Texti ræðunna og hljóðupptaka er hér aðeins neðar.

Minningaroðin er hægt að lesa og hlusta á hér fyrir neðan – og sálmakráin er allra neðst.
(meira…)Writer – Painter – Theologian
Rithöfundur – Málari – Guðfræðingur
“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari
Texti ræðunna og hljóðupptaka er hér aðeins neðar.

Minningaroðin er hægt að lesa og hlusta á hér fyrir neðan – og sálmakráin er allra neðst.
(meira…)Grein í Morgunblaðinu s. 16, 2. apríl 2024 sem hér er unnt að hlusta á og tekur 8 mínútur.

Hugleiðing á páskum 2024
eftir Örn Bárð Jónsson
Viltu hlusta og/eða lesa? Hér fyrir neðan er tengill á hljóðupptöku sem tekur rúmar 4 mínútur.

Í gær: Iain McGilchrist er breskur fræðimaður sem veit manna mest um heilahvelin og ég hef áður heyrt ræða um þau og svo aftur í gær á YouTube.
Í dag, páskadag, fór ég svo í heimsóknir í Mörkinni, þar sem boðið var uppá páskamessu kl. 14 og svo á Landspítalann Landakoti síðdegis.
Skissað í laumi og litað heima. Læt afraksturinn bara flakka á vefinn í góðri trú um að fólk taki viljann fyrir verkið, eins og sagt er.




Sumar myndanna voru skissaðar úti þegar ég gerði hlé á hjólreiðum og aðrar inni, skírdag, föstudaginn langa og laugardag fyrir páska.

Minningarorð sem hægt er að lesa og hlusta á hér fyrir neðan.

Örn Bárður Jónsson
Minningarorð
+Sigurður Hákon Thoroddsen
arkitekt
1940-2024
Útför í kyrrþey frá Kapellunni í Fossvogi
þriðjudaginn í kyrruviku
26. mars 2024 kl. 13
Sálmaskráin er aftast í færslunni.
Leiðrétting!
Ein staðreyndarvilla slæddist inn í ræðuna þrátt fyrir yfirlestur kunnugra um ævi forfeðra hins látna og mæðra og hún er sú að Jón Thoroddsen var ekki prestur heldur sýslumaður á sínum tíma. Þetta var leiðrétt í texta en villan er eftir sem áður á hlóðupptökunni og er beðist velvirðingar á því.
(meira…)Bálför í Neskirkju miðvikudaginn 20. mars 2024 kl. 15
Þú getur hlustað á ræðuna með því að nota tengilinn hér fyrir neðan og lesið textann líka.

Í gær fór ég í Neskirkju til að hlusta á dr. Harald Hreinsson, ræða um Afhelgun bókaþjóðar. Hann gerði það vel og skilmerkilega með tilvísunum í bókmenntapáfa liðinnar aldar sem töldu flestir kristni skipta minna máli í menningunni en margir aðrir. Eina mótvægið sem eitthvað kvað að gegn nefndum páfum var biskup Sigurbjörn Einarsson sem fór gjarnan með himinskautum eins og honum einum var lagið!
Haraldur ræddi í inngangi um hugtakið veraldarhyggja sem þýðing á orðinu sekularisering og ég setti fram í umræðum í lokin þá tillögu að nota orðið heimskun um veraldarhyggju, þ.e. þegar heimurinn tekur yfir og hafnar hinu himneska.
Jesús sagði forðum við lærisveina sína: „Í heiminum hafið þér þrenging, en verið hughraustir, ég hef sigrað heiminn.“ Þau orð gilda fyrir okkur öll, konur og karla.
Myndina skissaði ég á staðnum með blekpenna og get því engu breytt fremur en í lífinu sjálfu, nema með vatnslitum.
Ef þú smellir á myndina geturðu þysjað hana út og inn.

Fór í messu sem séra Jón Ragnarsson annaðist á Mörkinni í Reykjavík sem tilheyrir svonefndum Grundarheimilum. Prédikun Jóns afbragð og samfélagið gott. Hjartans þakkir, kollega kær.
Við Fríða drukkum svo kaffi með Jóni og Gyðu á kaffihúsi staðarins að messu lokinni.
Skissaði í laumi mynd og litaði þegar heim kom. Hún er mér góð minning um atburðinn, en ég geri mér þó grein fyrir því, að portret af þessu tagi af prestinum, verður ekki notað í vegabréf!
Svörtu flekkirnir eru munstur sem þekur allan kórvegginn en hér er aðeins hluti þess gefinn í skyn.

Mynd af Austurvelli í miklu sólskini.

Myndflötur 25×34 cm. Myndin er í sýndarramma hér í þessari færslu en stærð mynflatar er álíka og forsíða dagblaðs.
Við höfum okkar skoðanir og setjum þær fram á ýmsan hátt, sumir opinberlega, aðrir í einkasamtölum. Stundum erum við sammála ríkjandi viðhorfum og á öðrum tímum ósammála. Einvhersstaðar í samræðunni liggur „sannleikurinn“. Leitum hans því hann mun gera okkur frjáls skv. orðum Jesú Krists.
You must be logged in to post a comment.