Lokahendingin gerð á skírdag 6. apríl 2023 og er viðbót þýðanda, en móðurafi minn fæddist einmitt 6. april 1891 og var því 5 árum yngri en sá er orti ljóð sitt um Tréð.
Þjóna um þessar mundir á Vopnafirði og hef aukaþjónustu að hluta til á Þórshöfn.
Góð færð var um heiðar og láglendi og stansaði ég af og til og teiknaði.
Nota sjálfblekung með vatnsheldu bleki og því er nánast engu hægt að breyta. Svo litaði ég er heim kom með vatnslitum.
Vitjaði Skeggjastaðakirkju og átti þar góða stund.
Skeggjastaðakirkja er úr timbri og var byggð árið 1845 og er elst kirkna á Austurlandi eða 180 áraSkeggjastaðakirkja séð frá þjóðveginum, íbúðarhúsið, sem einnig var skóli, sést að baki sáluhliði Eyðibýlið DjúpilækurUm kvöldið ók ég norður Hofsárdal og út á Tanga til að vitja vina og skyldfólks
Þakka fagra útför séra Vigfúsar Þórs Árnasonar, kollega míns, sem ég fylgdist með á Netinu héðan á Hofi í Vopnafirði þar sem ég þjóna um þessar mundir.
Presti og biskupi mæltist vel, athöfnin öll fögur og tónlist til fyrirmyndar.
Fjöldi fólks fylgdi honum og kvaddi í fögrum helgidómi sem hann var ætíð afar stoltur af.
Góður drengur séra Vigfús Þór, einstaklega jákvæður og fús til verka, leiðtogi sem fékk fólk til liðs við góð málefni á lífsveginum.
Samúðar- og blessunaróskir til eiginkonu hans, Elínar Pálsdóttur, barna, tengdabarna, afkomenda, ættingja, vina og samstarfsfólks.
Búinn að fylla seinustu bók með einum sextíu myndum og ný tekin í notkun.
Ein ljósmynd er hér fyrst og svo sex vatnslitaðar pennateikningar sem urðu til á s.l. fimm dögum.
Gekk um í Hofslandi og kom að þessu minnismerki um Vopnfirðingasögu þar sem Brodd-Helgi gegndi fyrirferðarmiklu hlutverki. Sagan er um grimmd og valdabaráttu en friðlegra varð lífið í Hofsárdal þegar leið frá landnámi og kristnin tók við með nýju gildismati. Hofsáin bylgjast niður langan dalinn og rennur til sjávar nokkrum kílómetrum fyrir norð-austan Hof.“Sjóhús 1950” heitir þetta hús sem stendur við höfnina og er í eigu frænda minna, Páls og Ásmundar, sona Aðalsteins Sigurðssonar og Stefaníu Sigurðardóttur, frænku minnar, en hún og móðir mín voru bræðradætur. Stefanía dó ung (1925-1968) en þau hjónin leiddu starf Hvítasunnusafnaðarins í Vopnafirði. Rósa dóttir þeirra var fædd 1958 en lést 2019. Páll og kona hans Astrid Örn, sem er sænskumælandi Finni að uppruna sem talar reiprennandi íslensku, leiða starf safnaðarins og ég hef átt með þeim góðar bæna- og lofgjörðarstundir á liðnum sunnudögum.Munkur íhugar og fer með hina fornu Jesú-bæn, sem er úr hefð Austurkirkjunnar, þ.e. hinnar Orþódoxu eða Rétttrúnaðarkirkjunnar eins og hún heitir á íslensku. Bænin hljóðar þannig: “Jesús Kristur, sonur Guðs, frelsari, miskunna mér, syndugum.” Bænin er beðin hægt og tengd inn- og útöndun sem fyllir mann friði og vellíðan. Myndin var skissuð eftir mynd á Netinu.11. mars 2025 og forsmekkur af vori í lofti.Bob Dylan syngur, Don’t Think Twice It’s All Right í Madison Square Garden með Eric Clapton og hljómsveit á YouTube 1999. Skissað af skjánum.Neil Young, ungur að árum, á YouTube, sællegur með hatt, syngur, Four Strong Winds, fagurt lag um vorið í Kanada. Skissað af skjánum.Kallinn í Kiljunni, Egill Helgason, í þætti sínum 12. mars 2025 með Kolbrúnu og Þorgeiri. Skissað lauslega af skjánum meðan horft var og hlustað á umfjöllun um bækur.
Guðsþjónusta í Hofskirkju í Vopnafirði 1. sunnudag í föstu en texti dagsins úr Gamla textamentinu er lykill að skilningi á lífinu, frásagan um Adam og Evu í Paradís og fall mannkyns. Guðspjallið flytur okkur söguna af Freistingu Jesú og pistillinn á milli úr 2. Korintubréfi fjallar um lífsbaráttuna.