grein eftir Örn Bárð Jónsson · október 2026

Viltu hlusta á höfundinn lesa? Smelltu hér:
Í orðræðu á samfélagsmiðlum, þar sem talað er í símskeytastíl í hita leiks, fer ýmislegt forgörðum. Umræðan verður oft að eintómum upphrópunum og sleggjudómum. Sumir hafa bókstaflega hraunað yfir mig og ég í sumum tilfellum brugðist við þeim yfirgangi. Í hita leiksins geta menn svitnað og glíman orðið römm. Menn hjóla oft í manninn en ekki málefnið, ad hominem en ekki argumentum ad rem eins og það heitir í fræðunum. Ráðist er á manninn en ekki textann: “Þú er prestur . . . ” o.s.frv. í miklum hneykslunartón.
Ég settist niður og ritaði grein sem ég hef marg leiðrétt, legið yfir og lagað og loks unnið í samvinnu við góða ráðgjafa, þar á meðal gerivigreind, sem hefur skerpt margt af því sem var í frumtexta mínum, en leiðrétt annað. Ég leyfi mér að taka það fram að mér hefur líka tekist að leiðrétta gervigreindina – og hún viðurkenndi það! Gervigreindin (GG) ritaði ekki greinina en ég fékk hana til að lesa textann og gefa ráð.
Mikilvægt er að menn skoði vel afstöðu sína til alvarlegra mála sem eru í umræðunni og rökræði hana við þá sem eru tilbúnir til að leiðrétta með “hógvæðar anda” eins og sagt er í Hinni helgu bók.
Hér kemur afurðin:
(more…)











