Viltu hlusta? Smelltu á tengilinn:
Nú í sumar 2026 hefur Borgarstjórn afturkallað lóð sem úthlutað hafði verið gefins til samfélags múslima í sjálfu „borgarhliðinu“ þar sem stofnbrautir mætast úr vestri og suðri. Því ber að fagna enda sýnir islam það um allan heim að sú trú er til vandræða því hún er úrelt miðaldafyrirbrigði sem á ekkert sameiginlegt með vestrænni menningu.
Hins vegar orkar það tvímælis að afturkalla lóð handa Rússnesku réttrúnaðarkirkjunni. Þar er um að ræða kristna kirkju með eldfornar rætur í frumkristni. Ef afturköllunin er á grunni þess að rússar fari fram með siðlausum hætti í stríðsátökum um þessar mundir, þá er um að ræða slaufunaraðgerð og hún í sjálfu sér er siðlaus.

Við eigum ekki að slaufa rússum vegna hegðunar þeirra, en við eigum að gagnrýna þá harðlega.
Söfnuður rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi hefur mótmælt. Sjá hér slóð úr vefritinu Mannlíf:
https://mannlif.is/greinar/retttrunadarkirkjan-harmar-afturkollun-lodar-a-myrargotu/-afturkollun-lodar-a-myrargotu/
Talandi um slaufun þá eigum við ekki heldur að slaufa Israel með því að taka t.d. ekki þátt í Júróvisjón. Ísreael á í vök að verjast gagnvart brjáluðum arabalýð þ.e. múslimum sem umkringja ríki þeirra og vilja útrýma öllum gyðingum. Enginn má útrýma öðru fólki og fólk sem á það yfir höfði sér, á heilagan rétt til að verjast og berja niður slíkan ófögnuð sem öfga-islam er.
Hamas stillir börnum upp við árásarstaði til að geta náð myndum til að sverta Ísraelsmenn sem – nota bene – láta ætíð vita fyrirfram af árásum sínum. Nei, Hamas hunsar það og fórnar sínu fólki og börnum sérstaklega því þar með verða blessuð saklausu börnin að píslarvottum í nafni Allah!
Fávíst fólk og vitgrannt á Vesturlöndum styður þessa hrotta og hatar gyðinga á sama hátt og Hamas gerir, en slíkt er auðvitað bara illmennska og heimska. Fólk grenjar hér á landi af hneykslan og víðar því það sér ekki í gegnum svikamyllu Hamas.
Alþjóðasamfélagið gaf gyðingum leyfi til að stofna ríki í Palestínu eftir 2. heimsstyrjöldina og helförina. Ísrael er eina alvöru lýðræðisríkið á öllu svæðinu, umkringt af vanþróuðum múslimum og trúarofstæki að hætti Hamas og fleiri snar brjálaðra hreyfinga sem nytsamir sakleysingjar á Íslandi og víðar styðja í blindni.
En þrátt fyrir brjálæði Hamas þá eigum ekki að slaufa múslimum, þ.e. fólkinu sem fylgir islam, en við megum slaufa islam, þ.e. trúarkerfinu, sem er að mestu leyti meingallað dellumakerí. Og Hamas er auðvitað bara heimsplága sem þarf að brjóta á bak aftur og stöðvar með öllum ráðum.
Orþódoxar eða svonendar réttrúnaðarkirkjur eru merkileg og mögnuð fyrirbrigði í heimskristninni. Helgisiðir orþódoxa eru í senn hrífandi og mystískir.

við messu í kirkjugarði Helgueyjarkirkju í Noregi 2018
Hér fyrir neðan er svo færsla með grein þar sem ég segi frá samskiptum mínum við norska orþódox presta sem messuðu hjá mér yfir gröfum rússneskra flóttamanna á Helgueyju í Noregi þar sem ég var sóknarprestur 2015-2019.
Hér er tengill á greinina um það mál og einnig um marxismann sem slíkan. Hann er skoðaður út frá mauraþúfu og niðurstöðu eins fremsta skordýrafræðings í heimi:
You must be logged in to post a comment.