Fréttir af umferð um heimasíðu mína
Viltu hlusta á höfundinn lesa færsluna? Smelltu hér:
Fyrst vil ég þakka ykkur öllum sem lagt hafið leið ykkar inn á heimasíðu mína á liðnum árum til að lesa og/eða hlusta á líkræður, greinar og hugvekjur eftir mig. Um árabil hef ég tekið þetta allt upp og birt hljóðskrár ásamt texta.
Ég hef birt ræður mínar á vefnum um árabil. Man ekki hvenær ég byrjaði, en líklega var það fljótega uppúr aldamótum. Meðan ég þjónaði í Noregi 2014-2019 birti ég ekkert enda talandi þar á öðru tumgumáli!
Mér datt í hug að deila með ykkur því sem WordPress forritið mælir og ég get kallað fram með því að velja tímabil.
Nú valdi ég s.l. 3 ár og fékk upp tölur fyrir árin 2024, 2025 og það sem af er 2026, þegar 2 mánuðir eru eftir af árinu.
Hér koma myndir úr WordPress forritinu.
Fyrsta myndin sýnir að 64 þúsund gestir hafi kíkt inn í 94 þúsund skipti.

Næsta mynd sýnir fjölda innlita á síðuna og þar eru tvær ræður sem mest eru skoðaðar.
Samtals hefur í 78 þúsund skipti verið kíkt inn á vefinn.

Þetta var um innlit.
En skoðum svo hversu mörgum sinnum kveikt hefur verið á hljóðupptökum á sama tímabili þ.e. 2 árum og tæpum 10 mánuðum. Og ég segi nú bara VÁ!
141 þúsund smellir á hljóðupptökur!
Sumir hlusta á eina ræðu eða grein, aðrir hlusta á margar. Og enn eru tvær ræður á toppnum.

Og að lokum er hér yfirlit yfir laugardaginn 24. október og þá hefur verið hlustað á færslur í 138 skipti sem er u.þ.b. meðaltalsumferð s.l. 2 ár og 10 mánuði en útkoman úr því dæmi eru 139 á dag!

Bestu þakkir fyrir að lesa og hlusta. Áhugi ykkar hvetur mig til dáða og ég mun halda áfram að birta ræður og greinar eftir mig meðan mér endist þrek og kraftur.
Guð blessi ykkur öll – og varðveiti og geymi!
You must be logged in to post a comment.