Hörmungafréttir berast frá löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Hryðjuverk Hamas vekja hrylling í brjóstum flestra sem um þau heyra og viðbrögð Ísraelsmanna eru umdeild. Glæpir eru framdir á báða bóga og það ber að harma og fordæma. Hvenær getur fólk vænst þess að fá að lifa í friði á þessum slóðum? Rétturinn til að verjast hryðjuverkum og reyna að uppræta, svo svæsin samtök sem Hamas eru, hlýtur að vega þungt. Fréttaflutningur hér heima hefur að mínu mati verið frekar vilhallur öðrum aðilanum en hinum. Slíkt ber að varast í miðlun frétta og mati á aðstæðum.
Var beðinn að hlaupa í skarðið fyrir Neskirkjupresta. Góð tilfinning að fá að messa í kirkjunni þar sem ég þjónaði í 15 ár áður en ég fór til prestsþjónustu í Noregi 2014-2019.
Kær vinur tók myndir af mér við altarið og við lespúltið og sendi mér að messu lokinni:
Ræðuna sem flutt var út frá punktum er hægt að hlusta á hér:
Messað fyrir innan altarið, móti söfnuðinum, sem kallað er á latínu – versus populum
Og hér er svo tengill á lagið Yellow með Coldplay, sem nefnt var í upphafi og er um undrunina yfir gulum himinsljósum, stjörnunum á næturhimni. Að undrast yfir hinu stóra og fjarlæga, eflir hugsunina um Guð og samhengi tilverunnar:
Þær eru til sölu í tilsniðnu kartoni (passpartout) úr sírufríum pappír, innpakkaðar í sellófan og tilbúnar til innrömmunar. Ytra mál kartons passar í tilbúna ramma sem fást í nokkrum verslunum t.d. Rammastúdíó, Ármúla 20, en annars er bent á fyrirtækið Innrömmun Grandi, Fiskislóð 37, 101 Rvk
SELD ! Gengið inn í ljósið – Vatnslitamynd H37xB27cm – Þessi mynd hangir nú uppi á sýningu Vatnslitafélagsins í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi sem opnnuð var ld. 23. sept. og mun standa til laugardagsins 21. október, opin á virkum dögum frá 10 til 17 en á laugardögum frá 11 til 14.Sól og skuggar á Austurvelli – Vatnslitamynd H37xB37SELD! Fiskilækur sunnan við Hafnarfjall. Vatnslitamynd H27xB37cmSELD! Fantasía frá Ísafirði: Blessuð sólin . . . Vantslitamynd H27xB37cmSELD! Grótta, gæsir á flugi. Vantslitamynd H27xB37cmÍsafjarðarkirkja „Í faðmi fjalla blárra“ – H27xB37cm – Myndin virðist stærri þar sem hún er unnin í forriti sem gerir hana að stóru veggverki en stærðin er tiltekin hér að framan.
Kistulagning og útför í kyrrþey frá Fossvogskapellu
mánudaginn 25. september 2023 kl. 10
Jarðsett í Gufuneskirkjugarði
Hljóðupptaka af athöfnunum er neðar. Skoðaðu myndir og textann þar til komið er að skilum. Þar kveikir þú á upptökunni.
Á góðri stund. Alda 3ja fv á efri myndinni og í miðju á þeirri neðri.Fv. Hugrún Birna, Þórey, Bjarki Steinn, Andri og hundurinn Kofri.
Andri Jón Heide, Þórey Ólafsdóttir, ásamt 2 af 3 börnum sínum, þeim Bjarka Steini og Hugrúnu Birnu.
Fjöslkyldan:
Andri Jón Heide
Þórey Ólafsdóttir
Bjarki Steinn Andrason 15 ára
Arnar Magnús Andrason 14 ára
Hugrun Birna Andradóttir 13 ára
Hundurinn Kofri
Prestur. Örn Bárður Jónsson
Organisti. Steingrímur Þórhallsson
Kistulagning með tónlist og lestri sálmsins Um dauðans óvissan tíma e. séra Hallgrím.
Útförin
Forspil
Bæn
Sálmur: Eigi stjörnum ofar
Ritning
Minning
Sálmur: Í bljúgri bæn
Bænir
Blessun
Rekum kastað í garði.
Upptakan er næst, hún tekur tæpar 30 mínútur. Athafnirar tvær, kistulagningin og útförin voru í einni samfellu og báða hér á upptökunni. Hægt er að kveikja á henni fyrst og skruna svo niður á meðan hlustað er.
You must be logged in to post a comment.