“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • +Hilmar Fjeldsted Lúthersson 1938-2025

    Útför frá Digraneskirkju föstudaginn 7. mars 2025 kl. 13

    Viltu lesa? Viltu hlusta? Skrunaðu neðar og þar kveikir þú á upptökunni og svo er ræðan þar líka sem pdf-skjal til að lesa.

    Minningarorðin sem pdf-skjal. Smelltu á Download takkann:

    Og hér er kerran sem afhent var Byggðasafni Ísafjarðar 18. september 2021 og bar á góma í ræðu prests við útför Hilmars.
    Kerran er nú varðveitt í Turnhúsinu í Neðastakauðstað sem stendur við hlið Tjöruhússins sem hýsir einn besta fiskréttaveitingastað landsins.
    Á myndinni fv. Þröstur Marzellíusson, skipasmiður,
    Jóna Símonía Bjarnadóttir, forstöðumaður safnsins,
    Þorsteinn Haraldsson, lögg. end.
    og fv. kerrusveinn, Örn Bárður Jónssonn, sem fékk Hilmar til að gera kerruna upp á 10. áratugi liðinnar aldar og hafði hana í geymslum og um tíma í stofu heima hjá sér, þar til henni var komið Vestur.

    Kerruna notaði ég mikið sem barn og unglingur er ég vann öll sumur, jólafrí og páskafrí, í Veszlun Jóns Ö. Bárðarsonar, föður míns. á árunum 1959-1967.
    Á kerrunni er bók sem er tákn Guðs orðs, Biblíunnar.
    Forðum fór ég sem sendill með vörur til fjölskyldna á Ísafirði, en síðar varð ég sendill/sendiboði Krists og er enn á ferð með orð Hans
    og lífsgildi í farteski mínu.

    Þröst jarðsöng ég á Ísafirði árið 2023
    og Þorstein vin minn í Neskirkju í Reykjavík í nóvember 2025.
    Blessuð sé minning þeirra.
  • Skissur og ljósmyndir að Austan

    Nokkrar skissur liðinna daga, gerðar með blekpenna og vatnslitum og ljósmyndir.

    Fyrirboði bolludags! Mikið bolluský við mynni Vopnafjarðar
    Bolludagurinn var í gær! Þessi var teiknuð eftir gömlu minni enda bakaði ég hvorki né fékk bakkelsi sjálfan Bolludag.
    Harmóníum í stofunni á Hofi og skissur á vegg
    Innsetningarmessa í Áskirkju, Fellum sd. 9. feb. 2025,
    séra Jarþrúður les Guðspjallið
    Tveir úr The Animals á skjánum
    Mögnuð ský, dimmblá og ferskjubleik
    Rúllubaggar og tankur handan girðingar í Hofsárdal
    Nærmynd, dimmblá og ferskjubleik ský
    Bær við Finnafjörð. Gunnólfsfjall í bakgrunni.
    Tekin á bakaleiðinni frá Þórshöfn þar sem ég var með dagskrá á Nausti, dvalarheimili aldlraðra og svo fermingarfræðslu í Þórshafnarkirkju.
    Á Netinu var rætt um Woke-isma, fólkið sem ég kalla Vökulísur og Vökupésa,
    og bendir svo liðugt á aðra.
    Hér er mynd sem minnir á að í hvert sinn sem þú bendir á aðra,
    vísa 3 fingur á þig!

    Grein um Woke:

    http://localhost:8081/2024/04/23/woke-hvad-er-nu-thad/

  • Skissað á Hofi

    Hef setið á Hofi í Hofsárdal í Vopnafirði frá ársbyrjun til þjónustu við Vopnafjörð og Þórshöfn.

    Í gær og í dag hljóp í mig skissugleði og þessar urðu til:

    Hof, Hofskirkja og safnaðarheimili
    Kolbeinstangaviti Vopnafirði
    Sker við innsiglinguna í Vopnafirði
    Vopnarfjarðarkirkja og safnaðarheimili
    Við Reykjavíkurtjörn – 2025 – eftir mynd
    Stílfærður turn við sporð Karlsbrúar í Prag í Tékklandi 2025 eftir mynd 2024
  • Haukur Böðvarsdon 1949-1980

    Við vorum vígðir himninum í heilagri skírn sem ungabörn og fermdir fjórtán árum síðar árið 1963.
    Haukur heitinn Böðvarsson fór heim í himin Guðs þennan dag, 25. febrúar 1980, er hann fórst í Ísafjarðardjúpi með skipi sínu mb. Eiríki Finnssyni. Blessuð sé minning þeirra sex manna er fórust í þessu óveðri og megi Guð styrkja ástvini þeirra nú sem þá.

    Mannkyns fley á mari rekur,
    Guð man allra barna nöfn.
    Hafið gefur, hafið tekur,
    himinninn er örugg höfn.

    (ÖBJ 25.2.2025)

    Abstrakt – Örn Bárður 2025
  • Abstrakt eða ekki

    Birti hér nokkrar vatnslitamyndir sem hafa orðið til á Hofi í Vopnafirði í byrjun árs 2025

    “Hof í ljósi nætur”
    tók á móti mér í janúar –
    hálf örk 38×56 cm
    Abstrakt Ljósvera I –
    hjálf örk 38 x 56
    Abstrakt Ljósvera II –
    hjálf örk 38 x 56
    Tilbrigði við Nostalgiu Tarkovskys
    Fjórðungur af örk 28×38 cm

    Abstrakt Blessað ljósið I
    22.2.25
    Heil örk 56×76 cm
    Abstrakt Blessað ljósið II –
    22.2.25
    Heil örk 56×76 cm
  • +Erlingur Óskarsson 1948-2025

    fv. lögmaður, sýslumaður og bókavörður

    Viltu lesa og/eða hlusta? Þá skrunar þú áfram og finnur texta og spilara.

    Texti ræðunnar sem pdf. skjal. Smelltu til að opna.

  • Unga konan fer loks að heiman

    Örpistill sem tekur rúma mínútu í hlustun:

    Kona nokkur sem heitir Evrópa, fögur, rík og fönguleg, er nú loks farin að átta sig á því að hún þarf að yfirgefa mömmu og pabba, þau Unu Siggu og Ara. Hún þarf hætta að biðja um vasapeninga, húsaskjól og vernd og standa á eigin fótum.

    Amma og afi skrifa til hennar hvetjandi bréf:

    Elsku Evrópa, þú stendur nú á tímamótum eins og allt ungt fólk, sem kemst að því að “Hótel mamma” mun senn loka.

    Mamma þín og pabbi hafa mörg járn í eldinum og í raun er heimilið orðið að einhverskonar farsakenndum vígvelli þar sem eilíf togstreita á sér stað og hagsmunabarátta. Pabbi þinn er orðinn undarlegur í háttum og mamma úti á þekju andlega talað. Okkur blöskraði þegar við fórum í heimsókn nýlega.

    Að þroskast og fara að heiman er mikilvægt skref í lífi ungs fólks.

    Elsku Evrópa, gangi þér vel á eigin vegum!

    Þú getur þetta! Þú ert flott!

    Una Sigga og Ari, komast af á eigin forsendum og vonandi hangir hjónabandið saman og megi fjölskylduerjur fara dvínandi í ætt okkar.

    Með bestu kveðjum,

    amma og afi 🙏❤️

    Mynd af Vefnum
  • Af vínkærum prestum – Fróðleikur um frænda minn, séra Jón Ásgeirsson á Hrafnseyri, og fleira fólk

    Var að lesa fróðleik um þennan “frænda minn” í bókinni VESTFIRZKAR SAGNIR og hafði ánægju af v.þ.a. margt hef ég heyrt um hann og prestana honum tengdum.

    Setti saman þessa grein með upplýsingum um ætt mína og svo eru hljóðskrár neðst með upplestri mínum úr

    Vestfirzkum sögnum, safnað hefir Helgi Guðmundsson, 1. Bindi, Reykjavík, Bókaverzlun Guðm. Gamalíelssonar 1933-1937

    Hrafnseyri við Arnarfjörð – mynd fengin að láni af vefnum

    Eitt sinn er ég átti samtal við séra Sigurbjörn Einarsson, biskup og velgjörðarmann minn, nefndi ég að ég hefði ekki fundið marga presta í föðurætt minni, en í móðurættinni væru einir þrír ættliðir presta sem hefðu þjónað í Holti í Önundarfirði. Þá glotti biskup og sagði:

    “Jæja, blessaður minn, þeir voru víst dálítið drykkfelldir!”

    Nota Bene:

    Til að lesa alla greinina þarf að smella á fyrstu fyrirsögn og þá kemur framhaldið og svo hjóðupptökurnar!!!

    (more…)
  • Að lesa Biblíuna eins og Njálu

    Þankar eftir Örn Bárð Jónsson sem les.

    Það henti þau Frosta og Finnlaugu,

    að fundu á Netinu dómsaugu,

    og helling þau lásu

    heila Biblíu’ án pásu,

    en hefðu þurft Jesú-glögg gleraugu.

    (more…)
  • +Björgvin Agnar Hreinsson 1964-2025

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð
    +Björgvin Agnar Hreinsson
    f. 1. febrúar 1964 – d. 23. janúar 2025

    Fyrir neðan myndina er tengill á ræðuna til að lesa og/eða hlusta.

    (more…)