Í lífsins ólgusjó er fátt mikilvægara en að hafa áttavita sem leiðir okkur í öllum atvikum lífsins, dimmviðri og sólskini, í mótvindi og meðvindi, leiðir okkur fram hjá skerjum og öðru sem grandað getur lífsfleyi okkar.

Viltu hlusta á höfundin lesa? Smelltu!
Magnað skáldverk og lífsprédikun
Ég er kominn í gegnum u.þ.b. helming hljóðritana RÚV á upplestri Illuga Jökulssonar á bókinni, Karamazov-bræðurnir eftir Fjodor Dostojevskí (1821–1881). Oft hef ég byrjað á að lesa verkið en gefist upp vegna þess að samtölin eru svo löng og persónugalleríiið svo stórt og nöfnin ruglingsleg því höfundur skiptir stöðugt milli rúsneskra skírnarnafna helstu persóna og gælunafna. En nú er ég semsagt að hlusta á upplesturinn á RÚV.
Á vef Forlagsins segir m.a.:
En það hefur komið fram m.a. í útvarpsþætti á RÚV þar sem Gunnar Þorri Pétursson segir frá því að séra Gunnar Árnason, fv. sóknarprestur í Húnavatnssýslu og síðar fyrsti sóknarpestur í Kópavogi hafi þýtt Karamazov bræðurna á íslensku. Hann þýddi verkið fyrst úr ensku en handritið var aldrei gefið út og týndist reyndar. Hann tók sig til aftur um það leyti sem hann komst á eftirlaun og þýddi allt verkið aftur og þá úr dönsku. En það var ekki heldur gefið út. Um þetta getið þið hlustað á Rúv: “Dostojevskí á meðal vor”.
Og meira af vef Forlagsins: “Sagan um Karamazov-bræðurna og saurlífissegginn föður þeirra er eitt frægasta skáldverk allra tíma og Sigmund Freud sagði það vera mögnuðustu skáldsögu sem skrifuð hefði verið.”
Margt er þar djúpt og snilldarlega orðað. Innsæi höfundar í þjóðfélagið, stefnur og strauma, að ekki sé nú talað um sálarlíf söguhetjanna. Þá koma fulltrúar Rússnesku rétttrúanaðarkirkjunnar, munkar, prestar og djáknar, mikið við sögu. Vintisburður þeirra í orði og verkum er hrífandi og það hvernig kirkjan var límið í öllu samfélgi manna, það sem hélt þjóðinni í andlegu skjóli í langri sögu.
Rétttrúaðarkirkjan
Til fróðleiks um Rétttrúnaðarkirkjuna eða Orþódoxu-kirkjuna þá er hún jafngömul þeirri sem kennd er við Róm. Helgisiðir þróuðust með ólíkum hætti í báðum þessum kirkjudeildum. Orþódoxa kirkjan hafði sínar höfuðstöðvar í Konstantínópel (Istanbúl) en sú Kaþólska í Róm. Árið 1054, tveim árum fyrir vígslu fyrsta biskups Íslands, Ísleifs Gissurarsonar, klofnaði kirkjan út af mismunandi túlkun á Níkeujátningunni frá 325, en hún er kenndi við borgina Níkeu í N-Afríku.
Nútíminn
Miklar væringar eru í heiminum á okkar dögum og ólga víða vegna þess m.a. hvernig mannlíf hefur þróast á Vesturlöndum og víðar. Tæknibyltingin hefur breytt svo mörgu og nú er það gervigreindin sem sögð er ógna heilum starfsgreinum. Ný tækni hefur ætíð losað hendur úr tilbreytingarlítilli vinnu og frelsað fólk úr erfiði og striti. Á bernskudögum afa minna og amma, voru t.d. engar vinnuvélar til, engar jarðýtur, engar gröfur, engar loftpressur, engir trukkar til að flytja jarðveg eða vörur. Menn mokuðu með skóflum. S.l. sumar komst ég að því að Bárður föðurafi minn í Bolungavík hefið keypt fyrstu landbúnaðarvélina í þorpið sem dreign var af hesti. Frændi minn þar í bæn sýndi mér ryðgaðan gripinn. Þá get ég gortað af því að hafa verið í vegavinnu sumarið 1965 og haldið um skaft handskóflu allt sumarið og mokaði grjóti og smásteinum úr hlössum af ofaníbúrði a.m.k. 8 tíma á dag! Fór svo í skóla í Reykjavík um haustið, grannur og spengilegur með Bítlaklippingu.
Ég hef fengið að reyna tæknibyltingar á mörgum sviðum. Og nú er það gervigreindin. Maður verður að læra að lifa með henni og nýta sér hana til að komast af. Við megum ekki daga uppi eins og náttröll við upprisu sólar. Með líkingunni er vísað í ævintýri og það minnir okkur á hvernig skáldskapur og sagnaritun hjálpar okkur til að skilgreina heiminn, náttúruna og sjálfa handanveruna, himinninn sjálfan. Ævintýri og tröllasögur er túlkanir á veruleikanum, sama má segja um bókmenntir almennt talað, kvikmyndir og alla miðlun manna. Menningin er leikur mannkyns og tilraun til að skilja veruleikann og tjá líf mann á þessar jörð.
Og þá kem ég aftur að Syninum í játningunni góðu. Enginn hefur breytt heiminum meir en Jesús Kristur, engin ein persóna í allri veraldarsögunni mótað heiminn með eins jákvæðum hætti og hann.
Hann er því áttavitinn sem ég vísaði til í upphafsorðum þessa spjalls.
Vandi margra í dag í upplýsingaflóðinu, er að týnast í því flóði og sjá vart út úr því. Ólíkar stefnur og straumar kalla á okkur og segja: Komdu til mín, ég veit svarið. Dostójevski hallaðist að félagslegum lausnum í anda sósíalisma á sem var i mótun á þeim tíma er hann lifði. Hann var fangelsarðu á keisaratímanum fyrir sínar pólitísku skoðanir árið 1849. Hann var dæmdur til dauða og var kominn á aftökustað þegar hann var látinn laus. Hann sneri sér að kirkjunni eftir það og skrifaði sín stórbrotnu verk um mannlífið þar sem hann kafar dýpra og flýgur hærra en flestir aðrir hafa gert fyrr og síðar.
Í flóði stefna og strauma er gott að eiga bjargfasta trú í hjarta. Hún er sem áttviti sem leiðir okku í gegnum lífsins ólgusjó.
Hvað læra börn í dag? Ég ólst ekki upp við mikla trúrækni en var sendur sem barn í barnaguðsþjónustur í þjóðkirkjunni. Börn í mínum heimabæ, Ísafirði, fóru a.m.k. sum í kirkjuna en fjölmenntu ennfremur á barnasamkomur á Her og minni hluti mætti hjá Hvítasunnumönnum í Salem. Kristnifræði var kennd í barnaskólanum og ennfremur í gagnfræðaskólanum. Í Stúkustarfi og hjá Skátum voru kristin gildi í heiðri höfð og svo mætti lengi telja. Þá var ég fermdur á 14. ári. Þegar ég var að nálgast 27. aldursár átti ég í rökræðum við trúað fólk um trúna. Sjálfur hafði ég nú ekki mörg verkfæri í þeim efnum í mínum fórum eða bóklega þekkingu á kristinni trú. Þá fór ég að lesa bækur, einkum vitnisburði fólks, sem hafði snúist til trúar eða vaknað til nýrrar vitundar, um sinn eigin trúararf. Barnatrúin býr í hjarta mannsins sem frækorn og ef það fær vökvun þá getur skírnarnáðin blómstrað og orðið að voldugu tré.
Og talandi um tré þá er viðeigand að lesa 1. Davíðssálm:
1Sæll er sá sem eigi fer að ráðum óguðlegra,
eigi gengur götur syndara
og eigi situr meðal háðgjarnra
2heldur hefur yndi af leiðsögn Drottins
og hugleiðir lögmál hans dag og nótt.
3Hann er sem tré gróðursett hjá lindum,
það ber ávöxt sinn á réttum tíma
og blöð þess visna ekki.
Allt, sem hann gerir, lánast honum.
4Óguðlegum farnast á annan veg,
þeir hrekjast sem hismi í stormi.
5Því hvorki standast óguðlegir fyrir dómi
né syndarar í söfnuði réttlátra.
6Drottinn vakir yfir vegi réttlátra
en vegur óguðlegra endar í vegleysu.
Menn finna leiðina á öllum aldri og í gær rakst ég á viðtal við breskan vísindamann sem þakkar guðleysingjanum og kollega sínum, Richard Dawkins, fyrir að hafa leitt sig á óbeinan hátt til trúar á Krist. Prófessor Andy Gosler lýsir því á myndbandi á Youtube, en hann var gyðingur og snerist til kristni og er nú prestur í Ensku biskupakirkjunni. Hér er slóð á frásögn hans:
Hvar er Kristur í samtímanum?
Nú má ekki tala um kristna trú í skólum. Minnihluti foreldra fer með börnum sínum í kirkju. Hvað með kvöldbænir og trúrækni?
Margt hefur breyst og ég er með þessari grein að benda á að fjöldi fólks, börn og fullorðnir, séu eins og í árabáti án áttavita í öllum hugsanlegum veðrabrigðum lífsins.
Allir ismarnir sem kalla á fylgjendur hafa ekkert af því í sér sem trúin á Guð hefur fært fólki um aldir og árþúsund. Mér finnst að ismarnir, sem reka hjarðir sínar um götur og torg í borgum heimsins, hafi fá svör nema ringulreið. Þar er enginn áttaviti, en margir fingur sem benda hingað og þangað.
Ég rita þessa þanka í Varsjá í Póllandi. Pólverjar hafa þurft að glíma við yfirgang og ofbeldi innrásarherja um aldir. Sovétríkin tóku yfir stjórnina í Pólandi á liðinni öld og kúguðu þjóðina í áratugi. Nýlega heimsótti ég byggingu vísinda og menningar í Varsjá sem reist var á tímum Stalíns. Gríðarlegar stór og glæsileg bygging, verð ég nú að segja. Ég fór með hraðlyftu uppá 30. hæð og tók þessa mynd. Hér kallast Menningar- og vísindahöll kommúnismans á við turna kapitalismans og ástarlásinn sem hangir í grindinni finnst mér líka geta verið tákn um fjötra bæði kommúnismans og kapitalismans, hvors fyrir sig í sinn verstu mynd.

Haldreipi Pólverja um aldir hefur verið trúin á Krist og kirkjan. Og nú eftir að þeir gengu í Evrópusambandið hefur margt breyst og þeir þurfa nú að hlýða mörgum fyrirmælum frá Brussel en þeir hafa skirrst við að taka inn fjölda flóttamanna einkum þeirra sem eru af framandi menningu og greitt sektir í staðinn. Þeir vilja verja sína kaþólsku menningu sem verið hefur þeim haldreipi um aldir. Fólk sem flytir inn í landið þarf nefnilega að aðlagast almennilega, inngildast á máli Wóksins!
Ísland í dag
Hvað með Ísland nú á tímum? Við höfum Þjóðkirkju sem er fjölmennasta trúfélagið, kaþólksku kirkjuna, fríkirkjur á lútherskum grunni, hvítasunnuhreyfinguna og fleiri smærri trúfélög kristin. En þeim fækkar sem eru skráð í kristin trúfélög og þar af leiðandi minnka tekjur kirkna, sókna og safnaða.
Þjóðkirkjurnar á Norðurlöndum glíma við fækkun og áhugaleysi. Hverjum er um að kenna? Ég hef engin einföld svör en ég get gefið mér þá skýringu að tíðarandinn og taumleysið á mörgum sviðum grafi undan menningunni og gildum hennar. Samfélagsmiðlar þar sem allir geta tjáð sig hafa áhrif. Þar er margt gott í boði en líka gífurlegt magn af bulli og taumleysi. Sumir netmiðlar á Íslandi hafa t.d. sérstrakan dálk um lauslæti. Við heyrum daglega um vanlíðan fólks sem fótar sig ekki í þessari ólgu og nær ekki áttum.
Ef við missum trúna á Krist og hans kærleiksboðskap, fyrirgefningu, miskunn og náð, þá óttast ég að við eigum eftir að upplifa óöld og ólgu í mannlífinu sem mun koma illa niður á fjölmörgum einstaklingum.
Aftur að Dostójevskí
Ég spurði Gervigreindina: “Hvernig kallast Dostójevskí í Karamazov bræðrunum á við Immanúel Kant?”
Dostójevskí tekst ekki beint við Kant með nafni, en Karamazov bræðurnir eru í raun löng og harðskeytt glíma við kantíska siðfræði og guðfræði. Ég nefni aðeins hluta af því sem kom.
„Ef Guð er ekki til, er allt leyfilegt.“ Þessi setning, sem Ívan er tengdur við, er andsvar við kantískri trú á að skynsemin ein geti grundvallað siðferðið (skilyrðislausa skylduboðið). Dostójevskí efast um að siðalög haldi án trúar. Hjá Kant er Guð reyndar „póstúlat [forsenda] verklegrar skynsemi“, en lögmálið sjálft stendur á skynseminni, ekki á opinberun eða ótta við refsingu.
Smerdjakov sem afleiðing skynsemishyggju. Smerdjakov dregur rökréttar ályktanir af hugmyndum Ívans og myrðir föðurinn. Dostójevskí sýnir þar hvernig rökfræðileg „frelsun“ frá siðaboðum getur leitt til glæps, og Ívan situr eftir með sektarkennd sem skynsemin ræður ekki við.
Sektarkennd og samviska. Kant leggur áherslu á skyldu og sjálfræði viljans. Dostójevskí leggur áherslu á ábyrgð allra gagnvart öllum („við erum öll sek“, eins og Zosíma segir) og á kærleika og iðrun sem leið til lífs, fremur en reglur og skyldu.
Í stuttu máli: Dostójevskí tekur kantíska siðfræði alvarlega en telur hana ófullnægjandi án lifandi trúar og kærleika. Rétt er að taka fram að margir fræðimenn sjá þetta frekar sem almenna glímu við upplýsinguna, Kant meðtalinn, en beina fílósófíska rökræðu við hann.
Frelsi sem byrði. Hjá Kant er frelsið uppspretta siðferðilegrar virðingar. Dostójevskí sýnir hina hliðina: frelsi samviskunnar er þungt, og fólk flýr það gjarnan í reglur, kraftaverk eða leiðtoga. Hann tekur því áhyggjur Kants alvarlega en er raunsærri um mannlega veikleika.
Svar Krists. Kristur ver sig ekki með rökum. Kossinn er svarið: hjá Dostójevskí er það kærleikurinn, ekki skynsemin eða reglan, sem stenst freistingu valdsins. Aljosha svarar Ívan á sama hátt og kyssir hann.
Siðferðileg trú. Í Trúarbrögðum innan marka skynseminnar einnar gagnrýnir Kant kraftaverk og kirkjulegt vald sem undirstöðu trúar. Hann vill trú sem byggist á siðferðilegri sannfæringu, ekki undrum. Inkvisitorinn gerir hið gagnstæða.
Ívan og Zosíma
Ívan hafnar heiminum með rökum. Þjáning barna er honum óyfirstíganleg, og hann segist eiga auðveldara með að elska mannkynið almennt en náungann. Siðferðileg reiði hans minnir á kantíska mannhelgi, en hún nær ekki að leiða til lífs.
Zosíma [gamli munkurinn] svarar ekki með rökum heldur með virkum kærleika: auðmýkt, fyrirgefningu og þeirri hugmynd að hver sé sekur gagnvart öllum. Trú hans vex af lífi, ekki sönnun.
Aljosha er yngsti Karamazov-bróðirinn, tæplega tvítugur þegar sagan hefst. Dostójevskí kallar hann „hetju“ sögunnar, og hann er sá sem flestir í kringum hann treysta og trúa fyrir leyndarmálum sínum.
Uppvöxtur. Móðir hans, Sófía, lést þegar hann var barn. Faðirinn, Fjodor Pavlovitsj, sinnti honum varla, og hann var alinn upp hjá ættingjum. Hann man þó eftir móður sinni, sem bað fyrir honum frammi fyrir helgimynd, og þetta minni fylgir honum alla ævi.
Klaustrið og Zosíma. Hann gengur í klaustur í bænum og verður lærisveinn öldungsins Zosíma. Hann er ekki hlédrægur einfari, heldur heiðarlegur, hlýr og laus við dómhörku. Zosíma sendir hann þó út í heiminn: hann á að lifa meðal fólks, ekki fela sig fyrir því.
Bræðurnir. Aljosha [trúaði bróðirinn] er einskonar miðlari milli bræðranna. Dmitri trúir honum fyrir ástarmálum sínum, Ívan opnar sig fyrir honum í samtalinu um stórinkvisitorinn, og faðirinn sjálfur treystir honum. Hann dæmir engan, hlustar og er til staðar.
Trúarkreppan. Þegar Zosíma deyr og líkami hans fer að rotna (sem sumir töldu merki um óhelgi) hristist Aljosha. Hann verður reiður og bitur og fer um stund í kráarferð með Rakítín. En í kjölfarið á hann djúpa upplifun við kistu Zosíma, grætur og kyssir jörðina. Trúin kemur upp úr þessu endurnýjuð, sprottin af lífsreynslu en ekki kenningu.
Börnin. Undir lok sögunnar tengist hann hópi drengja í kringum hinn deyjandi Iljúsjenka, og lokaræðan við steininn er hans stund: hann hvetur þá til að geyma góðar minningar og halda saman. Þar sést svar bókarinnar við Ívan: ekki rök, heldur kærleikur í verki.
Tengingin við fyrri umræðu. Aljosha er andstæða bæði Ívans og kantískrar skylduhyggju. Hann breytir ekki eftir lögmáli sem skynsemin setur honum, heldur af sjálfsprottinni samúð. Dostójevskí vill sýna að slíkt líf geti staðið gegn spurningunum sem Ívan ber upp, án þess að svara þeim fræðilega.
Rétt er að nefna að Dostójevskí ætlaði að skrifa framhaldssögu um Aljosha sem fullorðinn mann, en lést áður en af því varð.
Þessi umfjöllun GG er í senn ítraleg, djúp og breið eins og segir í barnasöngnum:
Djúp og breið, djúp og breið,
það er á sem rennur djúp og breið.
Djúp og breið, djúp og breið,
það er á sem rennur djúp og breið.
Og hún rennur til mín og hún rennur til þín,
og hún heitir lífsins lind.
Hallelúja, hún er djúp og breið,
djúp og breið, það er á sem rennur djúp og breið.
Og enn glímir fólk við Guð, í það minnsta sumir.
En í massanum sniðgengur margur algjörlega þær pælingar allar, því það er svo mikil vinna að fylgjast með vefnum og skemmtanalífinu, fylgjast með tilboðum á kjarapöllum kynjanna og fáfengileik heimsins.
Lokaorð
Ég hef þá sannfæringu að heimurinn þekki enga hugmyndafræði sem er viðlíka djúp og breið, há og víðfeðm, eins og kristnin. Engin hugmyndafræði hefur fært heimininum viðlíka gæði og réttlætishugmyndir Gamla testamentisins og kæreleiksboðskapur Krist í því Nýja. Vesturlönd eru mótuð af gyðing-kristinni trú.
Hvetjum samferðafólk okkar til að leita í þann dýrmæta arf og finna áttavitann í þeirri von og trú að sem allra flestir komist heilir í gegnum lífið og nái til hafnar í trú, von og kærleika.
Heyrum að lokum óðinn um kæreleikann eftir Pál postula í I. Korintubréfi 13. kafla:
Kærleikurinn mestur
1Þótt ég talaði tungum manna og engla
en hefði ekki kærleika
væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
2Og þótt ég hefði spádómsgáfu
og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking
og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú að færa mætti fjöll úr stað
en hefði ekki kærleika,
væri ég ekki neitt.
3Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum
og þótt ég framseldi líkama minn til þess að verða brenndur
en hefði ekki kærleika,
væri ég engu bættari.
4Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki.
Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
5Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin,
hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
6Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni en samgleðst sannleikanum.
7Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
8Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok,
og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok.
9Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum.
10En þegar hið fullkomna kemur líður það undir lok sem er í molum.
11Þegar ég var barn talaði ég eins og barn,
hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn.
En þegar ég var orðinn fulltíða lagði ég niður barnaskapinn.
12Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu,
en þá munum vér sjá augliti til auglitis.
Nú er þekking mín í molum
en þá mun ég gjörþekkja eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn.
13En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt,
en þeirra er kærleikurinn mestur.