S.l. sumar var ég í Varsjá í 9 vikur og fór víða um borgina, mest á rafmagnshjóli.
Ég fann Urban Sketchers hóp í alþjóðlegri hreyfingu, sem er samansettur af fólki sem skissar myndir í borg og bæ, sveitum og á fjöllum – bara allsstaðar.
Ég hitti Varsjár hópinn nokkrum sinnum s.l. sumar og eitt sinn vorum við beðin um að láta af hendi eina skissu sem skyldi fara á sýningu síðar. Ég skissaði fólk sem sat á bekk.
Hér er 2 myndir af hópnum sem tekin var s.l. sumar:



Jæja! eftir að ég var kominn aftur til Íslands hafði Listasafn Varsjár samband við mig og bað mig að samþykkja samning um að nota myndina á fyrirhugaða sýningu þar sem ég varð að samþykkja hitt og þetta í lögfræðilegum samningi.
Ég kom aftur til Varsjár í gær, 27. október 2026 – og viti menn! – þegar ég vaknaði í morgun fékk ég tölvupóst um að sýningin yrði opnu í dag, 29. okt. kl. 18!!!
Tilviljun?
Nei, ég trúi lítið á tilviljanir!
Við Össi sonur minn fórum á fjórum hjólum, sem sagt 2×2 – um hálftíma ferð hvora leið til að vera viðstaddir, í gamla bænum í Varsjá.
Þar var sýningin opnuð og margmenni á staðnum enda margt til sýnis og verk Urban Sketchers hópsins bara eins og strá í heystakki.
Og hér eru myndir frá opnuninni:









„Já, maður lifandi“
– sagði maður nokkur gjarnan þegar honum var orða vant um upplifum sína og óvænt atvik lífsins.
– Já, maður lifandi!
You must be logged in to post a comment.