Grein eftir Örn Bárð Jónsson í Morgunblaðinu 10. september 2024
Viltu lesa? Viltu hlusta? Greinin er hér neðar en upptakan er tilbúin og hún tekur rúmar 7 mínútur í hlustun. Smelltu á tengilinn!

Writer – Painter – Theologian
Rithöfundur – Málari – Guðfræðingur
“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari
Grein eftir Örn Bárð Jónsson í Morgunblaðinu 10. september 2024
Viltu lesa? Viltu hlusta? Greinin er hér neðar en upptakan er tilbúin og hún tekur rúmar 7 mínútur í hlustun. Smelltu á tengilinn!

Hluti af afla sumarsins en áður hafði ég birt ferðasögu til Evrópu með mörgum teikningum. En hér koma nokkrar nýlegar.


Viltu hlusta?
Enginn grunnur, ekkert heilt,
eftir svikakossinn,
út er kastað, lítt umdeilt,
enginn sigurkrossinn.
Hverri tíð er tapaði sýn
og trúar sáttmál rauf,
hennar skauti ei skýlir lín
skraufþurrt ber það lauf.
Bæði áður og eftir tekt,
eitt er laufið klæða,
engin sorgin, engin sekt,
undir Drottins blæða.
– tekt vísar hér til fermingar, en börn eru enn tekin til altaris sem fyrr og forðum voru börn 14-20 ára, sögð vera á milli tektar og tvítugs.
Og svo um að auka dreifingu á búsi á netinu:
Forðum mjólk og mysa varð
mjakast fyrir djús.
Hagkaup vill nú auka arð,
ausa, selja bús.


Örn Bárður Jónsson
Minningarorð
+Kristján Smith
1942-2024
Smelltu á tengilinn ef þú vilt hlusta:
Snarpur pistill blaðamanns á vef Norska ríkisútvarpsins – NRK – er hér í þýðingu Gúgga vinar míns.
Á þetta ekki líka við um Ísland, að breyttu breytanda, við höfum ekki hirð en flest annað skandinavískt?

Hér er greinin í þýðingu Gúgga vinar míns. Hann er að vísu ekki sá sleipasti í íslensku en greinin skilst samt.
Viltu lesa? Viltu hlusta? Hlustunin tekur tæpar 8 mínútur. Þú tekur öðru tilboðinu eða bara báðum? Verði þér að góðu!
Smelltu á tengilinn og þá geturðu hlustað á greinina sem tekur 4:37 mínútur!
Nýr samgöngusáttmáli hefur verið kynntur og kostar tugi milljarða. Bílum fjölgar í hverri viku og gatnakerfi Höfuðborgarsvæðisins ber ekki alla þessa umferð.
Þúsundir hjóla til og frá vinnu á nýjum hjólastígum á svæðinu sem hafa gjörbreytt ferðamöguleikum. Þetta fólk væri annars flest á bílum og þar með væri vandinn enn stærri.
(meira…)
Örn Bárður Jónsson
Minningarorð
+Ásgerður Hinrikka Annasdóttir
21. des. 1946 – 8. ágúst 2024
Útför frá Hafnarfjarðarkirkju
Jarðsett í Hafnarfjarðarkirkjugarði
Sálmaskráin er neðanmáls með myndum
Smelltu á tengilinn og þú getur hlustað. Lengd tæpar 16 mínútur.

Seint á liðinni öld þýddi ég texta Erics Clapton, Tears in Heaven og hann hefur af og til verið notaður við athafnir.
Svo sendi ég textann til hans Rósa Sigurðssonar, Ísfirðings, sem er ári yngi en ég og spilaði í hljómsveitum heima eftir að ég flutti suður en hann eignaðist Ný-Sjálenska konu og þau fluttu „down under“ eins og Ástralir segja um sinn heimshluta.
Rósi brást vel við og er búinn að hljóðrita lagið með íslenska textanum. Hann syngur textann, leikur á öll hljóðfærin sjálfur og dóttir hans raddar með honum.
NJÓTIÐ!
Frumtexti og þýðing eru í reitnum fyrir neðan.

Nú finnst mér kominn tími á róttæka tiltekt hvað varðar hugtök í landinu. Breyta þarf örnefnum og merkingum út um landið vítt og breitt.
Í Morgunblaðinu á dögunum ræddi Elínborg Una Einarsdóttir við Jóhannes B. Sigtryggsson, rannsóknardósent, um íslenkt mál. Sjá meðf. grein.
Við lestur hennar urðu til vísur þar sem ég tók upp tvö orð sem mér finnst ég geti notað um sjálfan mig, orðin piktur og stívarður en fyrra orði merkir málari en hitt ráðsmaður.
Ég hef löngum starfað sem þjónn eða ráðsmaður Drottins og minni oft á orð Jesú, sem reyndar notar orðin þræll og þjónn í sömu andrá.
Og sá er vill fremstur vera meðal ykkar sé allra þræll. Því að Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir alla.
Hér eru vísurnar:
Heill þér heimsins lávarður,
himins sonurinn sæli.
Þér ég þjóna stívarður,
þakka skjól og hæli.
Tíðum munda pentil pent,
pára á striga myndir.
Piktur ei mín reiknast mennt,
en miskunn sýknar syndir.
Að tjá sig í myndmáli er skemmtileg glíma og sem lítt menntaður á því sviði er glíma mín gjarnan hörð og óvægin og því er það miskunn Guðs að þakka að ég gefst ekki upp.

Hér er svo greinin úr Morgunblaðinu:

Og hér er samhengi textans þar sem lærisveinarnir ræddu við meistara sinn. Smelltu á tengilinn og þú ferð inn á vef Biblíufélagsins:
Biblíulestur 7. apríl – Mrk 10:35-45
You must be logged in to post a comment.