
um hetjudáðir hermanna
sem aftengdu jarðsprengjur í tveimur heimsstyrjöldum liðinnar aldar
Teiknað í Varsjá 29.5.26
Það horfir ekki friðvænlega í heiminum um messar mundir Hef dvalið mánuð í Póllandi. Saga landsmanna er mörkuð styrjöldum og átökum í rás sögunnar.
Íslendingar hafa sloppið bærilega, en er nú ógnað af forheimskandi áhrifum samfélagsmiðla og tortímandi öflum illskunnar í heiminum.
Illskan er sjálfstætt afl i tilverunni sem stríðir mót kærleikanum.
Páll postuli varaði við því sama, að breyttu breytanda og sagði:
“Að lokum: Styrkist í Drottni og krafti máttar hans. 11Klæðist alvæpni Guðs til þess að þið getið staðist vélabrögð djöfulsins. 12 Því að baráttan sem við eigum í er ekki við menn af holdi og blóði heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum. 13 Takið því alvæpni Guðs til þess að þið getið veitt mótstöðu á hinum vonda degi og haldið velli þegar þið hafið sigrað allt.
14 Standið því gyrt sannleika um lendar ykkar og klædd réttlætinu sem brynju 15 og skóuð á fótunum með fúsleik til að flytja fagnaðarboðin um frið. 16 Takið umfram allt skjöld trúarinnar sem þið getið slökkt með öll logandi skeyti hins vonda. 17 Setjið upp hjálm hjálpræðisins og grípið sverð andans, Guðs orð. 18Gerið það með bæn og beiðni og biðjið á hverri tíð í anda. Verið þannig árvökul og stöðug í bæn fyrir öllum heilögum.”
You must be logged in to post a comment.