Myndirnar úr Neskirkju teiknaðar af aftasta bekk og mótífin öldnum augum því nokkuð langt í burtu!
Logn á Sundum og sjófugl í hópum – Esjan hulin mistriMessa í Neskirkju 12. sept. Steingrímur við flygilinn og skermaður af kórnum og dr. Skúli fyrir altariDr. Skúli fræðir og glæðirKórinn stendur þétt að baki SteingrímiFella- og Hólakirkja Undurfögur listaverk eftir Leif Breiðfjörð eru í steindum gluggum kirkjuskipsins Teiknað fríhendis með penna í útför Vilborgar Ragnarsdóttur Schram
Í fyrsta hauststorminum ók ég út á Nes miðvikudaginn 8. október og fór á „þjóðmálafund“ í Seltjarnarneskirkju.
Þar hlýddum við á Birgi Þórarinsson, fv. alþingismann segja frá því hvernig honum tókst með þekkingu sinni og tengslum að leysa úr haldi rússneska konu með þarlendan- og ísraelskan ríkisborgararétt sem var gísl hryðjuverkasamtaka í Írak og fá gíslatökumenn til að falla frá lausnargjaldi uppá 2,4 milljarða króna!
Hrífandi frásögn sem er ævintýri líkust en vakti með okkur mörgum þá tilfinningu og hugrenningatengsl að þarna hafi Birgir gengið á Guðs vegum og notið himneskrar handleiðslu.
Þessi teikning varð til af honum á staðnum. Öðru bætti ég við heima og litaði svo með vatnslitum.
Séra Sveinn Valgeirsson, Dómkirkjuprestur, flutti erindi á Krossgötum Neskirkju, mánudaginn 6. október 2025, sem hann flutti af munni fram og með sínum góða húmor. Góðar umræður urðu í kjölfarið.
Þetta riss varð til á fundinum, teiknað með penna og vatnsheldu bleki og því engu unnt að breyta!
Að kvöldi dags var játningin færð inn á blaðið
en erfitt reyndist að sjá fyrir hvort hún kæmist þar fyrir.
Það náðist með smá tilfærslum og bið ég lesendur að taka viljann fyrir verkið.
Séra Vigfús Bjarni flutti frábært erindi í NeskirkjuPrestur flytur boðskapinnKvöldkyrrð við PatreksfjörðÆfingKór syngur í Neskirkju og fólk fyllir bekkiKór kirkjunnar en ekki kirkjukórinn!Rætt um umhverfismál í Neskirkju
Á leiðinnin til baka ók ég inn á lóð Ráðagerðis, skissaði og hitti svo tvo í kaffi.
Skissurnar eru allar gerðar með penna og vatnsheldu bleki og því ekki hægt að stroka út og laga, sem gerir þær „spontant“ og einvhern veginn ekta í sínum einfaldleika með mistökum og „alles“!
Vatnslitum bætti ég við heima.
Stærð ca. 20×30 cm.
Grótta er ótæmandi uppspretta fyrir skissukall!RáðagerðiVinir tveir og vitringar
Verðugt lesefni um eitt hættulegasta mein samtímans
Mynd af Vefnum
Ég fékk tölvupóst frá fræðimanninum, Dr. Iain McGilchrist geðlækni, sem er í uppáhaldi hjá mér og hann mælir þar með grein eftir kollega sinn. Greinin vakti athygli mína og ég lagði í að þýða hana og bið lesendur að taka viljann fyrir verkið.
McGilchrist segir um grein Hönnu Spier:
Ég vil endilega deila með ykkur grein sem birtir djúpt innsæi höfundar sem er norskur geðlæknir, hvers skrifum ég fylgist með. Greinin hjálpar okkur að skilja brjálæðið sem umlykur okkur. Hún er hugrakkur höfundur, langt frá því að vera ofstækisfull, sem er mikilvæg aðgreining frá því fólki sem hún greinir svo vel hér.
[https://hannahspier.substack.com/about]
Þýðandi vill taka það fram, að í sumum tilfellum er erfitt að nota ætíð sama orðið á íslensku. Orðið Progressivism má t.d þýða sem framfaratrú/hyggju, en ég vil einnig þýða það stundum með orðinu róttækni.
Smelltu á fyrstu fyrirsögnina ef þú vilt sjá færsluna í heild, allan textann.
You must be logged in to post a comment.