“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Gazalegur vandi

    grein eftir Örn Bárð Jónsson · október 2026

    Mynd fengin að láni af Vefnum

    Viltu hlusta á höfundinn lesa? Smelltu hér:

    Í orðræðu á samfélagsmiðlum, þar sem talað er í símskeytastíl í hita leiks, fer ýmislegt forgörðum. Umræðan verður oft að eintómum upphrópunum og sleggjudómum. Sumir hafa bókstaflega hraunað yfir mig og ég í sumum tilfellum brugðist við þeim yfirgangi. Í hita leiksins geta menn svitnað og glíman orðið römm. Menn hjóla oft í manninn en ekki málefnið, ad hominem en ekki argumentum ad rem eins og það heitir í fræðunum. Ráðist er á manninn en ekki textann: “Þú er prestur . . . ” o.s.frv. í miklum hneykslunartón.

    Ég settist niður og ritaði grein sem ég hef marg leiðrétt, legið yfir og lagað og loks unnið í samvinnu við góða ráðgjafa, þar á meðal gerivigreind, sem hefur skerpt margt af því sem var í frumtexta mínum, en leiðrétt annað. Ég leyfi mér að taka það fram að mér hefur líka tekist að leiðrétta gervigreindina – og hún viðurkenndi það! Gervigreindin (GG) ritaði ekki greinina en ég fékk hana til að lesa textann og gefa ráð.

    Mikilvægt er að menn skoði vel afstöðu sína til alvarlegra mála sem eru í umræðunni og rökræði hana við þá sem eru tilbúnir til að leiðrétta með “hógvæðar anda” eins og sagt er í Hinni helgu bók.

    Hér kemur afurðin:

    (more…)
  • “Vona að Vesturlönd opni augun”

    Kona sem veit, þekkir og skilur, skrifar skilaboð til okkar allra

    Viltu hlulsta í innan við 6 mínútur?

    Fawzia Zouari

    Fawzia Zouari, rithöfundur frá Túnis, blaðakona og doktorshafi í frönskum- og samanburðarbókmenntum frá Sorbonne-háskóla, birti þessa grein um að henni væri nóg boðið í blaðinu Jeune Afrique. Hún er hugrökk en ég er ekki viss um að allir skilji það. Ég mæli með lestri.

    (more…)
  • Lóðir trúfélaga í Reykjavík afturkallaðar

    Viltu hlusta? Smelltu á tengilinn:

    Nú í sumar 2026 hefur Borgarstjórn afturkallað lóð sem úthlutað hafði verið gefins til samfélags múslima í sjálfu “borgarhliðinu” þar sem stofnbrautir mætast úr vestri og suðri. Því ber að fagna enda sýnir islam það um allan heim að sú trú er til vandræða því hún er úrelt miðaldafyrirbrigði sem á ekkert sameiginlegt með vestrænni menningu.

    (more…)
  • +Valgerður Þóra Benediktsson 1935-2026

    Útför frá Neskirkju fimmtudaginn 8. október kl 13

    Viltu hlusta? Smelltu hér:

    Viltu lesa ræðuna?
    Smelltu á tengilinn hér fyrir neðan.
  • Á hvaða leið er heimurinn?

    eftir Örn Bárð Jónsson

    Merkilegt hefur verið að upplifa viðbrögð við grein sem ég ritaði nýlega og birti í DV og tel mjög upplýsandi um áhrif islam í heiminum. Greinin ber yfirskriftina Taktu þér stöðu. Þar er því m.a. haldið fram að 3. heimstyrjöldin sé þegar hafin og framrás islam á Vesturlöndum staðreynd.

    Vilstu hlusta á höfundinn lesa textann? Smelltu hér:

    Fjöldi þeirra sem létu sér líka greinina er margfaldur við þá sem eru á öndverðum meiði en úr síðari hópnum eru ótrúlega margir sem geta ekki hamið sig í samskiptum við annað fólk, kunna hvorki háttvísi né samræðulist.

    (more…)
  • Hvað hefur horfið? Af hverju spóla Vesturlönd föst í þeim hjólförum sem þau eru í um þessar mundir?

    Ég hef ítrekað vitnað í Jürgen Habermas, einn frægasta heimspeking Evrópu á síðustu öld og þessari. Hann lést í vor er leið. Habermas (18. júní 1929 – 14. mars 2026) var þýskur heimspekingur og þjóðfélagsfræðingur sem fylgdi hinni svoenfndu krítísku hefð og raunhyggju (critical theory og pragmatism).

    Hann sagði að Vesturlönd ættu alla sína verlferð og grunn að þakka Biblíunni og nefndi hugtakið réttlæti í túlkun gyðinga í GT og kenningu Krists um kærleikann. Á þessum hugtökum er dómskerfi Vesturlanda byggt, mannréttindi, mannhelgi og allt sem við teljum tilheyra siðuðu samfélagi. Habermas var guðleysingi NB!

    Þessi sama hugsun kemur skýrt fram í viðtali sem John Anderson, fv. varaforsætisráðherra Ástralíu tók við Melanie Phillips, blaðakonu sem er gyðingur og skrifar mikið um heimsálin.

    Hvað hefur hún að segja um heiminn í dag og Vesturlönd spólandi föst í hjólförum villunnar. Tek það fram að samlíkingin er mín. En hér kemur viðtalið. Ef tengillinn sést ekki, smelltu þá á auða svæðið!

    https://www.facebook.com/plugins/video.php?height=314&href=https%3A%2F%2Fwww.facebook.com%2Freel%2F1203206545298722%2F&show_text=false&width=560&t=0

    https://fb.watch/v/4hAZqKlky/?fs=ehttps://fb.watch/v/4hAZqKlky/?fs=e

  • Sérfræðingur í islam varar okkur við

    Dr. Jay Smith er þekktur fræðimaður sem gjörþekkir Kóraninn og islam.

    Horfum og hlustum!

    Smelltu á slóðina:

    -4?is=ceHMdWI1NgAm7Qfc

  • Feminisminn og Wókið

    Merkilegur fyrirlestur Helen Andrews um framþróun feminisma og hvernig konur hafa breytt heiminum.

    Afar yfirveguð umfjöllun sem bæði konur og karlar verða að heyra!!!

    Tekið skal fram að ritstjóri síðunnar valdi ekki myndina sem kemur upp fremst í þessu myndbandi. Fyrirlesarinn er aftur á móti yfirveguð kona og ógrettin sem flytur frábæran fyrirlestur án upphrópana eða æsings.

    Smelltu á myndina

    .be/S7d_Hzu16Rs?is=e7BhD4Hncf_6a7UO

  • Taktu þér stöðu!

    Hvorum megin viltu standa í 3. heimsstyrjöldinni?

    Grein eftir Örn Bárð Jónsson.

    Mynda af bókarkápu fengi að láni á Vefnum.
    Bókin á engan þátt í meðf. grein, kápan er bara skreyting
    sem hæfir umfjöllunarefni greinarinnar

    Viltu lesa og/eða hlusta? Smelltu á tengilinn:

    Um nokkurra ára skeið þjónaði ég sem prestur í Noregi. Það var lærdómsríkur tími. Eitt af því sem þar flaut uppá yfirborð í daglegri umræðu, var reynsla Norðmanna af Síðari heimstyrjöldinni, þegar landið var hernumið af þýskum nasistum. Þá gerðist það sem ætíð gerist þegar átök í menningarheimum eiga sér stað, að menn skipast í tvær fylkingar. Langflestir höfnuðu hugmyndafræði nasista, en minnihluti lagðist á sveif með þeim, fundu tækifæri í undirlægjuhætti og gerðust ræðarar á langskipi einnar hættulegustu hugmyndafræði sem um getur. 

    Nasistar lögðu m.a. út í það að þurrka út alla gyðinga í heiminum og settu upp verksmiðjur í því sambandi enda hafa Þjóðverjar ætíð verið miklir handverksmenn, iðnarðarséní, verkfræðingar, vélsmiðir og iðnjöfrar. Þessir eiginleikar nýttust þeim í stríðinu, en urðu þeim svo til bjargar eftir stríð, er þeir byggðu landið upp á örskömmum tíma með hjálp sigurvegaranna.

    (more…)
  • Nýjar skissur af Sæbraut og úr Gróttu

    Þúfan blasi við úr glugga í Skugga I
    Sólfarið
    Skessuhorn gægist í gegn um verk Jóhanns Eyfells við Sæbraut
    Vitinn við Höfða og Laugarneshverfið í baksýn
    Höfði og minnismerki, gjöf fv. sendiherra BNA
    Skuggahverfi I
    Albertsbúð við Gróttuvita og Snjæfellsjökull
    nánast kominn í bæinn fyrir áhrif ljóss og logns