“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Tómatar í glerskál – Tomatos in a glassbowl

    Tómatar í glerskál - Tomatos in a glassbowl

    Teiknað í eldhúsinu heima.

    Drawn in the kitchen at my home in Reykjavik Iceland.

  • Dagur vonar um betri kjör – 1. maí

    kaffi 1. mai - myndblogg

    Með morgunkaffinu varð þessi færsla til.

    1. maí er dagur vonar um betri tíð. Launafólk þjappar sér saman og minnir á kröfu sína um réttlátt þjóðfélag, sanngjarna skiptingu þess arðs sem landið gefur. Konan mín gekk fremst í flokki sjúkraliða með fána félagsins. Í mörg ár hef ég gengið með henni og öðru launafólki en tók mér frí í dag vegna annarra verkefna.

    Hver verða kjörin á næstu misserum og árum í kjölfar hinna ótrúlegu úrslita í kosningunum til Alþingis?

    Áfram launafólk!

    – – –

    Urban Sketch info: In my kitchen in Reykjavik Iceland on May 1, 2013

  • Gleðilegt sumar!

    Aegisidan2012skissaFuglum fjölgar ört á Fróni þessa dagana og þeir eru önnum kafnir við hreiðurgerð og sumir þegar búnir að verpa.

    Birtan er skær og undurfögur en veðrið enn svalt.

    Dýrlegt kemur sumar með sól og blóm,
    senn fer allt að vakna með lofsöngsróm,
    vængjaþytur heyrist í himingeim,
    hýrnar yfir landi’ af þeim fuglasveim

    Svo orti séra Friðrik Friðriksson og sálminn allan er hægt að skoða hér.

    Ég byrjaði að vatanslita í fyrra og gerði þá t.d. þessa teikningu með sjálfblekungi og litaði með vatnslitum. Myndefnið sjáflt, skúrarnir við Ægisíðu, eru listaverk en ég hef notið þess að horfa á þá daglega undanfarin ár. Svo hef ég reynt að festa þá á pappír með ýmsu móti.

    Sá um daginn síðu á vefnum þar sem teiknarar birta myndir og stutta texta, einskonar myndblogg. Mun reyna að birta af og til MYNDBLOGG á þessum vettvangi.

    Njótum sumarsins!

    – – –

    Urban Sketch info: Fishing huts at Aegisida, Reykjavik, Iceland. Outside the window where I live in Reykjavik.

  • Hún sem trúir á landið

    loanMeðan öskuský frá Eyjafjallajökli breiddist yfir meginland Evrópu 2010 og lamaði nánast allt flug í álfunni blakaði lóan vængjum sínum og barðist gegn vindum og veðrum, ösku og eimyrju til þess eins að komast til Íslands. Í ár kom lóan mun fyrr til landsins en oft áður. (more…)

  • Þjónkun og þöggun

    þoggunUndarlegt er að upplifa hvernig kaupin gerast á eyrinni í aðdraganda kosninga. Annars vegar eru flokkarnir sem setið hafa á Alþingi með tæpa 400 milljónir frá almenningi í sjóðum sínum til að reka áróður fyrir starfi sínu allt árið.  Hins vegar eru nýju framboðin auralaus á byrjunareit. (more…)

  • Örstutt skilaboð til þín!

    floskuskeytiSmelltu á slóðirnar hér fyrir neðan.

    Það tekur ekki nema rúma eina mínútu að hlusta á allar upptökurnar þar sem ég tjái mig um stefnu Lýðræðisvaktarinnar:

    1. http://www.youtube.com/watch?v=Ef4yPghYAgA

    2. http://www.youtube.com/watch?v=zyMf_dZkl14

    3. http://www.youtube.com/watch?v=f5929IwCChg

    4. http://www.youtube.com/watch?v=jynmszuDNjc

    5. http://www.youtube.com/watch?v=QObg4BZ4ccw

  • Protected: Klámhögg

    This content is password-protected. To view it, please enter the password below.

  • 5% eða ekki 5%?

    kjorsedillRangtúlkun á 5% reglunni í alþingiskosningum gengur eins og logi i akri þegar rætt er um nýju framboðin. Hræðusluáróður um að atkvæði fari til ónýtis hentar mjög þeim flokkum sem náð hafa 5% fylgi skv. skoðanakönnunum. Þorkell Helgason, guðfaðir kosningakerfisins, segir þetta um 5% regluna á Fasbókarsíðu sinni:

    (more…)

  • Stattu við orð þín, íslenska þjóð!

    Image

    Alþingi sveik þig, þjóð mín, með því að hunsa vilja þinn sem kom afar skýrt fram í þjóðaratkvæðagreðslunni 20. október s.l.

    Vonbrigðin með svik flokkanna fimm voru svo mikil að við sem bjóðum okkur fram fyrir Lýðræðisvaktina stigum fram til að lýsa okkur reiðubúin til að standa næstu vakt og koma Íslandi út úr hinni lamandi kreppu sem er ekki aðeins fjármálaleg heldur einnig andleg og hugarfarsleg. (more…)

  • Hægri, vinstri – eða?

    vinstrihaegriHvar er framboðið þitt á hinum lárétta ási? Er það til hægri eða vinstri?

    Öll þekkjum við láréttaásinn þar sem venja er að raða framboðom, flokkum og einstaklingum eftir skoðunum til vinstri eða hægri. Þessi aðgreining í stjórnmálum varð til í Frakklandi 1789 þegar konungshollum þingmönnum var skipað til hægri frá forseta þingsins séð og stuðningsmönnum byltingarinnar til vinstri. (more…)