að hjálpa fólki með einu gildi af fleirum. Tryggja verður samhengið.
Nýjasti isminn er svo Wókið sem liggur flatt, í mörgum tilfellum og e.t.v í gunninum, fyrir illa ígrunduðum kærleika og hjálparvilja, sem tekur öllum án mikilla skilyrða, spyr fárra spurninga um innræti eða gildi, sem eiga að tryggja aðlögun.
Nú er svo komið að á tímum Wóksins virðist sú hugsun mörgum horfin að skoða þurfi öll mál í víðu samhegi og muna að á hverju máli eru fleiri hliðar en ein, annars flýgur skrípfyglið í hringi og hrapar. Reyndar hefur Wókið þrjú gildi til viðmiðunar, á ensku Diversity, Equity, Inclusion sem þýða má með orðunum Fjölbreytni, Jafnstaða, Inngilding.
Þessi gildi má ekki slíta í sundur. Síðasta skrefið, Inngilding, má ekki mistakast því það er einmitt þar sem krafist er mótframlags þess sem sýna á sanngirni. Inngilding merkir að viðkomandi verður hluti af samfélaginu, gildum þess og grunni. Hann eða hún þarf að laga sig að móttökusamfélaginu. Þetta hefur mistekist víða í hinum Vestræna heimi og því hafa myndast gettó innflytjenda með framandi gildi og í sumum tilfellum ógildi, þ.e. siði og venjur sem við samþykkjum engan veginn.
Mantran: Fjölbreytni, Jafnstaða, Inngilding, nær sjaldan markmiðum sínum. Hún er hús með þrjár stoðir sem allar verða að vera styrkar. Inngildingin hlýtur að felast í því að fólk tileinki sér arf þeirrar menningar og lands sem flutt er til. En svo liggur það í augum uppi að sumt fólk aðlagast aldrei og hafnar í raun allri inngildingu v.þ.a. gildi viðkomandi eru svo gjörlólík þínum og mínum – og þar liggur vandinn. Slíkir verða bara að búa með sínu eigin samgildisfólki í öðrum menningarheimi.
Þá er það harla mótsagnakennt að í anda fjölmenningar séu fluttar inn til Vesturlanda tugmilljónir vopnbærra manna og fólks sem hafnar fjölmenningu eindregið – nema að því marki sem það þjónar þeim sjálfum.
Því miður er oft á þessum glámskyggna grunni tekið á móti milljónatugum fólks með mjög framandi menningu.
HVERJAR ERU MEGINSTOÐIR VESTRÆNNA GILDA?
Gervigreindin, hér eftir GG, svaraði þessari spurningu minni:
Frelsi einstaklingsins: Hugmyndin um að hver maður hafi rétt til að hugsa, tjá sig, trúa og lifa eftir eigin sannfæringu. Hún á rætur í Upplýsingunni og Frjálshyggju.
Mannréttindi og mannleg reisn: Allir menn hafa ósvikin, óafsalanleg réttindi. Hér mætast kristin hugmynd um manninn sem sköpun Guðs og náttúruréttarhefð Upplýsingarinnar.
Lýðræði og lýðræðislegir stjórnarhættir: Valdið kemur frá fólkinu, með frjálsum kosningum, fjölræði og skiptingu valds.
Réttarríkið: Allir, einnig stjórnvöld, lúta lögum. Dómstólar eru sjálfstæðir og jafnræði ríkir fyrir lögum. Rætur þess liggja í rómverskum rétti og Magna Carta.
Skynsemi og vísindaleg hugsun: Trú á gagnrýna hugsun, rökræðu og rannsóknir sem leið til þekkingar. Hún á t.d. rætur í grískri heimspeki og vísindabyltingunni.
Umburðarlyndi og hugsanafrelsi: Aðskilnaður ríkis og kirkju, trúfrelsi og virðing fyrir ólíkum skoðunum, sem þróaðist eftir trúarbragðastyrjaldir Evrópu.
Séreignarréttur og athafnafrelsi: Réttur til eigna og frjáls viðskipti, með markaðsbúskap sem grundvöll.
Söguleg undirstaða er oft rakin til þriggja arfleifða: grískrar heimspeki og lýðræðishugmynda, rómversks réttar og kristinnar siðfræði og hugmynda gyðinglegrar og kristinnar hefðar. Síðar bættust við endurreisnin, siðbótin og upplýsingin.
Ég spurði áfram út í orð Habermas og GG sagði:
“Habermas sagði þetta í raun og veru, en orðalagið er aðeins þrengra en oft er haldið fram. Í bókinni Time of Transitions heldur hann því fram að algild jafnræðishugsjón (e. universalistic egalitarianism), sem frelsi, samstaða, mannréttindi og lýðræði spretta af, sé beinn arfur frá gyðinglegri réttlætissiðfræði og kristinni kærleikssiðfræði. Hann bætir við að enginn annar valkostur hafi komið í staðinn og að allt annað sé „hjal póstmódernista“.
Rétt er að nefna að gildin eru umdeild: menn deila um hvað teljist „vestrænt“, hvort gildin séu einstæð fyrir Vesturlönd, og hvernig skuli vega þau hvert á móti öðru, til dæmis einstaklingsfrelsi á móti jöfnuði eða samfélagslegri samstöðu.”
KOMMÚNISMI, SÓSÍALISMI OG KRISTNI
Þá spurði ég GG um orð Dostojevskís um kristna sósíalista og kommúnista. Svarið kemur hér:
“Slíkar meiningar koma fram í skáldsögum hans og endurspegla afstöðu hans.
Hvar hún birtist:
Í Bræðrunum Karamazov (kaflinn hjá Zosima starets) vitnar Miusov í franskan lögreglumann sem sagði að kristnir sósíalistar væru hættulegri en guðlausir. Sá sem berst gegn trúnni sé að minnsta kosti heiðarlegur um markmið sín.
Í Fávitanum segir Mýskín fursti að sósíalisminn sé afkvæmi kaþólskunnar. Hann segir kaþólskuna verri en guðleysi, því hún boði “afskræmdan Krist”, andstæðu hans.
Hugsunin að baki þessu:
Dostojevskí taldi sósíalisma í raun vera veraldleg trúarbrögð sem lofa jarðnesku himnaríki: brauði, öryggi og jafnræði, í skiptum fyrir frelsið. Þetta er kjarninn í sögunni um Stórinkvisitorinn.
Kristinn sósíalismi er verri vegna þess að hann notar nafn Krists til að réttlæta þetta. Guðleysinginn hafnar Kristi opinskátt, en hinn kristni sósíalisti kemur í hans stað með falska útgáfu, þar sem kærleikur verður þvingun og hjálpræði verður efnahagsleg skipan.
Fyrir Dostojevskí var frelsið – einkum frelsi samviskunnar – kjarni kristninnar. Allt sem kaupir sæla sátt með því að svipta fólk valfrelsi er því svik við Krist, jafnvel þótt það tali í hans nafni.
Samhengi: Dostojevskí var sjálfur í sósíalískum hring (Petrasjevskí) á yngri árum, var dæmdur til dauða og slapp á síðustu stundu. Eftir það sneri hann sér að rétttrúnaði og slavneskri kristni, og afstaða hans til sósíalisma er hluti af því uppgjöri.”
Og GG beinir svo orðun sínum að mér og segir:
“Þetta tengist beint spurningu þinni um Habermas: Dostojevskí taldi að hugsjónir um jafnræði gætu ekki lifað án trúarinnar, en Habermas að þær gætu það.”
Já, svo öllu sé til haga haldið, þá verð ég að koma með rökin bæði með og móti sjálfum mér, en ég hallast nú frekar að skoðun skáldsins!
Guðleysinginn Habermas þekkti að minnsta kosti rætur hinna vestrænu gilda þótt hann tryði ekki á Krist. Því miður segi ég nú – hans vegna.
En hvað varðar Vinstrið, með stórum staf, þá virðist mér flóra hugmynda þess vaxa í jarðvegi marxisma og kvæmum hans. Og vissulega má gefa Dostojevski hrós fyrir að hafa skynjað fylgifiska sósíalismans svo snemma í sögunni og að hafa séð í gegnum þá villutrú alla. Hin kristnu gildi eru tekin úr samhengi í Vinstrinu og gerð að nýjum guðlausum átrúnaði. Allt það, sem menn hengja hatt sinn á lífinu og treysta til hins ítrasta, er í raun átrúnaður þótt enginn sé guðinn – nema þá að hann sé einmitt maðurinn sjálfur. Naflatrú mætti það heita. “Incurvatus in se”, sagði Lúther kallinn um hinn synduga mann. Hann er kengboginn inn í sjálfan sig.
Til er skilyrðislaus kærleikur – a.m.k. sem hugmynd – sem líklega er aðeins á valdi almættisins. Við sem byggjum þennan heim gerum kröfuna um að þau sem eru andlag kærleika hinna betur megandi, finni um leið að kærleikanum þarf að fylgja andsvar, viðbragð, ábyrgð, inngilding. Minni á það sem fyrr var rætt hér að framan um tvívængja fugla en ekki einvængja.
Ég spurði gervigreindina um framsetningu mína um Vinstrið og fékk þetta svar:
“Þetta er því ekki alveg úr lausu lofti gripið [hjá skrifara], því hugmyndalegur skyldleiki er raunverulegur, en það er ofmælt að allt þetta sé sami hluturinn eða „afbrigði af marxisma“. Réttara væri að segja að þetta sé hugmyndafjölskylda með flókin og stundum andstæð tengsl.”
Þakka GG fyrir þessi viðbrögð við spurningu skrifara sem vill halda áfram að læra og þroskast.
VESTURLÖND ÞÁ OG NÚ
Ástand Vesturlanda um þessar mundir er í raun skelfilegt. Ég sit og skrifa þessa þanka í Varjsá í Póllandi. Þjóðinni, sem það land byggir, er hælt í hástert fyrir samheldni, festu við grunngildi kristinnar trúar og varin landamæri. Pólverjar hafa um aldir þurft að þola yfirgang og órétt og það var í þeirra landi sem Nazistar drápu milljónir.
Fyrir nokkrum dögum, 7. nóv. 2026 framdi “hægri öfgamaður” ódæði í Kraków og drap saklaust fólk á torgi borgarinnar. Hann var yfirbugaður af tveim hetjum í lögregluliði, en lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Fimm dögum síðar héldu Pólverjar fullveldisdaginn hátíðlegan, 11. nóvember og fólk fagnaði þar innileg og á sjónvarpsmyndum sáust Pólverjar ganga tugþúsundum saman með fána á lofti til að fagna og margir með helgimyndir af Kristi og Maríu guðsmóður. Pólverjar eiga sér flókna sögu yfirgangs innrásarherja um aldir. Trúin hefur löngum verið þeirra skjól og vörn.
Ég rifja hér upp atvik úr sögu Seinni heimistyrjaldarinnar:
“Um 1,1 milljón manns voru myrt í Auschwitz-Birkenau, og af þeim voru um 960.000 gyðingar. Það gerir um 90% allra fórnarlamba búðanna.
Flestir voru fluttir þangað frá Ungverjalandi, Póllandi, Frakklandi, Hollandi, Grikklandi, Tékkóslóvakíu og fleiri löndum. Um 865.000 þeirra voru sendir beint í gasklefana við komuna, án þess að vera skráðir í búðirnar.
Önnur fórnarlömb voru um 70.000-75.000 pólskir borgarar, um 21.000 rómafólk, um 15.000 sovéskir stríðsfangar og um 10.000-15.000 aðrir.
Tölurnar byggja á rannsóknum sagnfræðinga eins og Franciszeks Piper, sem eru viðurkenndar af Auschwitz-Birkenau safninu. Þar sem nazistar eyddu skjölum og stór hluti fórnarlamba var aldrei skráður er þetta mat, ekki nákvæmar tölur. Í allri helförinni voru um 6 milljónir gyðinga myrtir.” (GG)
Vesturlönd glíma við margvíslegan vanda í okkar samtíð.
Trójuhesturinn er frægasta herbragð fornaldar, skráð í grískri goðsögn um Trójustríðið. Hermenn voru faldir inni í stórum tréhesti á hjólum og komust þannig inn í borgina. Falsforritum í tölvuheimum nútímans er líkt við Trójuhesta.
Fölsk hugmyndafræði eða skökk, smígur víða um heim og brenglar hugsun fólks.
BREYTT FÉLAGSLEGT UMHVERFI
VEGNA ÓLÍKRA TRÚARBRAGÐA
Ég hef áður nefnt stefnur sem eru jafnvægi lýðræðisins skeinuhættar. Gífurlegur fjöldi innflytjenda sem eru múslimar ógna Vesturlöndum. Þeir eru sendir beint eða óbeint af hreyfingum inna islam sem eru Vesturlöndum fjandsamlegar. Múslimar hafa komist til valda í stórborgum í London og víðar í Bretlandi og í New York og í nýafstöðnum kosningum í BNA komst múslimi í fyrsta sinn í öldungadeildina.
Öldungadeildar þingmaðurinn, John Kennedy, tók þennan nýja borgarstjóra NY í bakaríið nýlega og fletti ofan af honum. Hann sýndi fram á að Mandani væri í raun falsspámaður, svo ég grípi til biblíumáls. Borgarstjórinn fór sneyptur af fundinum með þingmanninum sem óx upp úr erfiðum aðstæðum og kjörum og komst til metorða í BNA. Mamdani er úlfur í sauðagæru, forríkur muslimi í mynd frelsara, sem lýgur og svíkur, fegrar sig og sína með undirferli og blekkingum. Menn sem fylgja anda Kóransins mega nefnilega ljúga að vantrúuðum, ljúga að hinum kristnu og öllum öðrum.
Almennir múslimar eru fólk eins og aðrir, en ruglingslegur og fjarstæðukenndur hugmyndaheimur islam, sem kenndur er við Múhammeð spámann, er slíkur, að hann geymir hugmyndir, sem eru svo fjarri vestrænum gildum og Kristni, að það jaðrar ekki aðeins við brjálæði og vitfirringu, heldur er hreint brjálæði og vitfirring. Og það er með vilja að orðin eru tvítekin af mér í fyrri setningu. Lestu trúarbragðafræði á háskólastigi – og berðu saman öll trúarbrögð heims og þú munt skilja hvað ég á við. Trójuhestar islam eru fótfimari en margur heldur og ekki þarf nema eina eldspítu og öfgafullan imam til að kveikja í því tundri sem fjarstæðukennd trú getur verið í hug og hjarta hins venjulega og friðsama múslima. Þeir beita því miskunnarlaust, ljóst og leynt, að koma sér fyrir í samfélögum og taka þau yfir. Þeir haf a.m.k. 1200 ára reynslu af því. Á matseðli hugmyndafræði þeirra er hin þekkti réttur: Hægsoðinn froskur í vatni.
Þekktur fræðimaður og flóttamaður frá Líbanon, Gad Saad, lýsir því hvernig múslimar náðu að fjölga sér svo í landi hans, að þeir tóku yfir. Og þegar þeir höfðu náð völdum fóru þeir að ofsækja gyðinga og kristna. Svona hafa þeir tekið land eftir land. Guð forði Evrópusambandinu frá því að taka Tyrkland inn í Sambandið með yfir 80 milljónir íbúa. Evrópa er þegar í hættu á að verða islam að bráð. Tyrkir myndu reka smiðshöggið á það mikla “Tyrkjarán” 21. aldar.
Þá benda andstæðingar kristni gjarna á að í Gamla testamenginu sé nú margt ljótt. Satt er það og sama á við um Íslendingasögurnar. Báðar bókmenntahefðirnar spruttu upp í jarðvegi erfiðrar lífsbaráttu og sögu, sem ekki er í dag tekið til fyrirmyndar. Kristnin hefur hreinsað allt slíkt með því að bregða ljósi kærleika og miskunnar yfir hvorn tveggja menningararfinn. Kristnin boðar ekkert af því sem þykir hryllilegt í GT. En islam leyfir og beitir áþekkum atriður úr sínum arfi og refsar eftir atvikum með afli svipu, sverðs eða snöru.
Við megum ekki vera eins og kjánar gagnvart innflytjendum. Við eigum auðvitað að sýna fólki miskunn, elska nánugann og hjálpa honum, en eins og ég reyni að útskýra í fyrrihluta þessa greinarkorns, þá verður kærleikurinn að haldast í hendur við rættlætið, réttindin við skyldurnar og allt það. Oftast er affarasælast að hjálpa fólki til sjálfshjálpar inna síns eigin menningarheims í stað þess að flytja það inn í menningu sem er þeim framandi.
Innflytjendur. Enginn á að komast inn í landið nema að viðurkenna gildi lands og menningar, lög og reglur, lífshætti og lýðræðislegar SKYLDUR sem allir þurfa að axla. Hefðir sem leyfa ofbeldi og harðneskju gangvart fólki, hefnd og aftökur, eiga ekki erindi í nokkru Vestrænu landi. Annars verður til ríki í ríkinu og það kann ekki góðri lukku að stýra. Fjölmörg dæmi sanna þetta t.d. í Bretlandi og víðar.
Ég má til með að hæla sitjandi dómsmálaráðherra okkar, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, sem sýnt hefur áræði og innsæi í þann vanda, sem málefni innflytjenda er. Það þarf sterk bein í þann slag. Geta má þess að Danir hafa á árinu 2026 hert verulega aðgerðir til að vísa erlendum ríkisborgurum úr landi og hvetja til sjálfviljugrar heimferðar. Þetta kemur fram í nýjum hugmyndum dönsku ríkisstjórnarinnar (Udvisningsreformen) um brottvísanir auk alþjóðlegra áforma um móttöku- og endursendingarmiðstöðvar utan Evrópusambandsins.
Við megum ekki hlaupa eftir hvaða óskum sem aktivístar halda á lofti, í grunnhyggni og þekkingarleysi, í trylltum ham á torgum heims, sem í mörgum tilfellum finnur sinn eina tilgang í lífinu að hamast í hinu og þessu, öllu sem gefur kikk og skekur jafnvægi. Það er engu líkara en friðleysið og öskrin sé þeim víma. Netið og samfélagmiðlar hafa valdelft marga auðnuleysingja og fylgifiska þeirra, sem hafa enga stefnu í lífinu, nema að öskra og hamast gegn öllum heilbrigðum gildum og stefnum þeim sem lagt hafa grunninn að Vesturlöndum.
EITT MANNKYN MEÐ SKYLDAR LÍFSREGLUR
Í frumkristni tókust svonefndir gyðingkristnir og heiðinkristnir á um túlkun á helgum textum, einkum úr arfi gyðinga þ.e. því sem kristnir kalla Gamla testamentið. Heiðinkristnir vildu ekki taka á sig skyldur sem var gyðingkristnum í blóð borið. Kollega minn (ÞJÞ) rifjaði það upp í samtali við mig um þessi mál, að hinir gyðingkristnu, féllust á það, að hinum heiðinkristnu, væri gert að fylgja lögmáli Nóa, sem kom á undan lögmáli Móse.
Og enn hjálpar GG og birtir mér samantekt:
Lögmál Nóa (Nóaítalögin) eru sjö lög sem samkvæmt gyðinglegri hefð áttu við um allt mannkyn eftir flóðið, en ekki bara Ísrael:
Bann við skurðgoðadýrkun: Að dýrka ekki aðra guði eða skapaða hluti en hinn eina sanna skapara.
Bann við guðlasti: Að sýna nafni og tign Guðs virðingu og formæla honum ekki.
Bann við manndrápi: Virðing fyrir mannslífinu; bannað er að taka líf annars manns.
Bann við kynferðislegu siðleysi: Bann við sifjaspellum, hórdómi og öðrum brotum gegn hjónabandinu og fjölskyldunni.
Bann við þjófnaði: Að virða eignarrétt annarra og stela hvorki né ræna.
Bann við grimmd gegn dýrum: Bann við því að svelgja eða neyta kjöts sem skorið hefur verið af dýri á meðan það er enn á lífi.
Skylda til að stofna dómstóla: Krafa um að samfélög setji upp réttarkerfi og dómstóla til að framfylgja réttlæti og refsa þeim sem brjóta lögin.
Í gyðingdómi er ekki gerð krafa um að aðrar þjóðir snúist til gyðinglegrar trúar, heldur er litið svo á að sérhver manneskja sem fylgir þessum sjö grundvallarreglum sé réttlát og eigi vísan stað í komandi heimi (Olam Ha-Ba).
Við lifum á róstursömum tímum. Mér finnst margt sem birtist í fréttum daglega minna á tíma Jesú. Gegn fréttum heimsins er vert að skoða fréttir Jesú – en orðið fagnaðarerindi, sem oft er notað um hans boðskap, merkir einmitt fréttir. Biblían er t.d. kölluð The Good News á ensku – Hin góðu tíðindi.
UPPLÝSINGIN OG FRANSKA BYLTINGIN
Ekki verður rætt um nútímann án þess að nefna Upplýsinguna og Frönsku byltinguna en hún réðst gegn valhöfum samtímans og lagði þá að velli. Þar gerðust margir hræðilegir atburðir eins og gjarnan fylgja byltingum. Aðallinn hafði illilega misnotað stöðu sína. En sigurvegarirnir ríktu og fögnuðu feitt en í skugga eigin illvirkja. Byltingar éta gjarnan börnin sín. Kóngur og kirkja voru ráðandi í landinu um aldir og á þeim sannaðist að allt vald spillir og alvald gjörspillir.
Sósíalisminn og kommúnisminn sigldu svo í kjölfarið og spyrja má um ávöxt þeirra isma. Vissulega var þörf á að brjóta á bak forréttindi kóngafjölskyldna og forréttinda-aðals fortíðar. Svo komu forréttindi hátt settra kommúnista á dögum Stalíns. Lestu skrif Viktors Kravtsjenko, Ég kaus frelsið (AB 1951), um reynsluna af Stalínstímanum. Ég las þessa bók sem unglingur og hef ætíð haft varann á mér gagnvart vinstrinu.
ILLIR ANDAR – HVAÐ ER TIL RÁÐA?
Ég lýk þessum þönkum með orðum úr 12. kafla Matteusarguðspjalls, versunum 22-28 er ber yfirskriftina, Guðs ríki komið:
22 Þá var maður færður til Jesú haldinn illum anda, blindur og mállaus. Hann læknaði hann svo að hinn mállausi gat talað og séð. 23 Allt fólkið varð furðu lostið og sagði: „Hann er þó ekki sonur Davíðs?“
24 Þegar farísear heyrðu það sögðu þeir: „Þessi maður rekur ekki út illa anda nema með fulltingi Beelsebúls, höfðingja illra anda.“
25 En Jesús vissi hugsanir þeirra og sagði við þá: „Hvert það ríki sem er sjálfu sér sundurþykkt leggst í auðn og hver sú borg eða heimili sem er sjálfu sér sundurþykkt fær ekki staðist. 26 Ef Satan rekur Satan út er hann sjálfum sér sundurþykkur. Hvernig fær ríki hans þá staðist? 27 Og ef ég rek illu andana út með fulltingi Beelsebúls, með hverju reka þá yðar menn þá út? Því skulu þeir vera dómarar yðar. 28 En ef ég rek illu andana út með Guðs anda, þá er Guðs ríki þegar yfir yður komið.
29 Eða hvernig fær nokkur brotist inn í hús hins sterka og rænt eigum hans nema hann bindi áður hinn sterka, þá getur hann rænt hús hans.
30 Hver sem er ekki með mér er á móti mér og hver sem safnar ekki saman með mér, hann sundurdreifir. 31 Þess vegna segi ég yður: Hver synd og guðlöstun verður mönnum fyrirgefin en guðlast gegn andanum verður ekki fyrirgefið. 32 Hverjum sem mælir gegn Mannssyninum verður það fyrirgefið en þeim sem mælir gegn heilögum anda verður ekki fyrirgefið, hvorki í þessum heimi né í hinum komanda.
Illir andar far nú um heiminn með eldi og ógn, sem bágbornar hugmyndir eða vanhugsaður ásetningur skammsýnna manna, sem þykjast sjáandi í því sívaxandi myrkri og upplausn, sem þeir sjálfir hafa til sáð.
LOKAORÐ
Vandi okkar er fjölþættur og snýr alls ekki eingöngu að framandi trúarbrögðum. Vandinn liggur í þeirri upplausn og taumleysi sem er fylgifiskur þess að gildin eru ekki virt. Þau hafa verið gengisfelld og jafnvel kastað gjörsamlega á glæ. Kannastu við borgirnar Sódómu og Gómorru í GT sem lagðar voru í rúst? Múslimar fyrirlíta okkur Vesturlandabúa vegna þess að nöfn þessara borga bera okkur að sumu leyti vitni að breyttu breytanda.
Þá hefur netvæðingin haft gríðarleg áhrif, einkum samfélagmiðlar – og Gervigreindin er orðinn stór breyta – sem við vitum ekki hvert muni leiða okkur. Tæknin hefur gert margt auðveldara í daglegu lífi fólks en um leið virðist hún gera okkur varanarlausari fyrir þeim óværum sem naga rætur menningar okkar.
Hver og hvað ver okkur best fyrir þessum óværum?
Ræðum það og leitum farsælla leiða!