Greinin birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 13. janúar 2024.
Mynd þegin að láni af Alnetinu
Viltu hlusta á lestur höfundar? Smelltu þá á tengilinn:
Eru sýndarveruleiki og gervigreind hættuleg?
Skoðum söguna um það hvernig maðurinn hefur lært að hugsa óhlutbundið og nýtt sér tæknina.
Stafrófið er merkileg uppfinning. Það er rakið til Kanaaníta í Mið-Austurlöndum fyrir um 5000 árum. Íslenska stafrófið telur 32 stafi. Með þessu stafasetti eru öll orð mynduð, sem til eru á prenti á íslensku eða rafrænum textum.
Átökin í Ísrael og Palestínu eru þyngri en tárum taki, glæpir á glæpi ofan eru framdir á báða bóga. Slíkt ber að fordæma.
Biðjum fyrir friði í Ísrael og að beinir gerendur slíðri vopnin.
Á liðnu sumri heimsótti ég Ísrael og í kjölfar þess málaði ég nokkrar vantslitamyndir. Hér er ein frá Jerúsalem þar sem Musteri Gyðinga stóð forðum, nú moska múslíma.
Sérstök upplifun var að fá að fara upp á Musterishæðina og skoða þessa merku byggingu og Grátmúrinn, sem er nánast undirstaða helgidómsins. Við, ferðafélagarnir, fengum að upplifa þetta allt í maí á liðnu ári, áður en átökin hófust síðar á árinu.
Viðtal í Pallborðinu hjá Vísi/Stöð2 hjá Hólmfríði ásamt séra Jónu Hrönn Bolladóttur, Pétri Markan, biskupsritara og yðar einlægum. Og ekki er nú alltaf að marka það sem fjölmiðillinn klippir út og kynnir á vefnum. Best er að hlusta á allan þáttinn en . . .
. . . lokaorðin örstutt átti Örn Bárður og hægt er að hlusta hér:
Hér er svo slóðin á þáttin þar sem hægt er að horfa og heyra á hann allan. Smelltu á slóðina:
Sótt messu í Neskirkju í dag, jóladag. Þar var valinn maður í hverju rúmi, tveir prestar, dr. Skúli Ólafsson sem prédikaði og gerði það að vanda mjög vel og séra Helga Kolbeinsdóttir sem stýrði altarisgöngu. Fjölmenni var í kirkjunni.
Þá var hinn fimi og frábæri tónlistarmaður, Steingrímur Þórhallsson, við orgelið og stjórnaði söng síns góða kórs Neskirkju sem fyllti kirkjuna lofgjörð og fegurð og til viðbótar söng Drengjakór Reykjavíkur undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar ásamt undirleikara sem ég hef ekki nafnið á.
Allt var þetta uppbyggilegt og hátíðlegt. Sólin varpaði krosstáknum úr gluggapóstum suðurgluggans á vegginn og færðist svo smátt og smátt út og hvarf svo alveg í ljósasýningu almættisins.
Ég hjólaði til messu og þaðan upp í Hliðar í heimsókn til bróður og lokst heim á malbiki og klaka til skiptis. En svo las ég guðspjall jóladags sem er annað en það sem lesið er á aðfangadag og allir kunna. Hér kemur jólaguðspjall Jóhannesar postula þar sem hann segir frá nafna sínum skírara og hinum eilífa Kristi. Hér er upptakan:
Húsið sem ég fæddist og ólst upp í stendur við Sólgötu númer 8 á Ísafirði og á horninu við Fjarðarstræti sem liggur meðfram sjónum á norðanverðri Eyrinni eins og hinn forna prestssetursjörð heitir.
Ég ólst því upp við sjóinn þar sem heitir Prestabugt.
Hornið á húsinu er sneytt til að auðvelda umferðu inn og út úr Sólgötunni.
Ég bjó á efri hæðinni og þegar ég var farinn að sofa í einn, svaf ég í Sneyðinni sem var borðstofa fjölskyldunnar.
Flutti svo í minna herbergi, miðgluggann á efri hæð Fjarðarstrætismegin, þegar stóri bróðir flutti að heiman.
Myndatexti: Fjarðarstræti og fjallið Ernirinn í baksýn. Vinstra megin er Aldan en hægra megin sést aðseins í Glámu, frystihúsið gamla, en svo er gráa húsið með bláa þakinu, Sólgata 8 sem móðurafi minn og amma byggðu með börnum sínum, en áður bjuggu þau í lágreista húsinu með rauða þakinu sem hét Glasgow en þar hafði áður verið rekin verslun með því nafni.(meira…)
Ljósbrot: Grótta að kvöldi – Myndin túlkar kvöldbirtu og ljósið er leyst upp í depla sem gerir þann part þar með abstrakt en að öðru leyti er myndin hlutbundin. Gróttuviti er skemmtilegt mótíf og margrætt eftir því hvaðan horft er. Litirnir í ljósinu eru m.a. tilvísun í norðurljósin sem eru vinsælt fyrirbrigði, ekki síst meðal ferðamanna.
You must be logged in to post a comment.