“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • „Fjármálamarkaður: Trúarbrögð nútímans“ – “Meltdowns: The Perils of Extreme Finance”

    FyirlesturMarkCTaylor

    Sat málþingið sem kynnt er fyrir neðan punktana mína.

    Mínir þankar:

    Athyglisverð umræða sem ég held að kristallist í því að 1. boðorðið er forsmáð. Um leið og eitthvað verður „guð“ og kemur í staðinn fyrir hinn eina sanna GUÐ, þá fer allt á verri veg. Fjármálakerfið fyrir Hrun fór sínar eigin leiðir og yfirgaf Eden hins siðlega og rétta. Íslenskir fjármálamenn sögðu sumir að siðferðis væri ekki þörf í viðskiptum því markaðurinn sæi um það. Hin ósýnilega hönd markaðarins (Adam Smith) var guðleg í augum þeirra og því þurfti lítið sem ekkert eftirlit. Við vitum hvernig fór. Við enduðum út í skurði. Þannig var það líka í Eden forðum. Adam og Eva lentu líka úti í skurði, utangarðs, á vergangi í striti og streði til æviloka. Lestu fyrsta kaflann í 1. Mósebók. Hún er táknsaga um lífið og merkasti texti sem til er.  Táknsögurnar á fyrstu síðum Biblíunnar eru lyklar að skliningi á öllu mannlífi, reisn mannsins og hruni hans, gáfum  og brjálæði, elsku  og hatri, getu  og vanmætti.

    Þakka góða stund og hugvekjandi þanka fyrirlesara og þeirra sem viðbrögð veittu. Passamynd fyrirlesarans er án efa betri en sú sem hér er dregin upp. Forlátið mér framhleypnina á sviði myndlistarinnar 😉

    “Fjármálamarkaður: Trúarbrögð nútímans”

    Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar boðar til málþings með

    dr. Mark C. Taylor, forseta trúarbragðafræðideildar Columbia Háskóla í

    New York. Erindi hans er “Meltdowns: The Perils of Extreme Finance”, sjá

    neðar.

    Málþingið verður fimmtudaginn 16. maí kl. 13-16 í fyrirlestrasal

    Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu. Málþingið er haldið í samstarfi við

    Guðfræðistofnun HÍ og Hugvísindadeild. Ekkert námskeiðsgjald.

    Viðbrögð veita dr. Jón Ólafsson, heimspekingur, og Sigríður Ingbjörg

    Ingadóttir, hagfræðingur.

    Hér er abstrakt frá Mark C. Taylor um erindi hans:

    “Meltdowns: The Perils of Extreme Finance

    In the past several decades a new form of capitalism has emerged:

    finance capitalism.  This has been the result of a combination of

    factors ranging from technological innovation to changes in regulatory

    policies.  The critical variable is speed.  Today’s high-speed,

    high-frequency trading has created a system has already brought

    devastation and now threatens to collapse.

    While apparently hyper-modern, financial capitalism has its roots in

    modernity.  Speed is, in fact, a modern invention.  But modernity, in

    turn, was initiated by Luther.  From Wittenberg to Reykjavik – an

    unlikely but timely trajectory.”

    Miðvikudaginn 15. maí kl. 10-12 verður dr. Mark C. Taylor með seminar

    sem nefnist Framtíð háskóla einsog við þekkjum þá. Það verður haldið í

    samtarfi við Hugvísindastofnun HÍ og Guðfræðistofnun HÍ og nánar auglýst

    síðar.

    Hér eru upplýsingar um dr. Mark C. Taylor. Hann er doktor í heimspeki

    frá Kaupmannahafnarháskóla og doktor í trúarbragðafræði frá Harvard.

    Hann hefur ritað fjölmargar greinar og á þriðja tug bóka á ýmsum

    fræðasviðum. Meðal fyrstu bóka eru rit um Hegel og Kierkegaard en meðal

    nýrri bóka hans eru “Confidence Games: Money and Markets in a World

    without Redemption” (2006) og “After God” (2007). Hann er umdeildur,

    afkastamikill og fjölfróður, enda hefur hann skrifað um guðfræði,

    heimspeki, hagfræði, listfræði og arkítektúr. Hann hefur

    hlotið fjölda viðurkenninga fyrir fræðastörf. Hann er áhrifamikill

    höfundur og vekjandi fyrirlesari.

  • Heim

    destiny

    Heim

    Prédikun við guðsþjónustu 

    í Neskirkju

    sunnudaginn 12. maí kl. 14

    í samvinnu við Ísfirðingafélagið

    Kór heimamanna leiðir söng

    Organisti Guðný Einarsdóttir

    Þú getur lesið ræðuna og hlustað á hana hér fyrir neðan. (more…)

  • „Hið skapandi þunglyndi“

    Malthing1&2B

    Mætti á málþing í Árnagarði, HÍ, og hlustaði þar á fræðimenn. Glósaði í Moleskine bókina mína og rissaði á blöð sem ég síðan klippti og límdi inn í skissubókina mína. Þetta mybdblogg er endurgert þ.e.a.s. myndir af þremur fyrirlesurum voru teiknaðar upp á nýtt.

     

    Nánari upplýsingar um dagsrkána er hér.

  • Spennistöð eða spennitreyja?

    spennistod

    Teiknaði í hádeginu á sólbjörtum maídegi. Spennistöðin er bak við heimili mitt og er flott hús sem slíkt.

    Senn fer allt að grænka á ný og spennan að aukast í mannlífinu, hin heilbrigða sumarspenna sem gerir okkur öll hressari og glaðari.

    Öðru máli gegnir um spennuna sem er í stjórnmálum landsins. Í því sambandi dugar engin spennistöð til að jafna strauminn heldur er þörfin vaxandi fyrir  spennitreyju á sjálftökuliðið í Sjálfsóknarflokknum.

  • Í lausu lofti – hrunið er ekki búið!

    Í lausu lofti - hrunið er ekki búið!

    Reyndur hagfræðingur sagði við mig að hrunið væri ekki atburður sem bæri búinn heldur ferli sem enn stæði yfir. Hann vitnaði í teiknimyndir þegar menn hlaupa fram af bjargbrún og spóla í lausu lofti. Svo kemur skellurinn. Við erum nú í þessu lausa lofti, sagði hann. Skelfilegt ef rétt reynist!

  • Kristinn Traustason 1936-2013

    Kristinn TraustasonMinningarorð

    Kristinn Traustason

    fv. bílamálari og hestamaður

    Vallarási 4

    Reykjavík

    1936-2013

    Ræðuna er hægt að lesa og hlusta á hér fyrir neðan með því að smella á þríhyrninginn.

    (more…)

  • „ . . . einn hjá björkunum við Hljómskálann“

    Við Hljómskálann

    Þann 1. maí, síðdegis, fór ég á hjólinu um Vesturbæinn, Þingholtin og Skuggahverfið. Á bakaleiðinni eftir heimsókn á gjörgæslu LHS við Hringbraut kom ég við á gatnamótunum við Hljómskálann og teiknaði mynd af Hljómskálanum og styttunni  sem er í Hallargarðinum handan við gatnamótin. Sólin hafði lækkað mjög á lofti enda síðdegi og hitastigið undir frostmarki en litirnir voru tærir, himinninn blár og skær. Bjarkirnar eru enn króknaðar og fölar en þær munu vakna við vorsins yl. (more…)