Örn Bárður Jónsson – and "BARD-art"

The beauty of Life – Social Issues – Justice – Truth // Fegurði lífsins – Þjóðfélagið – Réttlæti – Sannleikur

Greinar og hugvekjur / Articles

Minningarorð / Funeral Speeches

Myndlistin mín / My Art

„Er það satt?“

Stutt grein eftir Örn Bárð Jónsson, sem les.

Viltu hlusta í 6 mín?

Mynd þegin að láni á Veraldarvefnum

„Er það satt?“

Fyrst vil ég fjalla um hugtak sem er vinsælt í háskólum.

Hugtakið er afbygging sem vísar til vinnubragða í „heimspeki, bókmenntarýni og félagsfræði“. Hugtakið er rakið til franska heimspekingsins, Jacques Derrida. Það vísar til þess að taka eitthvað sundur, afbyggja, rýna og skoða, með það fyrir augum að skilja gangverk eða byggingu.

Hugtakið hefur mér ávallt fundist ögn tilgerðarlegt því það er andstæðan við að byggja og í mínum huga væri rökréttara að tala um að taka í sundur eða hreinlega að rífa niður eða kryfja.

Endurbygging er þá væntanlega endanlegt markmið eftir niðurrif.

Niðurrifsöflin í heiminum eru iðin. Þau vinna eins og vorið sem bræðir skafla og jökla, eykur vatnsrennsli og allt það. En vorið er afleit samlíking í þessu samhengi þrátt fyrir sín “eyðandi” öfl sem skila af sér fegurð. Hér mætti frekar leita í aðra hegðun íslenskrar náttúru og nefna eldfjöllin ógurlegu sem eyða og skemma.

Við búum við stöðugt eldgos í heimi hugmyndanna. Heimsmynd okkar hefur af-myndast. Fjölmiðlar og aðrar áróðursvélar vinna stöðugt að því að breyta hugsun okkar. Klassísk gildi eru afbyggð, rifin niður, eyðilögð. Ég nefni fyrirbrigði eins og fjölskylduna, hjónabandið, menntun, skóla, þjóðleg tákn og kristinn gildagrunn. Allt er nú í niðurníðslu eins og gamalt hús sem ráðist hefur verið á með stórtækum vinnuvélum. Svart/hvít hugsun, tvíundarkennd eða binary eins og það heitir á tungumáli tölvutækninnar, er ráðandi í samtímanum.

Slík hugsun fer einkum fram í vinstra heilahveli fólks. Hægra hvelið horfir með öðrum hætti á heiminn og sér þar fleiri hliðar svo sem liti, fjölbreytni, hið listræna og samhengi hlutanna og einnig hið stóra samhengi sem vísar til Guðs og þess að veröldin sé ekki tilviljun, heldur afurð hugsunar, hönnuðar. Tækniheimurinn, tölvurnar og allt þetta vélræna fær okkur til að hugsa skammt og grunnt.

Nú er allt leyfilegt og þeim fækkar sem þekkja orð Páls postula eða hafa e.t.v. vísvitandi bjagað merkingu orða hans með því að sleppa seinni hluta beggja setninga í versinu:

“23 Allt er leyfilegt en ekki er allt gagnlegt. Allt er leyfilegt en ekki byggir allt upp.” (1. Kór 10.23)

Postulinn talar ekki um afbyggingu heldur segir að sumt geri lítið gagn og sé alls ekki uppbyggilegt.

Svo erum við hissa þegar í ljós kemur að börn kunni ekki lengur að lesa að neinu gagni. Við sem lásum Gagn og gaman fengum bæði hugtökin í nafni bókarinnar til að blómstra í lífi okkar. Sá lestur var vissulega bæði til gagns og gamans.

Svo spyr fólk: Er þetta ekki bara farsímunum að kenna? Við spyrjum eins og andskotinn sjálfur. Djöfullinn eða Satan eins og hann heitir á máli Biblíunnar kemur fljótt fram á sviðið. Í Fyrstu Mósebók, 3. kafla kemur hann fram:

1 Höggormurinn var slóttugri en öll dýr merkurinnar sem Drottinn Guð hafði gert. Hann sagði við konuna: „Er það satt að Guð hafi sagt: Þið megið ekki eta af neinu tré í aldingarðinum?“

2 Konan svaraði höggorminum: „Við megum eta af ávöxtum trjánna í aldingarðinum 3 en um ávöxt trésins, sem stendur í miðjum aldingarðinum, sagði Guð: Af honum megið þið ekki eta og ekki snerta hann, ella munuð þið deyja.“ 4 Þá sagði höggormurinn við konuna: „Sannið til, þið munuð ekki deyja.

Satan spurði lævíslega: „Er það satt?“

„Er það satt?“ að fjölskyldan sé grunneining samfélagsins?

„Er það satt?“ að við eigum að fara eftir Boðorðunum 10?

„Er það satt?“ að við eigum að elska náungann?

„Er það satt?“ að Guð hafi skapað heiminn?

„Er það satt?“ að við megum ekki taka líf?

„Er það satt?“ að Guð geti talað til okkar?

„Er það satt?“ að við megum ekki slaufa fólki vegna skoðana?

„Er það satt?“ að við megum ekki stela?

„Er það satt?“ að við megum ekki ljúga?

„Er það satt?“ að maðurinn lifi af dauðann?

„Er það satt?“ að við höfum gott af því að sækja kirkju og trúa á Jesú Krist?

Satan skóp grunninn með sinni lævísu spurningu. Hann fór með freistandi hætti í sína afbyggingu, sitt niðurrif og vildi þá og vill enn fá mannkynið með sér til þeirrar iðju.

„Er það satt?“

Svarið við öllum lævísum og villlandi spurningum hins illa er alltaf – J Á !!!

Posted on

Greinar og hugvekjur / Articles
Minningarorð / Funeral Sermons
Myndlist / Art
Prédikanir / Sermons