Category: Myndlist / My Art

  • Viltu hlusta? Smelltu á tengilinn:

    Nú í sumar 2026 hefur Borgarstjórn afturkallað lóð sem úthlutað hafði verið gefins til samfélags múslima í sjálfu “borgarhliðinu” þar sem stofnbrautir mætast úr vestri og suðri. Því ber að fagna enda sýnir islam það um allan heim að sú trú er til vandræða því hún er úrelt miðaldafyrirbrigði sem á ekkert sameiginlegt með vestrænni menningu.

    (more…)
  • Þúfan blasi við úr glugga í Skugga I
    Sólfarið
    Skessuhorn gægist í gegn um verk Jóhanns Eyfells við Sæbraut
    Vitinn við Höfða og Laugarneshverfið í baksýn
    Höfði og minnismerki, gjöf fv. sendiherra BNA
    Skuggahverfi I
    Albertsbúð við Gróttuvita og Snjæfellsjökull
    nánast kominn í bæinn fyrir áhrif ljóss og logns
  • Hjónakornin ræða málin í þaula og skilgreina.

    6.11.2026

    28.10.26/2

    28.10.26

    15.10.26

    14.10.26

    11.10.26

    1.10.26

    28.9.26

    24.9.26

    23.9.26

    Verkfall flugvirkja.

    21.09.26

    Tillaga Didda um nýtt merki grunnskólanna.

    19.09.26

    18.09.26

    Lónin og kirkjan

    Pisakönnunin áfram til umræðu.

    Blessuð börnin – og kennararnir!

    Ríkisstjórnin ætlar að hækka kílómetragjaldið.

    7. 9.2026

    Vendingar með lýðræðisveizlu!

    Þegar menn semja sinn eigin sannleik.

    Að lokinni kosningu um EU 29.8.26

    Kosningardaginn 29. ágúst 2026
    28.8.2026
    26.8.2026
    Þau eru með’etta á hreinu!
    25.8.26
    20.8.26
  • Fór á hjóli í Gömlu borgina í Varsjá

    undir lok júní ’26 til að teikna

    og svo ók ég hring um Reykjanesið í gegnum Grindavík,

    út á Reykjanes og þaðan í Hafnir og Hvalsnes, Sandgerði og Garð sunnudaginn 26. júlí 2026

    Nýtízku turnar kapítalismans kallast á við gamla borgarmúrinn í Varsjá
    sem reistur var af kapítalistum þess tíma!
    Reykjanesviti og nágrenni
    Eldey stendur vörð á sínum stað
    Undir “ilinni” á Reykjanesi
    “þar sem
    Jökulinn ber við loft”.

    Kirkjuvogur í Höfnum sem var annexía mín er ég þjónaði sem sóknarprestur í Grindavík 1985-1990
    Hvalsneskirkja og hús á “ilinni” með jökulinn í baksýn
    Gamli Garðskagaviti og hinn nýi og allsstaðar minnir Jökullinn á sig!
  • Náði mér í nýjar skissubækur á Netinu og Tombow penna sem eru skemmtilegir til að byrja skissur með, leggja grunn og skilgreina form. Síðan má halda áfram og lita með samskonar pennum eða beita vatnslitum. Hér eru nokkrar skissur gerðar með þessari aðferð.

    Esjan eftir minni enda komin í mig heimþrá!
    (more…)
  • Síðustu daga hefur verið heitt en ekki þó yfirþyrmandi

    Hlutir
    Fjölbýlishús í götunni
    Esjan eftir minni
    Sóldýrkendur í skrúðgarði
    Horft af hæð
    Gamli borgarmúrinn
    Virðulegur inngangur
    Þjóðarleikvangurinn og brúarstólpi svifbrúar
  • Þegar ein beygja í lífinu breytir miklu

    Stundum þarf maður að brjótast út úr aðstæðum.

    Nýleg hjólaði ég í miðborg Varsjár til þess að kaupa nýjar skissubækur.

    Fann þær í góðri búð og keypti þrjár.

    Þær kostuðu hver um sig eins og skáldsaga

    enda þótt í þeim væru ekki staf að finna.

    Bækurnar þrjár eru frá Þýskum framleiðanda

    sem heitir Hahnemühle og kostuðu 14 þúsund ÍKR.

    Ég þurfti smá atrennu til að byrja á fyrstu bókinni

    v.þ.a. mér fannst ég fastur í einhverjum gír og það þarf áræðni til að byrja á nýrri, dýrri bók.

    Og svo fór ég á vefinn og fann hann Toby sem er skissari sem hefur léttan stíl og frjálsan. Sjá tengil neðanmáls.

    Ég hef oft séð myndbönd með honum og nú kíkti ég aftur á kallinn.

    Og viti menn.

    Ég fann aftur þennan lausa stíl, opnaði fyrstu dýru bókina

    og hóf að skissa.

    Hér eru nokkrar . . .

    Smelltu á áfram til að skoða!

    Á Hygge með íslenskum vini
    (more…)
  • Í dag hjólaði ég í miðborgina í 27 gráðu hita og sól.

    Yndislegt veður og þægilegt.

    Ég stefndi á “Stalíns-tertuna”

    og turnana sem kallast á við þá stóru og miklu byggingu.

    Ég skissaði með blýanti og svo málaði ég fyrsta vask, eins og það er kallað á vatnslitamáli.

    Tók skissuna svo heim og kláraði hana þar.

    Hér eru tvær myndir,

    önnur af fyrsta vaski

    og hin af verkinu loknu.

    Segja má að hér kallist á

    kommúnisminn og kapitalisminn

    með þessum miklu turnum.

    Hér fer fyrsta vask komið á pappírinn
    Og hér er myndin
  • Í gær, 17. júní, hjólaði ég að Vistúlu og málaði þar mynd af þjóðarleikvangi Pólverja sem er við ána en margar brýr tengja borgarhluta m.a. ný göngubrú sem er hreint listaverk hvað hönnun varðar. En nú var ég við gamla brú og teiknaði og málaði á staðnum.

    Hina myndina málaði ég fyrir u.þ.b. mánuði í gamla borgarhlutanum.

    Poniatowskiego brúin og þjóðarleikvangurinn,
    PGE Naradowy,
    veitingabátur og ræðarar á báti sem minnir á spjót
    Gamli bærinn þar sem Sigismundur Vasa III
    konungur trónir á súlu
    með kross og brand en hann var sænskur
    og flutti aðsetur sitt frá Krakow til Varsjár 1596.
  • Þetta eru skissur, sumar teiknaðar og málaðar mjög hratt, aðrar hægar, sumar þokkalegar og aðrar fá að fljóta með þrátt fyrir byrjendabrag sinn. Þetta er bara dægrastytting sem gaman er að glíma við.

    Takið viljann fyrir verkið!