“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Skissað í Varsjá og á Reykjanesi

    Fór á hjóli í Gömlu borgina í Varsjá

    undir lok júní ’26 til að teikna

    og svo ók ég hring um Reykjanesið í gegnum Grindavík,

    út á Reykjanes og þaðan í Hafnir og Hvalsnes, Sandgerði og Garð sunnudaginn 26. júlí 2026

    Nýtízku turnar kapítalismans kallast á við gamla borgarmúrinn í Varsjá
    sem reistur var af kapítalistum þess tíma!
    Reykjanesviti og nágrenni
    Eldey stendur vörð á sínum stað
    Undir “ilinni” á Reykjanesi
    “þar sem
    Jökulinn ber við loft”.

    Kirkjuvogur í Höfnum sem var annexía mín er ég þjónaði sem sóknarprestur í Grindavík 1985-1990
    Hvalsneskirkja og hús á “ilinni” með jökulinn í baksýn
    Gamli Garðskagaviti og hinn nýi og allsstaðar minnir Jökullinn á sig!
  • Hinn óþægilegi sannleikur um möguleika Gaza til sjálfstjórnar

    Grein úr The Telegraph 24. júlí 2026 eftir David Harris

    Þýðandi Örn Bárður Jónsson

    Í veröld sem er “handan sannleikans” er Gazaströndin í skugga tilfinningalegra áfrýjana og hugmyndafræðilegra frásagna.

    Grein eftir David Harris, þýdd af Erni Bárði Jónssyni 24. júlí 2026.

    Gaza er við ströndina fyrir botni Miðjaðarhafsins
    (more…)
  • +Séra Þórir Stephensen

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Þórir Stephensen

    1931-2026

    fv. Dómkirkjuprestur

    Útför frá Dómkirkjunni í Reykjavík

    þriðjudaginn 21. júlí 2026 kl. 13

    Viltu hlusta? Smelltu á tengilinn hér:

    Ef MP4 skráin hér fyrir ofan opnast ekki þá er hér fyrir neðan MP3. Prófaðu hana!

    Viltu lesa ræðuna? Hún er hér fyrir neðan.

    (more…)
  • Grein um áætlun múslima um að jafna menningu Vesturlanda við jörðu

    eftir Melanie Philips sem þekktur gyðingur og blaðamaður

    The Bangladeshi Muslim community celebrates Eid al-Fitr, the end of a month of fasting during Ramadan, with a large group prayer on a blocked-off street in the Kensington neighborhood of Brooklyn, N.Y., on April 10, 2024. New York City and the greater metropolitan area are home to an estimated 1.5 million Muslims from a variety of countries and sects. Photo by Andrew Lichtenstein/Corbis via Getty Images.

    Hér er kjarni greinarinnar skv. Claude og ef þú vilt hlusta á upplestur þessa stutta texta þá er upptakan hér

    og tekur 1 og 1/2 mínútu í hlustun:

    “Í greininni er því haldið fram að íslamskir öfgahópar heyi ekki aðeins vopnaða baráttu í Miðausturlöndum, heldur einnig umfangsmikla áhrifaherferð í vestrænum löndum. Höfundur vísar í nýjar skýrslur sem tengja mótmælahreyfingar í Bretlandi eftir 7. október 2023 við ríki og hreyfingar á borð við Íran, Katar, Hamas og Bræðralag múslima, og segir að góðgerðar- og mannréttindamálstaður hafi verið notaður til að breiða út þennan boðskap. Einnig er fjallað um hvernig Katar hafi, að mati skýrsluhöfunda, fjárfest verulega í bandarískum menntastofnunum til að hafa áhrif á námsefni um Ísrael og Miðausturlönd. Greinin gagnrýnir að lokum stjórnvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum, þar á meðal Trump-stjórnina, fyrir að vanmeta þessa ógn og fyrir náin fjárhagsleg og pólitísk tengsl við Katar.”

    Hér er tengill á greinina á ensku:

    https://www.jns.org/opinion/column/melanie-phillips/the-trillion-dollar-campaign-to-conquer-the-west

    https://www.jns.org/opinion/column/melanie-phillips/the-trillion-dollar-campaign-to-conquer-the-west

  • Skissað # 15 í Varsjá – 14 myndir á viku!

    Náði mér í nýjar skissubækur á Netinu og Tombow penna sem eru skemmtilegir til að byrja skissur með, leggja grunn og skilgreina form. Síðan má halda áfram og lita með samskonar pennum eða beita vatnslitum. Hér eru nokkrar skissur gerðar með þessari aðferð.

    Esjan eftir minni enda komin í mig heimþrá!
    (more…)
  • Ólíkt hafast menn að

    Þankar um málefni Palestínu, islam, kristni, Vesturlanda

    – já og bara allrar veraldar!

    Viltu hlusta? Hér er hljóðskrá sem tekur 22 mínútur.

    Ég setti inn meðf. teiknimynd á Facebook með texta sem setur Palestínumenn í tiltekið samhengi. Sumir bættu fersku vatni í lækinn hjá mér, aðrir sprændu í hann. Þannig er nú umræðan oft á samfélagsmiðlum.

    Á íslensku hljóðar þetta svo í lauslegri þýðingu minni, en ungi maðurinn er augljóslega að bregðast við undrun vinkonu sinnar, spurn eða gagnrýni – og hann segir:

    “Auðvitað, Palestína heldur engar kosningar, neitar konum um réttindi, minnihlutum og öðrum trúarbrögðum, hafnar Vestrænum gildum, vill að Islam gjörsigri heiminn, myrðir samkynhneigða, nefnir götur eftir hryðjuverkamönnum og viðheldur sæmdarmorðum.

    Og svo eru þeir eru á móti gyðingum og þess vegna styð ég þá.”

    Auðvitað er hér um einföldun að ræða í knöppum myndatexta. Hér er sett á oddinn það sem skilur á milli meininga fólks í samtímanum. En samt felur þessi framsetning í sér nístandi sannleika. Palestínumenn eru sjálfir sinnar gæfu smiðir. Þeir samþykktu Hamas og dönsuð með þeim brjálæðingum í trylltum dansi við undirleik “hins vonda” – og gera enn. Hefurðu lesið vitnisburð ísraelsku gíslanna sem lifðu af handtöku og pyntingar Hamas 7. október 2024? Lestu þann vintisburð áður en þú styður Palestínu/Hamas í blindni!

    (more…)
  • Skissað #14 í 30 gráðum í Varsjá

    Síðustu daga hefur verið heitt en ekki þó yfirþyrmandi

    Hlutir
    Fjölbýlishús í götunni
    Esjan eftir minni
    Sóldýrkendur í skrúðgarði
    Horft af hæð
    Gamli borgarmúrinn
    Virðulegur inngangur
    Þjóðarleikvangurinn og brúarstólpi svifbrúar
  • Magnaðir textar

    Mynd fengin að láni af Vefnum

    Viltu hlusta á upplestur? Smelltu þá á upptökuna:

    Ég er um þessar mundir að lesa Lúkasarguðspjall, Bréf Páls til Rómverja og Davíðssálma. Ég læt millifyrirsagnir stýra lengd textanna.

    Í dag 24. júni 2026 urðu þessir textar á lesvegi mínum:

    Lúkas 6.37-42

    Dæmið ekki

    37 Dæmið ekki og þér munuð eigi verða dæmd. Sakfellið eigi og þér munuð eigi verða sakfelld. Fyrirgefið öðrum og Guð mun fyrirgefa yður. 38 Gefið og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar. Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða.“ 
    39 Þá sagði Jesús þeim og líkingu: „Hvort fær blindur leitt blindan? Munu ekki báðir falla í gryfju? 40 Ekki er lærisveinn meistaranum fremri en hver sem er fullnuma verður eins og meistari hans. 41 Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? 42 Hvernig færð þú sagt við bróður þinn: Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér, en sérð ekki bjálkann í þínu auga? Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.

    Þá fletti ég upp í 2. kafla Rómverjabréfs vers 1-16 –

    Réttlátur dómur Guðs

    1 Því hefur þú, maður, sem dæmir, enga afsökun hver sem þú ert. Um leið og þú dæmir annan dæmir þú sjálfan þig því að þú, sem dæmir, fremur hið sama. 2 Við vitum að Guð dæmir þá með réttu sem slíkt fremja. 3 Hyggur þú, maður, sem dæmir þá er þvílíkt fremja og gerir sjálfur hið sama, að þú munir umflýja dóm Guðs? 4 Eða forsmáir þú hans miklu gæsku, þolinmæði hans og biðlund og lætur þér ekki skiljast að gæska Guðs vill leiða þig til afturhvarfs? 5 En þverúð þín og fráhvarf hjartans frá Guði safnar að sjálfum þér reiði sem mætir þér á degi reiðinnar þegar Guð birtir réttlátan dóm sinn. 6 Hann mun gjalda sérhverjum eftir verkum hans, 7 þeim eilíft líf sem leita vegsemdar, heiðurs og ódauðleika með staðfestu sinni í góðri breytni 8 en reiði og óvild hinum sem stjórnast af eigingirni, óhlýðnast sannleikanum en þjóna ranglætinu. 9 Þrenging og angist kemur yfir sérhverja mannssál er illt fremur, yfir Gyðinginn fyrst en einnig alla aðra. 10 En vegsemd, heiður og frið hlýtur hver sá er gerir hið góða, Gyðingurinn fyrst en Grikkinn líka. 11 Því að Guð mismunar ekki mönnum.
    12 Allir, sem syndgað hafa án þess að þekkja lögmál, munu og tortímast án lögmáls og allir, sem syndgað hafa þótt þeir þekki lögmál, munu dæmast eftir lögmáli. 13 Ekki munu menn réttlætast fyrir Guði með því að hlýða á lögmálið heldur verða þeir réttlættir sem breyta eftir því. 14 Þegar heiðingjar, sem þekkja ekki lögmál Móse, gera það eftir eðlisboði sem lögmál Guðs býður, þá eru þeir sjálfum sér lögmál þótt þeir hafi ekki neitt lögmál. 15 Þeir sýna að krafa lögmálsins er skráð í hjörtum þeirra með því að samviska þeirra ber þessu vitni og hugrenningar þeirra sem ýmist ásaka þá eða afsaka. 16 Þetta verður á þeim degi er Guð dæmir hið dulda hjá mönnunum samkvæmt fagnaðarerindi mínu sem ég hef þegið af Jesú Kristi.

    Loks var það 6. Davíðssálmur –

    1 Til söngstjórans. Með strengjaleik á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur.[
    2Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni,
    tyfta mig ekki í heift þinni.
    3Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota,
    lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta.
    4Sál mín er skelfingu lostin,
    Drottinn, hversu lengi?
    5Snú þú aftur, Drottinn, bjarga lífi mínu,
    hjálpa mér sakir elsku þinnar.
    6Þar sem enginn minnist þín í dánarheimum,
    hver lofar þig þá í helju?
    7Ég er úrvinda af andvörpum mínum,
    lauga rekkju mína tárum hverja nótt,
    væti hvílu mína táraflóði.
    8Augu mín eru döpur af harmi,
    sljó vegna allra óvina minna.
    9Víkið frá mér, allir illvirkjar,
    því að Drottinn hefur heyrt grát minn,
    10Drottinn hefur hlustað á ákall mitt,
    Drottinn hefur bænheyrt mig.
    11Allir fjandmenn mínir verða til skammar og skelfast,
    hraða sér sneyptir burt.

    Orð mín um þessa lestra:

    Athygli vekur hvað þessir textar úr þremur ritum eftir ólíka höfunda eru í raun samhljóða, orð Jesú, orð Páls og orðin úr lofgjörðarsafni Gyðinga.

    svo eru á upptökunni lokaorð sem ég bætti við af munni fram eins og sagt er.

  • Að brjótast út

    Þegar ein beygja í lífinu breytir miklu

    Stundum þarf maður að brjótast út úr aðstæðum.

    Nýleg hjólaði ég í miðborg Varsjár til þess að kaupa nýjar skissubækur.

    Fann þær í góðri búð og keypti þrjár.

    Þær kostuðu hver um sig eins og skáldsaga

    enda þótt í þeim væru ekki staf að finna.

    Bækurnar þrjár eru frá Þýskum framleiðanda

    sem heitir Hahnemühle og kostuðu 14 þúsund ÍKR.

    Ég þurfti smá atrennu til að byrja á fyrstu bókinni

    v.þ.a. mér fannst ég fastur í einhverjum gír og það þarf áræðni til að byrja á nýrri, dýrri bók.

    Og svo fór ég á vefinn og fann hann Toby sem er skissari sem hefur léttan stíl og frjálsan. Sjá tengil neðanmáls.

    Ég hef oft séð myndbönd með honum og nú kíkti ég aftur á kallinn.

    Og viti menn.

    Ég fann aftur þennan lausa stíl, opnaði fyrstu dýru bókina

    og hóf að skissa.

    Hér eru nokkrar . . .

    Smelltu á áfram til að skoða!

    Á Hygge með íslenskum vini
    (more…)
  • Plankastrekkjari

    Þankar um vísindi og trú

    Science – Vísindi

    Viltu hlusta? Tekur tæpar 7 mínutur.

    Ég velti því fyrir mér hver staða sumra greina sé innan háskóla heimsins sem kenna sig við mannleg fræði eða humanities, sem í daglegu máli hér heima á skerinu eru kölluð félagsvísindi.

    (more…)