Örn Bárður Jónsson – and "BARD-art"

The beauty of Life – Social Issues – Justice – Truth // Fegurði lífsins – Þjóðfélagið – Réttlæti – Sannleikur

Greinar og hugvekjur / Articles

Minningarorð / Funeral Speeches

Myndlistin mín / My Art ,

Þankar á viðsjárverðum tímum

Viltu hlusta í 14 mínútur?

Les þessa dagana í Lúkasarguðspjalli. Tek fyrir einn eða tvo textabúta sem afmarkast af millifyrirsögnum. Neðanmáls eru sömu textar á mynd úr gríska Nýja testamentinu en á þeirri tungu voru þeir ritaðir upphaflega.

Nýlega las ég þetta:

Tákn (Lúkas 21.20-24)

20 En þegar þér sjáið herfylkingar umkringja Jerúsalem, þá vitið að eyðing hennar er í nánd. 21 Þá flýi þau sem í Júdeu eru til fjalla, þau sem í borginni eru flytjist burt og þau sem eru á ekrum úti fari ekki inn í hana. 22 Því þetta eru refsingardagar, þá er allt það rætist sem ritað er. 23 Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum því að mikil neyð mun þá verða í landinu og reiði yfir þessum lýð. 24 Menn munu falla fyrir sverðseggjum og verða herleiddir til allra þjóða og framandi þjóðir munu fótum troða Jerúsalem þar til tímar heiðingjanna eru liðnir.

Títus keisari eyðir Jerúsalem. Málverk eftir franska málarann Nicolas Poussin frá 17. öld.

Talið er víst að hér spái Jesús fyrir um eyðingu Jerúsalem árið 70 e.Kr. Þá vaknar strax upp spurningar um ritunartíma Lúkasarguðspjalls sem byggði sitt verk á guðspjalli Markúsar sem talið er elst guðspjallanna fjögurra. Ritaði hann textann fyrir fall Jerúsalem eða eftir? Ég spurði Google og fékk þar texta sem Gúggi sjálfur sneri svo úr ensku yfir á íslensku.

Helstu kenningar og nýlegar vangaveltur varðandi tímasetningu ritunar eru meðal annars:

  1. Ríkjandi fræðileg samstaða (um 85–95 e.Kr.)
  • Röksemdafærsla: Þessi samstaða byggir á þeirri forsendu að Lúkas hafi nýtt Markúsarguðspjall sem helstu heimild. Einnig er gengið út frá því að textinn beri með sér vitneskju um eyðingu musterisins í Jerúsalem árið 70 e.Kr. (sjá t.d. ítarlegar lýsingar í 21. kafla Lúkasarguðspjalls).
  • Umgjörðin: Flestir fræðimenn á sviði biblíurannsókna telja að Lúkasguðspjall og Postulasagan hafi verið skrifuð undir lok 1. aldar, yfirleitt um 85–95 e.Kr.
  1. Kenningin um snemmtæka ritun / fyrir árið 70 e.Kr. (hefur notið vaxandi fylgis meðal íhaldssamra fræðimanna og í öðrum fræðilegum nálgunum)
  • Umgjörðin: Hópur fræðimanna og skýrenda heldur því fram að verkið hafi verið skrifað snemma, um eða eftir 60 e.Kr. (jafnvel undir lok 6. áratugarins). Samkvæmt þessu hefði verkið orðið til á meðan Páll postuli sat í fangelsi í Róm í fyrsta sinn, eða skömmu eftir það.
  • Röksemdafærsla:
  • „Rök byggð á þögn“ varðandi Pál og Pétur: Postulasagan (sem er annað bindið í verkinu, í beinu framhaldi af Lúkasarguðspjalli) lýkur skyndilega þar sem Páll er í stofufangelsi í Róm, um 60–62 e.Kr. Ekkert er minnst á hvernig fór fyrir honum í réttarhöldunum, aftöku hans, píslarvætti Péturs (um 64–68 e.Kr.), né heldur á stóra brunann í Róm eða ofsóknir Nerós. Talsmenn þessarar kenningar benda á að höfundur, sem gætir þess vandlega að hafa öll smáatriði frásagnarinnar á hreinu, hefði varla sleppt því að segja frá hinum dramatíska dauða Páls, ef hann hefði þegar átt sér stað.
  • Gagnrök: Gagnrýnendur benda á að rök sem byggja á þögn séu veikburða, nema sýnt verði fram á að höfundinum hafi borið skylda til að skrásetja þessa tilteknu atburði sem áttu sér stað síðar.

Hvað sem ofangreindum vangaveltum líður þá er það staðreynd að Rómverjar gjöreyddu Jerúsalem árið 70 e.Kr. og drógu plóga yfir borgarlandið. Musterið var jafnað við jörðu og nú stendur aðeins grunnmúr þess eða svonefndur Grátmúr. Jesús sagði fyrir um þennan atburð er hann kenndi í Jerúsalem og víðar. Samkvæmt hinni kristnu hefði lifði Lúkas til ársins 84 e.Kr. í Thebu í Grikklandi. Lúkas var sagður félagi Páls postula og kallaður læknir. Ein skemmtileg vísun til þess að hann hafi verið læknir er að þegar Lúkas segir frá orðum Jesú um að auðveldara sé úlfalda að komast í gegnum nálarauga en ríkum manni inn í himnaríki, þá notar hann orðið belóne, læknisnál, á grísku en ekki raphis, venjurleg saumnál, eins og hinir guðspjallamennrirnir.

Þá les ég textann sem kemur í framhaldi af hinum fyrri og þar vísar Kristur líklega til hinstu tíma.

Mannssonurinn kemur Lk 21.25-28

25 Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðu angist þjóða, ráðalausra við dunur hafs og brimgný. 26Menn munu falla í öngvit af ótta og kvíða fyrir því er koma mun yfir heimsbyggðina því að kraftar himnanna munu riðlast. 27 Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýi með mætti og mikilli dýrð. 28 En þegar þetta tekur að koma fram, þá réttið úr yður og berið höfuðið hátt því að lausn yðar er í nánd.“

Textarnir sem merktir eru á myndinni eru úr 21. kafla Lúkasar
versin 20-24 og svo úr sama kafla versin 25-28.

Og alltaf fylgir vonin um að ekkert geti slitið fylgjendur Jesú úr hendi Guðs, hvorki hörmungar stríðs né dauði á sóttarsæng. Jesús sagði „. . . . berið höfuðið hátt því að lausn yðar er í nánd.“

Þessa dagana berast daglega fréttir af aftökum kristinna manna, karla, kvenna og barna í Nígeríu, Súdan og í Íran. Í flestum tilfellum eru þar að verki islamistar sem slátra fólki miskunnarlaust. Það er þyngra en tárum taki.

Palestínumenn undir stjórn Hamas réðust inn í Ísrael 7. október 2023, drápu fólk á heimilum sínum, tóku gísla, pyntuðu þá og niðurlægðu, nauðguðu konum og drápu.
Mér finnst hræðilegt að fólk deyi á Gaza vegna átaka á milli stríðandi afla. Ég ætla ekki að segja hvað sé rétt eða rangt í þessum efnum en Palestínumenn eru nú ekki bara saklaus lömb. Þeir kusu Hamas til valda og fylgja þeim enn í blindni.

Þetta byggir allt á fjarstæðukenndri karlmennsku og yfirgangi og ofbeldi.

Og hugsið ykkur. S.l. 18 ár hefur Hamas heilaþvegið börn í skólunum á Gaza og kennt þeim að hið æðsta sem þau geti gert sé að fremja hryðjuverk og deyja píslarvættisdauða. Drengjunum er sagt að þeirra „himnesku“ verðlaun fyrir píslarvættið verði að fá að sænga mað 72 hreinum meyjum!

Palestínumen hafa ekki haldið kosningar frá því í janúar 2006.

Í Ísrael voru þingkosningar haldnar 27. október s.l. Um 2 milljónir araba búa í landinu og hafa kosningarétt. Niðurstöður talningar leiðir í ljós að erfitt verður fyrir sitjandi forsætisráðherra að mynda meirihluta. Við vitum ekki hver niðurstaðan verður og hvaða áhrif hún mun hafa á þróun átakanna.

Gyðingar sem skiptast í marga ólíka hópa eru um 7,7 milljónir eða 74% íbúa í Ísrael, Arabar (flestir súnnítar) eru um 1,9 milljónir eða 18%, Kristnir eru innan við 2%, Drúsar um 1,5%, aðrir óskilgreindir um 4,5%. Þannig að Ísrael er alls ekki einsleitt samfélag heldur einkennist það af fjölhyggju en augljóst er að gyðingar eru langfjölmennastir og svo er því við að bæta að gyðingarnir eru ekki einhuga um allt sem flækir stöðuna.

Stríð eru ætíð hryllileg. Bandamenn réðust inn í Þýskaland til þess að fella Hitler og hans hyski. Það varð að stöðva brjálæðið. Við Íslendingar vorum ekki beinir þátttakendur í seinni heimstyrjöldinni en hún hafði mikil áhrif á þjóðina en við vorum ekki með her og íslenskir karlar urðu ekki hermenn.

En sjötíuþúsund Bretar fórnuðu lífi sínu í stríðinu við Hitler og 2 milljónir Þjóðverja létu lífið í átökunum. Fórnarkostnaðurinn var gífurlegur. Í stríði eru ætíð færðar fórnir, en sú fórn sem hér er nefnd varð til þess að óværan var upprætt.

Ummyndun Jesú eftir Raphael , hálfkláruð mynd við dauða hans árið 1520

Lokaorð

Hin kristnu Vesturlönd eiga nú við þann vanda að etja að upplausn er orðin staðreynd og að grunngildum kristinnar trúar er ekki lengur miðlað milli kynslóða eins og gert var um aldir.

Vesturlönd standa nú frammi fyrir nýjum áskorunum.

Vekja þarf fólk af svefni og kalla til þjónustu við hin himnesku gildi sem kristallast í orðum Páls postula um kærleikann:

1Þótt ég talaði tungum manna og engla

en hefði ekki kærleika

væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.

2Og þótt ég hefði spádómsgáfu

og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking

og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú að færa mætti fjöll úr stað

en hefði ekki kærleika,

væri ég ekki neitt.

3Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum

og þótt ég framseldi líkama minn til þess að verða brenndur

en hefði ekki kærleika,

væri ég engu bættari.

4Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki.

Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.

5Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin,

hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.

6Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni en samgleðst sannleikanum.

7Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.

8Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.

En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok,

og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok.

9Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum.

10En þegar hið fullkomna kemur líður það undir lok sem er í molum.

11Þegar ég var barn talaði ég eins og barn,

hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn.

En þegar ég var orðinn fulltíða lagði ég niður barnaskapinn.

12Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu,

en þá munum vér sjá augliti til auglitis.

Nú er þekking mín í molum

en þá mun ég gjörþekkja eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn.

13En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt,

en þeirra er kærleikurinn mestur.

Að allir lifi fullkomlega eftir þessum boðskap er víst ómögulegur möguleiki. Þannig er lífið oft mótsagnarkennt, en það sem mestu skiptir er að allir reyni að gera sitt besta til að styrkja hið góða og fagra sem postulinn setti í orð með sínum fagra óði um kærleikann. – og berjast gegn hinu illa.

Kærleikurinn ætti að vera okkar æðsta mark og mið.

Posted on

Greinar og hugvekjur / Articles
Minningarorð / Funeral Sermons
Myndlist / Art
Prédikanir / Sermons
,