Category: Heimsmálin – stjórnmál, stíð og átök,

  • Þankar á viðsjárverðum tímum

    Viltu hlusta í 14 mínútur?

    Les þessa dagana í Lúkasarguðspjalli. Tek fyrir einn eða tvo textabúta sem afmarkast af millifyrirsögnum. Neðanmáls eru sömu textar á mynd úr gríska Nýja testamentinu en á þeirri tungu voru þeir ritaðir upphaflega.

    Nýlega las ég þetta:

    Tákn (Lúkas 21.20-24)

    20 En þegar þér sjáið herfylkingar umkringja Jerúsalem, þá vitið að eyðing hennar er í nánd. 21 Þá flýi þau sem í Júdeu eru til fjalla, þau sem í borginni eru flytjist burt og þau sem eru á ekrum úti fari ekki inn í hana. 22 Því þetta eru refsingardagar, þá er allt það rætist sem ritað er. 23 Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum því að mikil neyð mun þá verða í landinu og reiði yfir þessum lýð. 24 Menn munu falla fyrir sverðseggjum og verða herleiddir til allra þjóða og framandi þjóðir munu fótum troða Jerúsalem þar til tímar heiðingjanna eru liðnir.

    Títus keisari eyðir Jerúsalem. Málverk eftir franska málarann Nicolas Poussin frá 17. öld.
    (more…)
  • Hugvekja eftir Örn Bárð Jónsson

    Ég byrja daginn gjarnan á að lesa í Biblíunni og biðja. Í Nýja testamentinu kom ég að þessum texta í 21. kafla Lúkasarguðspjalls þar sem ég er staddur nú og sit við eldhúsborðið í Varsjá í Póllandi.

    Ég les textann bæði á íslensku og á grísku til þess að rifja upp frummálið og auka orðaforðann þeim megin.

    Viltu hlusta í rúmar 8 mínútur?

    Jesús kenndi oft með dæmisögum og með ýktum stíl og yfirdrifnum, en það heitir að tala í hýberbólum. Orðið er gegnsætt og við þekkjum íslenska tökuorðið og lýsingarorðið hýber sem merkir að eitthvað sé yfir mörkum og bóla sem vísar í eitthvað uppblásið. Jesús talaði oft í slíkum stíl til að ögra og ýta undir ímyndunarafl fólks og svo beitti hann gjarnan ríku myndmáli.

    Ekkert er nýtt undir sólinni, en til er eitthvað gamalt sem við þekkjum ekki. Myndin er fengin að láni af Vefnum og hún er merkt höfundi
    en hugvekjan er algerlega mín.

    Heyrum hina þekktu sögu um konuna sem á að vera okkur fyrirmynd um aldir og eilífð:

    (more…)
  • Heimur, hamingja, hugmyndafræði, hamfarir

    Laugardaginn 17. október s.l. ræddi ég við dóttur mína sem býr á meginlandi Evrópu í myndsíma. Hún var þá í sambandi við dóttur sína sem er við nám í annarri borg þ.e. í Frakklandi. Ég tengdist þeim báðum. Myndsíminn sýndi æstan múg á götunni fyrir utan heimili dótturdóttur minnar.

    Viltu hlusta? Smelltu!

    Kveikt hafði verið í bálkesti á götunni og æst fólk æddi fram og aftur. Eftir smátíma var komin lögregla á svæðið. Hópur þeirra myndaði röð við næstu gatnamót, þeir fóru sér hægt og hreyfðu sig yfirvegað og rólega, færðust nær mótmælendum. Þá fór að sjást reykur frá táragashylkjum sem fylltu andrúmsloftið á svæðinu og hafði áhrif á fólk. Hægt og bítandi gekk lögreglan fram og leysti hópinn upp. Ég sá ekki annað en að hún hefði farið fram af yfirvegun og fagmennsku.

    (more…)
  • Grein úr Jerusalem Post eftir
    MICHAEL FREUND

    Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, og eiginkona hans Michelle við minningarathöfn í tilefni af 25 ára afmæli hryðjuverkaárásanna 11. september, í New York.
    (Ljósmynd: Adam Gray/Reuters)

    GREININ

    1. október 2026, kl. 23:47
      Barack Obama virðist hafa uppgötvað nýjan sögulegan glæp: Gyðingaþjóðin stal sínu eigin heimalandi.

    Það er að minnsta kosti sú tilfinning sem situr eftir af nýjustu tilraun hans til að endurskrifa sögu Mið-Austurlanda.

    Í ræðu sem hann flutti í Belfast þann 13. október tókst fyrrverandi forseta Bandaríkjanna að breyta endurkomu Gyðinga til Ísraelslands í sögu um ofsótta evrópska Gyðinga sem leituðu skjóls, tóku land af Palestínumönnum og kölluðu þannig fram skiljanlega kröfu um að fá landið aftur.


    Látum liggja á milli hluta 3.000 ára sögu Gyðinga, tvö musteri í Jerúsalem og aldalanga þrá Gyðinga eftir Síon. Samkvæmt frásögn Obama urðu Gyðingar, einhvern veginn, að utanaðkomandi aðilum í því landi þar sem þjóðarsaga þeirra hófst.

    (more…)
  • úr Wall Street Journal

    Rangfærslur hans á sögu gyðinga virðast vel ígrundaðar – sem gerir sárið enn dýpra.

    Eftir

    Elisha Wiesel

    Faðir greinarhöfundar, Eli Wiesel með Barak Obama

    19. október 2026, kl. 14:10 ET – Greinin var þýdd af Google Translate og ögn lagfærð af lesara.

    Viltu hlusta? Smelltu!

    Í apríl 1985 stóð faðir minn í Hvíta húsinu til að taka við Gullverðlaunum þingsins (Congressional Gold Medal) úr hendi Ronalds Reagan – forseta sem hann bar hlýjan hug til og virti. Hann bað Reagan þá um að hætta við fyrirhugaða heimsókn til Bitburg, þýsks kirkjugarðs þar sem liðsmenn Waffen-SS-sveita Hitlers voru grafnir. „Þessi staður, herra forseti, er ekki staður fyrir yður. Staður yðar er hjá fórnarlömbum SS-sveitanna.“ Faðir minn hrópaði ekki. Hann dró ekki í efa góðan ásetning Reagans. Hann sagði við vin sinn, í heyranda hljóði, að orð og gjörðir gætu valdið sársauka og þjáningu, jafnvel þótt slíkt væri ekki ætlunin.

    (more…)
  • Kona sem veit, þekkir og skilur, skrifar skilaboð til okkar allra

    Viltu hlulsta í innan við 6 mínútur?

    Fawzia Zouari

    Fawzia Zouari, rithöfundur frá Túnis, blaðakona og doktorshafi í frönskum- og samanburðarbókmenntum frá Sorbonne-háskóla, birti þessa grein um að henni væri nóg boðið í blaðinu Jeune Afrique. Hún er hugrökk en ég er ekki viss um að allir skilji það. Ég mæli með lestri.

    (more…)
  • eftir Örn Bárð Jónsson

    Merkilegt hefur verið að upplifa viðbrögð við grein sem ég ritaði nýlega og birti í DV og tel mjög upplýsandi um áhrif islam í heiminum. Greinin ber yfirskriftina Taktu þér stöðu. Þar er því m.a. haldið fram að 3. heimstyrjöldin sé þegar hafin og framrás islam á Vesturlöndum staðreynd.

    Vilstu hlusta á höfundinn lesa textann? Smelltu hér:

    Fjöldi þeirra sem létu sér líka greinina er margfaldur við þá sem eru á öndverðum meiði en úr síðari hópnum eru ótrúlega margir sem geta ekki hamið sig í samskiptum við annað fólk, kunna hvorki háttvísi né samræðulist.

    (more…)
  • Ég hef ítrekað vitnað í Jürgen Habermas, einn frægasta heimspeking Evrópu á síðustu öld og þessari. Hann lést í vor er leið. Habermas (18. júní 1929 – 14. mars 2026) var þýskur heimspekingur og þjóðfélagsfræðingur sem fylgdi hinni svoenfndu krítísku hefð og raunhyggju (critical theory og pragmatism).

    Hann sagði að Vesturlönd ættu alla sína verlferð og grunn að þakka Biblíunni og nefndi hugtakið réttlæti í túlkun gyðinga í GT og kenningu Krists um kærleikann. Á þessum hugtökum er dómskerfi Vesturlanda byggt, mannréttindi, mannhelgi og allt sem við teljum tilheyra siðuðu samfélagi. Habermas var guðleysingi NB!

    Þessi sama hugsun kemur skýrt fram í viðtali sem John Anderson, fv. varaforsætisráðherra Ástralíu tók við Melanie Phillips, blaðakonu sem er gyðingur og skrifar mikið um heimsálin.

    Hvað hefur hún að segja um heiminn í dag og Vesturlönd spólandi föst í hjólförum villunnar. Tek það fram að samlíkingin er mín. En hér kemur viðtalið. Ef tengillinn sést ekki, smelltu þá á auða svæðið!

    https://www.facebook.com/plugins/video.php?height=314&href=https%3A%2F%2Fwww.facebook.com%2Freel%2F1203206545298722%2F&show_text=false&width=560&t=0

    https://fb.watch/v/4hAZqKlky/?fs=ehttps://fb.watch/v/4hAZqKlky/?fs=e

  • Dr. Jay Smith er þekktur fræðimaður sem gjörþekkir Kóraninn og islam.

    Horfum og hlustum!

    Smelltu á slóðina:

    -4?is=ceHMdWI1NgAm7Qfc

  • Merkilegur fyrirlestur Helen Andrews um framþróun feminisma og hvernig konur hafa breytt heiminum.

    Afar yfirveguð umfjöllun sem bæði konur og karlar verða að heyra!!!

    Tekið skal fram að ritstjóri síðunnar valdi ekki myndina sem kemur upp fremst í þessu myndbandi. Fyrirlesarinn er aftur á móti yfirveguð kona og ógrettin sem flytur frábæran fyrirlestur án upphrópana eða æsings.

    Smelltu á myndina

    .be/S7d_Hzu16Rs?is=e7BhD4Hncf_6a7UO