“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Þröng staða

    Að taka afstöðu í erfiðum málum.

    Í þröngri stöðu
    – myndin fengi að láni af Veraldarvefnum.

    Viltu hlusta? Tekur 16 mínútur.

    Hvers vegna lögsækir enginn hryðjuverkasamtökin Hamas fyrir gengdarlausa glæpi og illvirki? Hvað hefur Mannréttindadómstóll Evrópu að segja um Hamas?

    (more…)
  • Nokkrar skissur í mars 2026

    Teiknað með penna og vatnsheldu bleki, litað með vatnslitum.

    Prófaðu að þysja myndirnar út svo þær stækki á skjánum!

    Esjan alltaf klassísk
    Minni-Vatnsleysa
    Bókahilla heima
    Messa á Grund – tónlistarfólk og klerkur
    Stud. teol. Matthías Guðmundsson prédikar,
    málverk Jóhanns Briem í bakgrunni
  • Ríki gyðinga

    Nýlegur fornleifafundur sannar tilvist Ísraelsríkis fyrir um 2.700 árum

    Assýríska innsiglið er það eina sem fundist hefur
    frá tímum fyrsta musterisins.
    Mynd: Yoli Schwartz hjá Ísraelsku fornleifastofnuninni.
    (more…)
  • Kærleikurinn mestur

    13. mars 2026

    I Korintubréf 13.1-13

    Upplestur 3 mínútur

    Stærsta gjöfin

    Þótt ég talaði tungum manna og engla
    en hefði ekki kærleika
    væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. 
    2Og þótt ég hefði spádómsgáfu 
    og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking
    og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú að færa mætti fjöll úr stað 
    en hefði ekki kærleika, 
    væri ég ekki neitt. 
    3Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum 
    og þótt ég framseldi líkama minn til þess að verða brenndur 
    en hefði ekki kærleika, 
    væri ég engu bættari. 
    4Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. 
    Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp. 
    5Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, 
    hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
    6Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni en samgleðst sannleikanum. 
    7Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
    8Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. 
    En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok, 
    og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok. 
    9Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum. 
    10En þegar hið fullkomna kemur líður það undir lok sem er í molum.
    11Þegar ég var barn talaði ég eins og barn, 
    hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn. 
    En þegar ég var orðinn fulltíða lagði ég niður barnaskapinn. 
    12Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu, 
    en þá munum vér sjá augliti til auglitis. 
    Nú er þekking mín í molum 
    en þá mun ég gjörþekkja eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn. 
    13En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, 
    en þeirra er kærleikurinn mestur.

  • Öll veröldin er leiksvið

    Viltu hlusta í 5 mínútur? Smelltu!

    Mögnuð upplifun var að fá að njóta dagskrár í Norðurljósasal Hörpu, 11. mars 2026, þar sem flutt var leikhústónlist eftir tónskáldið Hjálmar H. Ragnarsson.

    Verkin hans bera vott um stórar víddir, hæð og dýpt. Ég velti því fyrir mér hvernig tónskáldið hafi náð því að skrifa niður öll hin flóknu tilbrigði verkanna og fyrirmæli handa flytjendum? Eitt er að skapa verk í huga sér, annað er að koma því á blað og tryggja því líf og framtíð í höndum listamanna.

    Og til að sjá allan textann skaltu smella á fyrirsögnina efst!

    (more…)
  • Um gyðingaandúð og kristna trú

    Séra Gunnar Jóhannesson svarar grein Sigurgísla Skúlasonar sálfræðings.

    Upplestur annaðist Örn Bárður Jónsson og birti hér með leyfi höfundar.

    Hljóðupptaka hér!

    Ég sendi séra Gunnari þessi viðbrögð:

    Frábært svar hjá þér. Þú færist hvergi undan enda er staða okkar sú að við eru Simul justus et peccator.


    Varðandi þá sem tóku Jesú af lífi og aðkomu Gyðinga að því þá finnst mér mikilvægt að segja:

    hvað varðar hinn róttæka kærleiksboðskap Jesú og gagnrýni hans á valdið, þá hefði engu skipt hverjir voru við völd.

    Ekkert vald hefði þolað gagnrýni hans og hnífskarpan kærleiksboðskap sem sá í gengum allan yfirdrepskap og spillingu.

    Lýðræði samtíma okkar hefði líklega fallið á sama prófi.

  • Heimspekilegar rætur Wóke-ismans

    The Philosophical Roots of Wokeism

    eftir Robert Barron biskup 8. janúar 2024

    Viltu hlusta? Hér er upptakan:

    Þessi ritgerð er ritstýrt afrit af fyrirlestri Roberts Barron biskups, sem fluttur var við Acton-háskóla í BNA 21. júní 2023.

    Myndin er ótengd greininni sem slíkri en hér er vintað í orð hans:
    “Við höfum þaggað niður í trúnni”

    Því má halda fram að meginþema menningarumræðunnar á Vesturlöndum í dag sé „vökuhyggja“ [Woke]. Þetta hugsana- og athafnakerfi hefur á merkilegan hátt fundið leið sína inn í nánast alla króka og kima stjórnmála-, efnahags- og menningarsviðs okkar og hefur gríðarlega skaðleg áhrif á menninguna. Einn af stærstu stjórnmálaflokkum okkar [hér á höf. við BNA ] hefur að mestu leyti skipulagt sig í því að verja hugmyndir um vöku og innleiða vökustefnur, og hinn stóri flokkurinn hefur byrjað að skipuleggja sig gegn þeim.

    Orðið „Wók“ heyrist mikið þessa dagana, en hvað er það? Hverjar eru rætur þess? Og hvað þýðir það fyrir stjórnmál, trúarbrögð og framtíð menningar okkar? Robert Barron biskup veitir nauðsynlega innsýn.

    (more…)
  • Fréttum RÚV seinkað flesta daga

    Ég er með nákvæma klukku í símanum mínum og treysti henni algjörlega og sé að fréttir RÚV eru hættar að hefjast á slaginu t.d. í hádegi kl. 12:20. Sama gildir kl. 18 og á öðrum stundum.

    Auglýsingar eru látnar leka inn í fréttatímann og oft byrja fréttir ekki fyrr en 45 sekúndum eða 1 mínútu eftir réttan tíma.

    Frá því ég var barn sló útvarpsklukkan og svo hófust fréttir á réttu andartaki, návæmlega á slaginu.

    Ber þetta vott um græðgi RÚV eða er gervihnattarklukkan í símanum mínum ekki rétt?

    —

    Sæl, Örn og takk fyrir póstinn.

    Ég get fullvissað þig um að útvarpsfréttir eru settar í gang á slaginu 12.20 og svo á heila tímanum þess utan, samkvæmt okkar klukku. Get ekki sagt til um hvar hún hittir á klukkuna hjá þér.

    Bestu kv.

    Þorgils

    Þorgils Jónsson

    Fréttamaður – RÚV

    Þá svaraði ég:

    Þakka þér svarið, Þorgils.

    Undarelgt að úrið mitt, símninn og tölvarn, sem taka  tímann frá gervitunglum, skuli ekki hafa sama tíma og RÚV.

    Ég spurði Netið:

    Where does the iPhone get its time from?

    Cellular Networks: Timekeeping on the Go

    Whenever your phone connects to a cell tower, it receives time information broadcasted by the tower. Cell towers are synchronized using GPS satellites and local atomic clocks, so the time information they provide is extremely accurate. (letrubr mín)

    Mbk,

    Örn B

    Svo mörg voru þau orð. Ég leitaði á vefnum á time.is og þar kemur fram að klukkan mín er of fljót sem nemur ca. 90 sekúndum!

    Og hvernig stendur svo á því? Það þarf ég að kanna. Búinn að skrifa Apple og bíð svars!