“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Woke! Hvað er nú það?

    Í þessum stutta pistli reyni ég að skilgreina málið með því að fletta á vefnum og skoða skilgreiningar um fyrirbrigðið.

    Woke er óformleg hreyfing sem sumir skilgreina sem sértrúarhóp eða “cult” og getur reynst mjög fordómafullur og mótsagnarkenndur í framkomu sinni.

    Hér er ein skilgreining af vefnum:

    Woke-yfirburðir
    Trú eða kenning, sem gengur út frá því,
    að pólitísk rétthugsun
    og þau sem þannig hugsa,
    hafi siðferðislega yfirburði.

    Já, hvað er Woke?

    Um er að ræða vinstri sinnaða hugmyndafræði sem skýlir sér á bak við bandarísku skilgreininguna E-D-I sem stendur fyrir,

    Equality – jafnrétti,

    Diversity – fjölbreytni,

    Inclusion – aðlögun.

    Viðleitnin til þess að gæta þessara þriggja atriða hefur leitt bandaríska háskóla í nokkur vandræði. Um leið og endalaust er verið að gæta að hlutföllum allra hópa, svartra, hvítra, Asíubúa, karla, kvenna, samkynhneigðra o.s.frv. og setja kvóta á aðgang stúdenta, lenda margir afburðarnemendur af hvaða litarhætti sem er, utangarðs, vegna þess að kvóti viðkomand litar er uppurinn. Hinn meðvirki kærleikur snýst þar með upp í andhverfu sína.

    Orðið Woke, vísar til þess að vera vakandi fyrir aðstæðum einstaklinga og hópa, og það er auðvitað mikilvægt.

    En Woke-ismi er hegðunar- og hugsunarháttur, sem einkennist oft af mjög miklu óþoli gagnvart öðrum.

    Woke yddar gjarnan málflutning annarra og leitast við að sanna eigin yfirburði með því að afneita og hafna öllum viðhorfum sem ekki falla að eigin hugsun.

    Woke-hreyfingin er sögð ráðast gegn öllum sem eru þeim ósammála um hvað sem er.

    Ef manneskja, svört á hörund, andmælir Woke-istum þá kalla þau hana “tom” sem er skammaryrði og merkir villiköttur – og auðvitað í karlkyni!

    Sé hún hvít þá er settur á hana merkimiðinn: þú ert hvít/hvítur með kynþáttafordóma og ofurvaldur (supremacist) eða sá/sú sem nýtur mikilla forréttinda.

    Ef LGB-persóna (Lesbian-Gay-Bisexual) samsinnir ekki Woke eða verður á vegi þeirra, þá afneita þau að viðkomandi sé í raun LGB.

    Flest fólk er nokkuð vel meinandi og skynjar óréttinn í samtímanum og það sem laga má, en Woke er annað.

    Woke er einskonar sértrúarhópur, sem gengur lengra en meginstraumurinn, hópur sem upphefur sjálfan sig og gerir óvin úr flestum öðrum.

    Woke-fólk sést oft í sjónvarpsfréttum þar sem það fer mikinn með hrópum og köllum og ber gjarnan með sér skilti með áróðurstextum og myndum.

    Við eigum auðvitað að vinna gegn mismunun og hver kyns ofbeldi en í viðleitni okkar til að rétta hlut fólks, megum við ekki valda öðrum órétti í leiðinni. Þá er nú til lítils unnið.

    Er ekki bara einfaldast að vera vakandi en forðast Woke?

  • Yfir 130 þúsund heimsóknir!

    Þankar um s.l. 11 ár og svo þegar ég sjálfur var 11 ára.

    Ég var búinn að gleyma því hvenær ég stofnaði þessa heimasíðu en í gær fékk ég kveðju frá fyrirtækinu WordPress um að fyrir 11 árum hefði hún litið dagsins ljós.

    Á þessum 11 árum hafa 130.180 – segi og skrifa: “eitthundrað-og-þrjátíu þúsund-eitthundrað-og-áttatíu” gestir heimsótt síðuna.

    (more…)
  • Skissað á skautvindadögum

    Eftir einn sólríkasta vetur í sögu Reykjavíkur hefur veðrið frá því rétt fyrir páska, einkennst af köldu lofti frá norður Heimskautinu en dagarnir þó flestir bjartir.

    Samt hefur mér tekist að skissa eina og eina mynd þegar ég hjóla um borgarlandið og svo líka heima.

    Allar nema sú fyrsta urðu þó til innandyra.

    Klukknaportið við Kópavogskirkju, skissað í rigningu eftir útför.
    Blekið reyndar vatnshelt en þó ekki fyrr en það þornar á pappírnum
    Biðröð á Bessó
    Gluggasýn, fjall og listaverk eftir finnskan málmsmið
    og ímynduð blóm sem kosta ekki krónu og eigi þarfnast vökvunar
    Bílar og fólk fylgja borgum og bæjum. Fækka þarf bílum og auka almenningssamgöngur – og hjólreiðar!
    Sjáumst! – bless . . . .
    Ekkert toppar sunnudag betur en messuferð
    og sérstaklega fyrir hjólreiðamenn!
    Dr. Skúli Ólafsson messaði í Neskirkju,
    Háskólakórinn söng undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar, organista.
    Skúla mæltist vel að vanda er hann ræddi um
    Góða hirðinn versus Vonda hirðinn.
    Helgihald kirkjunnar er vannýtt auðlind.
    Prófaðu, að mæta til að syngja sálma, biðja, hlusta á orð mesta snillings sögunnar, Jesú Krist, tætt, rætt og túlkað – og að hitta gott fólk í kaffi á eftir!
    Algjör dásemd fyrir þrenningu okkar sjálfra: líkama, sál og anda!
    Ég skal útskýra þá þrenningu betur síðar á þessum vettvangi!

  • Kvöldkyrrð

    Vatnslitamynd.

    A quiet evening in Iceland.

    Kvöldkyrrð
  • +Baldvin Jóhann Erlingsson

    Texti ræðunna og hljóðupptaka er hér aðeins neðar.

    Minningaroðin er hægt að lesa og hlusta á hér fyrir neðan – og sálmakráin er allra neðst.

    (more…)
  • Friður?

    Grein í Morgunblaðinu s. 16, 2. apríl 2024 sem hér er unnt að hlusta á og tekur 8 mínútur.

  • Tilkynnning á tjóni

    Hugleiðing á páskum 2024

    eftir Örn Bárð Jónsson

    Viltu hlusta og/eða lesa? Hér fyrir neðan er tengill á hljóðupptöku sem tekur rúmar 4 mínútur.

    Kristur með vinum sínum, körlum og konum
    (more…)
  • Skissað í skyndi á páskum 2024

    Í gær: Iain McGilchrist er breskur fræðimaður sem veit manna mest um heilahvelin og ég hef áður heyrt ræða um þau og svo aftur í gær á YouTube.

    Í dag, páskadag, fór ég svo í heimsóknir í Mörkinni, þar sem boðið var uppá páskamessu kl. 14 og svo á Landspítalann Landakoti síðdegis.

    Skissað í laumi og litað heima. Læt afraksturinn bara flakka á vefinn í góðri trú um að fólk taki viljann fyrir verkið, eins og sagt er.

    Iain MacGilchrist fræðimaður veit margt um heila mannsins
    Heimafólk og gestir taka þátt
    í messu í Mörkinni
    Horft út um glugga undir messu í Mörkinni
    Dómkirkja Krists konungs í Landakoti á páskum 2024
  • Skissað um bænadaga í kyrruviku 2024

    Sumar myndanna voru skissaðar úti þegar ég gerði hlé á hjólreiðum og aðrar inni, skírdag, föstudaginn langa og laugardag fyrir páska.

    Pentskúfar fyrir vatnsliti og pyttlur undir vatn
    (more…)
  • +Sigurður Thoroddsen 1940-2024

    Minningarorð sem hægt er að lesa og hlusta á hér fyrir neðan.

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Sigurður Hákon Thoroddsen

    arkitekt

    1940-2024

    Útför í kyrrþey frá Kapellunni í Fossvogi

    þriðjudaginn í kyrruviku

    26. mars 2024 kl. 13

    Sálmaskráin er aftast í færslunni.

    Leiðrétting!

    Ein staðreyndarvilla slæddist inn í ræðuna þrátt fyrir yfirlestur kunnugra um ævi forfeðra hins látna og mæðra og hún er sú að Jón Thoroddsen var ekki prestur heldur sýslumaður á sínum tíma. Þetta var leiðrétt í texta en villan er eftir sem áður á hlóðupptökunni og er beðist velvirðingar á því.

    (more…)