grein eftir Örn Bárð Jónsson · október 2026

Viltu hlusta á höfundinn lesa? Smelltu hér:
Í orðræðu á samfélagsmiðlum, þar sem talað er í símskeytastíl í hita leiks, fer ýmislegt forgörðum. Umræðan verður oft að eintómum upphrópunum og sleggjudómum. Sumir hafa bókstaflega hraunað yfir mig og ég í sumum tilfellum brugðist við þeim yfirgangi. Í hita leiksins geta menn svitnað og glíman orðið römm. Menn hjóla oft í manninn en ekki málefnið, ad hominem en ekki argumentum ad rem eins og það heitir í fræðunum. Ráðist er á manninn en ekki textann: „Þú er prestur . . . “ o.s.frv. í miklum hneykslunartón.
Ég settist niður og ritaði grein sem ég hef marg leiðrétt, legið yfir og lagað og loks unnið í samvinnu við góða ráðgjafa, þar á meðal gerivigreind, sem hefur skerpt margt af því sem var í frumtexta mínum, en leiðrétt annað. Ég leyfi mér að taka það fram að mér hefur líka tekist að leiðrétta gervigreindina – og hún viðurkenndi það! Gervigreindin (GG) ritaði ekki greinina en ég fékk hana til að lesa textann og gefa ráð.
Mikilvægt er að menn skoði vel afstöðu sína til alvarlegra mála sem eru í umræðunni og rökræði hana við þá sem eru tilbúnir til að leiðrétta með „hógvæðar anda“ eins og sagt er í Hinni helgu bók.
Hér kemur afurðin:
Friðarsinni eða pasifisti?
Friðarsinni vill frið og vinnur gegn stríði, en getur samþykkt hervarnir sem neyðarúrræði. Pasifisti hafnar ofbeldi af grundvallarástæðum, líka í sjálfsvörn. Allir pasifistar eru því friðarsinnar, en ekki eru allir friðarsinnar pasifistar.
Í daglegu máli rennur þetta saman, en munurinn skiptir máli hér. Gandhi er oft nefndur sem pasifisti, þótt hann hafi frekar aðhyllst ofbeldislausa andspyrnu fremur en aðgerðaleysi. Spurningin sem þessi grein glímir við er: hvenær, ef nokkurn tíma, er réttmætt að beita valdi til að verja líf og frelsi?
Íslendingar í skjóli annarra
Ísland sem þjóð var hvorki pasifisti né þátttakandi í síðari heimsstyrjölinnid: það var hlutlaust að nafni til en í reynd hernumið. Landið lýsti yfir ævarandi hlutleysi við fullveldið 1918 og átti engan her. Bretar hernámu það 10. maí 1940 og íslensk stjórnvöld mótmæltu því sem broti á hlutleysinu. Bandaríkin tóku við vörnum landsins sumarið 1941 samkvæmt samkomulagi við íslensk stjórnvöld.
Ísland sagði ekki Þýskalandi og Japan stríð á hendur fyrr en 21. febrúar 1945, til að tryggja sína aðild að Sameinuðu þjóðunum. Íslenskir sjómenn fórust í árásum kafbáta og flugvéla. Efnahagurinn tók stakkaskiptum þegar atvinnuleysi hvarf. Meirihluti þjóðarinnar hafnaði nasisma, en gagnrýnt hefur verið hversu treg stjórnvöld voru til að veita gyðingaflóttamönnum hæli fyrir stríð.
Bandamenn unnu stríðið, ekki við. Við vorum eins og börn í skjóli fullorðinna. Það ætti að gera okkur auðmjúk þegar við dæmum þá sem þurfa að verja sig með vopnum.
Hamas
Hamas eru íslömsk öfgasamtök sem Bandaríkin, Evrópusambandið og fleiri ríki flokka sem hryðjuverkasamtök. Þau unnu þingkosningar 2006, tóku völdin á Gasa 2007 eftir átök við Fatah og hafa ekki látið kjósa síðan. Ísrael hafði dregið herlið og landnemabyggðir frá Gasa 2005.
Hinn 7. október 2023 réðust Hamas-liðar inn í Ísrael, drápu um 1.200 manns, að stærstum hluta óbreytta borgara, og tóku um 250 í gíslingu. Þetta var hryðjuverk, hvernig sem á það er litið.
Hamas er vopnaður íslamskur hópur, en ekki eru allir Palestínumenn eða allir múslimar Hamas-liðar.
Hamas samtökin hafa byggt víðtæk göng undir Gasa og eru sökuð um að geyma vopn og stjórnstöðvar í og nálægt almennum byggingum, þar á meðal skólum og sjúkrahúsum. Skjalfest er að hluti hjálparfjár og efnis hefur runnið til hernaðaruppbyggingar og að leiðtogar samtakanna hafa lifað við góð kjör erlendis, meðal annars í Katar. Um umfang þessa er deilt, og engin gögn sýna þó að allt fé hafi horfið.
Þetta eru rök gegn Hamas, ekki gegn Palestínufólki eða múslimum. Íbúar Gasa eru fyrst og fremst fórnarlömb, bæði stríðsins og stjórnar Hamas, og mótmæli gegn samtökunum hafa komið upp þar, þótt þau hafi verið bæld niður. Múslimar eru yfir milljarður manna í ólíkum löndum og margir þeirra hafa sjálfir orðið fyrir barðinu á sömu öfgahópum. Baráttan gegn Hamas beinist gegn tilteknum vopnuðum samtökum og hugmyndafræði þeirra.
Ísrael og rætur gyðinga á svæðinu
Tengsl gyðinga við landið eru þrjú þúsund ára gömul. Merneptah-steinn Egypta frá um 1208 f.Kr. nefnir Ísrael og er elsta þekkta heimildin utan Biblíunnar um þjóð með því nafni í Kanaan. Fornleifar sýna fjölda smáþorpa í hálendinu um 1200–1000 f.Kr., og ríkið Júda með Jerúsalem að höfuðborg verður áberandi á 10.–9. öld f.Kr. Fræðimenn deila um hversu stórt ríki Davíðs og Salómons var. Nafnið Júdea var síðar notað um héraðið á persneskum, hellenískum og rómverskum tíma.
Nútímasíonisminn varð til á 19. öld. Theodor Herzl, sem starfaði frá um 1890 og lést 1904, gaf út Der Judenstaat, Ríki gyðinga, árið 1896 og kallaði saman fyrsta síonistaþingið í Basel 1897. Gyðingurinn, Stefan Zweig, höfundur bókarinnar Veröld sem var, var ekki fylgjandi hugmyndum hans, og margir gyðingar studdu þær ekki heldur. Eftir helförina, þar sem um sex milljónum gyðinga var útrýmt skipulega, fjölgaði þeim sem töldu eigið ríki nauðsynlegt til að tryggja öruggt skjól.
Ísrael var stofnað 1948. Réttur þess til tilveru og sjálfsvarnar er í mínum huga hafinn yfir allan vafa. Sagan hefur þó á sér fleiri hliðar: arabaríkin höfnuðu skiptingaráætlun Sameinuðu þjóðanna, og í stríðinu 1948 flúðu eða voru hraktir á brott fjöldi Palestínumanna. Ekki má gleyma því að nágrannaríkin Egyptaland, Sírland og Líbía réðust inn í Ísrael á stofndegi þess. Þegar arabar réðust á Ísrael sama ár og ríkið var stofnað 1948, sendu þeir boð til múslima í landinu, um að yfirgefa heimili sín og skilja húsin eftir tóm handa hermönnum innrásarliðs araba. Þeim var lofað að snúa síðan aftur til síns heima. Múslimarnir hlýddu en töpuðu þessari rimmu og sneru svo flutningi múslimanna upp í það að þeir hefðu flúið Ísrael af völdum ofsókna gyðinga.
Er til málstaður til að deyja fyrir?
Lennon söng í ljóðinu Imagine um heim án landamæra og trúarbragða, þar sem ekkert væri til að drepa fyrir eða deyja fyrir. Þetta er fögur hugmynd við fyrstu sýn og Lennon var án efa einlægur friðarsinni. Því er það þyngra en tárum taki að hann skyldi falla fyrir byssuskoti brenglaðs manns. En sýnin svarar ekki spurningunni: hvað gerum við þegar aðrir vilja drepa okkur? Að sumra mati talar Lennon hér eins og óraunsær draumóramaður sem skortir jarðtengingu.
Síðari heimsstyrjöldin er skýrasta dæmið. Bandamenn sprengdu þýskar borgir í rúst, saklausir borgarar fórust. Flestir telja að ekki hafi verið hægt að horfa aðgerðalaus á nasismann útrýma gyðingum. Þar liggur kjarni kenningarinnar um réttlátt stríð: málstaðurinn þarf að vera réttur, valdbeiting síðasta úrræði, og aðferðirnar í réttu hlutfalli við markmiðið og greina á milli hermanna og óbreyttra borgara.
Líkingin við Gasa á við að því marki að til eru andstæðingar sem semja ekki: sumir leiðtogar Hamas hafa sagt opinberlega að þeir vilji endurtaka árásina 7. október 2023. Hamas er ekki ríki með her á borð við Þýskaland nasismans, en samt eru þeir þungvopnaðir og eiga tæknivæddar drápsvélar og stríðið er háð á þéttbýlu svæði, þar sem óbreyttir borgarar eiga sér fáar útgönguleiðir.
Munurinn á því að Hamas fórni sér fyrir eigin trú og fórnum vestrænna hermanna liggur ekki í því, að deyja, heldur í því hver ákveður það. Hermaður sem fer í stríð fyrir frelsi velur áhættuna sjálfur. Þegar vopn og stjórnstöðvar eru í íbúðarhverfum eru óbreyttir borgarar settir í hættu án þess að hafa nokkurt val.
Sterkustu mótrökin
Flestir gagnrýnendur Ísraelsríkis andmæla ekki rétti þess til að verjast, heldur því hvernig það er gert. Grein sem tekur ekki á því er ófullnægjandi. Helstu álitamálin eru þessi:
Mannfall. Heilbrigðisyfirvöld á Gasa, sem lúta Hamas, telja tugi þúsunda látna, þar á meðal mörg börn. Tölurnar eru umdeildar, en sumar óháðar rannsóknir telja þær í meginatriðum trúverðugar.
Hlutfallshóf. Er mannfall og eyðilegging í réttu hlutfalli við hernaðarlegan ávinning? Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn gaf út handtökuskipanir á hendur bæði ísraelskum ráðamönnum og leiðtoga Hamas, og mál er rekið fyrir Alþjóðadómstólnum. Ísrael hafnar ásökununum.
Viðvaranir. Ísraelsher hefur oft varað íbúa við árásum, sem er sjaldgæft í hernaði. En margir hafa hvergi öruggan stað að flýja til, og ekki er alltaf varað við.
Hjálpargögn. Skortur á mat og læknishjálp á Gasa hefur verið alvarlegur, og deilt er um hvort sökin liggi hjá Ísrael, Hamas eða báðum.
Vesturbakkinn. Landnám og ofbeldi sumra landnema þar, tengjast ekki Hamas og veikja málstað Ísraels í augum margra.
Svarið er ekki að skella allri skuldinni á annan aðilann. Hamas ber ábyrgð á því að hafa hafið stríðið, tekið gísla og teflt óbreyttum borgurum í hættu. En það leysir Ísrael ekki undan skyldum alþjóðalaga: sá sem verst með réttu verður líka að verjast rétt.
Sumir sem mótmæla á Vesturlöndum gera það vegna mannfallsins, af mannúð, og eiga auðvitað í strangasta skilningi að fá að gera það, án þess að vera kallaðir stuðningsmenn Hamas. Í sumum tilfellum er stuðningurinn við Hamas/Palestínufólk þó litaður af klassísku gyðingahatri. Þar sem hrópað er til stuðnings Hamas eða ofbeldið gegn gyðingum er upphafið, er ástæða til að andmæla. Gyðingahatur á sér langa sögu í Evrópu og vaknar því miður aftur þegar deilur magnast.
Lokaorð
Stríð og átök eru eins og krabbamein í blóði heimsins og við þráum öll að fá að lifa í friði. En friður fæst ekki alltaf með því einu að vilja hann. Spurningin er ekki hvort ofbeldi sé illt, heldur hvenær og hvernig megi verjast því.
Fyrir þremur árum heimsótti ég Jerúsalem. Ég var viðstaddur við helgihald í sýnagógu á föstudagskvöldi, hlýddi á múslimskan fræðimann útskýra Kóraninn í rúman klukkutíma við annað tækifæri og messaði síðar við Galíleuvatn, þar sem fiskimennirnir réru til fiskjar sem síðar stofnuðu kirkjuna. Það var heilög stund. Ég fór víða um Jerúasalem, fór einnig yfir á Vesturbakkann þar sem Palestínumenn ráða. Þá heimsótti ég Dauða hafið og lét mig fljóta þar í söltum sjó og svo uppá Massada fjallið í kláfferju þar sem gyðingar enduðu sína dvöl í virkinu með því að taka eigið líf áður en Rómverjar komust upp í virkið árið 73. e.Kr.
Mér finnst Ísrael samtímans í raun kraftaverki líkast.
Í 13. kafla Markúsarguðspjalls segir Jesús fyrir um fall musterisins og varar við því að láta leiða sig í villu. Jerúsalem var eytt árið 70 e.Kr., 37 árum eftir krossfestingu hans. Musterið var rifið. Aðeins grunnmúrinn stendur eftir, Grátmúrinn. Ég les orð Jesú sem trúmaður, sem spádóm. Flestir sagnfræðingar telja að guðspjallið hafi verið skrifað um 65-70 e.Kr. Markús vitnar í Jesú sem sagði þetta fyrir krossfestingu sína árið 33 þannig að Jesús spáir þar með fyrir falli Jerúsalem. Hafi Markús ritað textann árið 70 eða síðar, þá sér hann í raun sönnun eða uppfyllingu spádóms Jesú.
Orð Jesú eiga enn erindi við okkur: „Þegar þér spyrjið hernað og ófriðartíðindi þá skelfist ekki […] Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!“
Að vaka merkir hér að sjá hlutina eins og þeir eru, greina á milli varnar og hefndar, og sofna ekki gagnvart þeim sem boða tortímingu.
You must be logged in to post a comment.