“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Dymbilvika og páskar – þjáning og dýrð

    Í kyrruviku/dymbilviku, þegar við erum hvött til þess að huga að hinum alvarlegri stefjum lífsins, birti ég hér Kristsmynd, sem ég málaði nýlega með vatnslitum.

    Hún minnir á þjáningu Krists,

    sem endaði með algjörum sigri,

    er hann reis upp frá dauðum á páskadag.

    Í myndinni er vísað til þjáningar og sorgar

    með fjólubláum lit föstunnar

    og strikum sem tjá svipuhögg

    og misþyrmingu illra og spilltra yfirvalda.

    Boðun fagnaðarerindis Krists
    skiptir heiminn miklu máli – og hefur ætíð gert.


    Samtíminn þarfnast friðar og kærleika
    í anda Krists sem stóð og stendur með þjáðum,
    fyrirgefur illvirkjum og ódæðismönnum,
    varar við fordómum og dómsýki og
    boðar mönnum sáttargjörð og frið.


    Gott er að fá að vera í hans hjörð.

    Nú á þriðjudegi í dymbilviku bíða mín 9 athafnir í 5 kirkjum á NA-landi og einni í Reykjavík um bænadaga, páska og dagana eftir páska.

    Taktu eftir!

    Sama hvort þú víkur frá myndinni til hægri eða vinstri
    þá fylgja þér augu Frelsarans.

    Prófaðu!

    Hinn þjáði Kristur –

    Vatnslitamynd eftir Örn Bárð Jónsson 2025 ©

  • Áhrif og áróður – þankar á föstu 2025

    Áhrifavaldar

    Viltu lesa eða hlusta? Þú getur valið hvort tveggja

    eða annað tveggja!

    Margt er það sem hefur áhrif á okkur í samtímanum. Samfélagsmiðlar eru nýtt fyrirbrigði og þar hafa sprottið fram einstaklingar sem kalla sig áhrifavalda en segja má að séu fátt annað en venjulegir nobodies sem vilja verða somebodies. Oftast er um að ræða reynslurýrt fólk.

    (more…)
  • Fasta, fiskur, fjárhagur Íslands

    Prédikun í Vopnafjarðarkirkju 6. apríl 2025

    Hvernig trúin hefur lagt grunninn að íslensku efnahagslífi.

    Textar dagsins má lesa hér: https://kirkjan.is/kirkjan/kirkjuarid/kirkjuarid-nanar/?itemid=d29a4235-ab47-11ef-9bb4-005056bc428f

    Sjóhús 1950 – tilheyrir frændum mínum á Vopnafirði.
    Teiknað við höfnina í vetur með bleki og síðan litað með vatnslitum.

    Og hér geturðu hlustað á prédikunina sem svarar því hvernig trúin hefur lagt grunn að efnagagslífi Íslendinga.

  • +Þórir Guðmundur Gunnlaugsson 1944-2025

    Bálför frá Árbæjarkirkju, föstudaginn 4. apríl 2025 kl. 13

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Þórir Gunnlaugsson

    1944-2025

    skrifvélavirki

    frá Ísafirði

    (more…)
  • Opnar gervigreindin mæri lífs og dauða?

    Mynd af Vefnum

    Þessir þankar mínir vöknuðu við lestur fréttar í New York Times, á þessum bjarta sunnudagsmorgni, 30. mars 2025.

    Hluta fréttarinnar þýddi ég fyrst með hjálp Google til að flýta fyrir mér og lagfærði svo sjálfur.

    Og hér kemur textinn og hljóðupptaka af greininni og ef hún birtrist ekki öll, smelltu þá á fyrisögnina:

    (more…)
  • TRÉ!

    Ljóð eftir

    Joyce Kilmer liðþjálfa (1886-1918)

    Þýðing: Örn Bárður Jónsson 2023

    Pennateikning af skálduðu tré

    Tré

    Ég efast um ég fái séð

    einn ljóðastofn, sem indælt tréð.

    Tréð er hefur soltið sózt

    að sjúga jarðar þrútin brjóst,

    Er ávallt sýnir lauf sín græn

    og syngur Guði þakkarbæn,

    Tréð er skrýðist í sumarblíðu

    söngfuglum í hári síðu,

    Að vetri haddur hvítur er,

    um hörputíð með sætust ber,

    Nú glöggt sem glópaskáld ég sé

    – að Guð einn getur skapað tré.

    [Með ljóð mín kræklótt, bogin kné,

    ég krýp og faðma lífsins tré.]

    Lokahendingin gerð á skírdag 6. apríl 2023 og er viðbót þýðanda, en móðurafi minn fæddist einmitt 6. april 1891 og var því 5 árum yngri en sá er orti ljóð sitt um Tréð.

    Trees

    SERGEANT JOYCE KILMER 165th Infantry

    (69th New York), A. E.F.

    (Born December 6,1886; killed in action

    near Ourcy, July 30, 1918)

  • Teiknað á ferð milli Vopnafjarðar og Þórshafnar

    Þjóna um þessar mundir á Vopnafirði og hef aukaþjónustu að hluta til á Þórshöfn.

    Góð færð var um heiðar og láglendi og stansaði ég af og til og teiknaði.

    Nota sjálfblekung með vatnsheldu bleki og því er nánast engu hægt að breyta. Svo litaði ég er heim kom með vatnslitum.

    Vitjaði Skeggjastaðakirkju og átti þar góða stund.

    Skeggjastaðakirkja er úr timbri og var byggð árið 1845
    og er elst kirkna á Austurlandi eða 180 ára
    Skeggjastaðakirkja séð frá þjóðveginum, íbúðarhúsið,
    sem einnig var skóli, sést að baki sáluhliði
    Eyðibýlið Djúpilækur
    Um kvöldið ók ég norður Hofsárdal og út á Tanga til að vitja vina og skyldfólks
  • “Nú byltist allt og breytist”

    The Times They Are A-Changin

    Þorsteinn Valdimarsson, þýddi

    Örn Bárður raular

  • Séra Vigfús Þór Árnason kvaddur

    Þakka fagra útför séra Vigfúsar Þórs Árnasonar, kollega míns, sem ég fylgdist með á Netinu héðan á Hofi í Vopnafirði þar sem ég þjóna um þessar mundir.

    Presti og biskupi mæltist vel, athöfnin öll fögur og tónlist til fyrirmyndar.

    Fjöldi fólks fylgdi honum og kvaddi í fögrum helgidómi sem hann var ætíð afar stoltur af.

    Góður drengur séra Vigfús Þór, einstaklega jákvæður og fús til verka, leiðtogi sem fékk fólk til liðs við góð málefni á lífsveginum.

    Samúðar- og blessunaróskir til eiginkonu hans, Elínar Pálsdóttur, barna, tengdabarna, afkomenda, ættingja, vina og samstarfsfólks.

    Blessuð sé minning séra Vigfúsar Þórs Árnasonar.

  • Nýtt video-blogg með athyglisverðum texta um sorg og missi sem ég þýddi

    Er að prófa að setja inn Video-klippur á heimasíðu mína.

    Sjáum hvernig til tekst.