Örn Bárður Jónsson – and "BARD-art"

The beauty of Life – Social Issues – Justice – Truth // Fegurði lífsins – Þjóðfélagið – Réttlæti – Sannleikur

Greinar og hugvekjur / Articles

Minningarorð / Funeral Speeches

Myndlistin mín / My Art

Prestur með skoðun

Hneykslunartónninn og fyrirlitningin leynir sér ekki: Sjálfur presturinn leyfir sér að vara við islam.

Mynd til fjrálsra afnota fengin á Veraldarvefnum

Viltu hlusta? Smelltu þá á upptökuna:

Já, fólk hneykslast og það er ekki í fyrsta sinn í sögunni sem fólk lætur slíkt í ljósi. Sjálfur Frelsarinn fékk hneykslandi fólk yfir sig í stórum skömmtum og fylgjendur hans á fyrstu öldum kristni voru drepnir í þúsundatali. Og það er vissulega enn mjög alvarlegt að kristnir menn, karlar og konur, eru drepnir í þúsundatali í hverjum mánuði í heiminum – og aðallega af múslimum! Fréttir fjölmiðla vitna um þetta daglega.

Ég hef sinnt múslimum hér á landi sem prestur, greitt götu þeirra, hlustað á þá og spurt um líf og líðan. Gefið þeim pláss í safnaðarheimili kirkjunnar þar sem ég starfaði sem sóknarprestur, til að eiga fundi og samtal við kristið fólk.

Ég hef ritað alþingi bréf til að óska eftir ríkisborgararétti fyrir mann sem kom hingað sem múslimi og látið mér annt um múslima sem annað fólk, enda er það grundvallaratriði í kristinni trú „að elska náungann“ en ekki endilega að elska skoðanir hans eða trú. Og ekki erum við hvött til að elska aðrar gjörðir fólks en þær góðu. Við þurfum ekki að elska illvirki manna en við eigum að elska manneskjuna.

Ég hef ítrekað talað og ritað um þá köllun kristinna að elska náungann en að ekki sé nein krafa um að elska skoðanir annarra. Ég á vini sem ég er ósammála um sumt en elska þá samt. Á máli trúarinnar á maður að elska syndarana en ekki syndina. En hvað er synd?

Skv. NT er syndin tjáð á frummáli þess, grísku, með orðinu hamartia sem merkir geigun. Við erum eins og bogamaður sem setur ör á streng, knattspyrnumaður á vítateig, sem miðar á markið en brennir af, geigar, skýtur framhjá. Þannig erum við öll. Við geigum, skjótum framhjá, hittum ekki í mark í algildum skilningi um lífið. Við lifum lífinu án þess að ná að gera það á fullkomin hátt. Og þannig erum við öll! Við erum mistæk, okkur geigar. Þetta er hið grunnliggjandi vandamál mankyns. Eina leiðin til að takast á við þessa geigun er að reyna að feta veginn eina sem Kristur kenndi er hann sagði:

1 „Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. 2 Í húsi föður míns eru margar vistarverur. Væri ekki svo hefði ég þá sagt yður að ég færi burt að búa yður stað? 3 Þegar ég er farinn burt og hef búið yður stað kem ég aftur og tek yður til mín svo að þér séuð einnig þar sem ég er. 4 Veginn þangað sem ég fer þekkið þér.“

5 Tómas segir við hann: „Drottinn, við vitum ekki hvert þú ferð, hvernig getum við þá þekkt veginn?“

6 Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig. 7 Ef þér hafið þekkt mig munuð þér og þekkja föður minn. Héðan af þekkið þér hann og hafið séð hann.“ (Jóh. 14.1-7)

Og það er á þessum grundvelli – að skilja á milli syndar og syndara – að hafna hinu fyrra hugtaki en ekki því síðara, að ég hef leyft mér að gagnrýna islam. Um þennan aðskilnað syndar og syndara geturðu lesið nánar hér:

Það er einkennilegt að fólk á vinstri vængnum virðist fyrirmunað að skilja á milli syndar og syndara og því slaufar það meir að aðrir, að mér sýnist, hafnar fólki vegna skoðana. Það er hreinn heiðindómur. Maður á að elska náungann en ekki endilega skoðanir hans eða gjörðir. Þess vegna verð ég að elska t.d. dæmdan morðingja, elska manninn en ekki morðið! Þetta ætti nú ekki að valda fólki vandræðum að skilja þarna á milli. Wókið skilur þetta ekki. Það gleypir allt, baunirnar – og dósina líka!

Islam er margslungið fyrirbrigði. Ég hef lesið trúarbragðafræði við háskóla og tekið próf í þeirri grein sem fjallar um öll helstu trúarbrögð heims. Fróðleg og skemmtileg var sú iðja og bókin mikill doðrantur sem ég klóraði mig í gegnum á sænsku.

Trúarbrögð mannkyns er margskonar, allt frá animisma – frumstæðri andatrú – trúar á sokka og steina og upp í söguleg trúarbrögð eins og gyðingdóm og kristni – já, og islam líka. En ég man þegar ég hafði lokið lestrinum um islam að mig setti hljóðan. Ég komst að því að islam var óreiðukennd blanda af frumstæðum trúarbrögðum, krydduð með atriðum úr gyðingdómi með textum úr Gamla testamentinu, sumum reyndar brengluðum og svo líka úr Nýja testamentinu. Til dæmis talar Múhammeð, sem talinn er upphafsmaður islam, um Miriam sem er hebreska nafnið á Maríu og blandar saman Maríu móður Jesú og Miriam systur Móse, en á milli þeirra í árum talið voru ekki nema um 1500 ár. Kóraninn er undarlegt safn af textum sem fræðimenn segja misjafna af gæðum, en þar er m.a. að finna fagra texta sem líkja má, hvað stíl varðar, við Davíðssálmana í GT. Þessir, „bestu“ textar Kóransins eru taldir eiga uppruna sinn í kristnum hópum sem yfirgáfu kirkjuna á 3. öld e.Kr. vegna þess að þeir viðurkenndu ekki guðdóm Krists. Í þeirra augum var hann bara jarðneskur spámaður, en ekki sonur Guðs sem reis upp frá dauðum. Þessir hópar dreifðust um löndin fyrir botni Miðjarðarhafs og lengra inn í Arabíu.

Nýja testamentið varð allt til á 1. öld e.Kr. Elstu kaflar þess eru fyrstu bréf Páls postula sem hann ritað á bilinu 40-50 e.Kr. en Kristur er talinn hafa verið krossfestur árið 33 en þá varð tunglmyrkvi í Jerúsalem skv. NT og nú hefur NASA staðfest að fyrirbrigðið átti sér stað 3. apríl árið 33! Elstu bréf Páls voru rituð 7-17 árum eftir krossfestingu Krists á þeim tímum þegar fólk mundi nánast allt sem það heyrði og gat endursagt heilu ræðurnar og frásagnir. Páll var menntaður maður og ritfær og svo voru guðspjallamennirnir einnig.

Skoðum aðeins uppruna islam. Múhammeð er talinn hafa fæðst á 6. öld e.Kr.

Til að flýta fyrir mér spurði ég gervigreindina um uppruna hans og fékk þetta:

Íslam á rætur að rekja til Arabíuskagans á 7. öld eftir Krist.

Múhameð Múhameð fæddist í Mekka um árið 570. Hann ólst upp munaðarlaus og starfaði síðar sem kaupmaður. Um fertugt, um árið 610, segir íslömsk hefð að engillinn Gabríel hafi birst honum í helli við fjallið Hira og flutt honum fyrstu opinberanir frá Guði (Allah). Þessar opinberanir héldu áfram næstu 22 árin og voru síðar teknar saman í helgirit íslams, Kóraninn.

Boðun trúarinnar Múhameð boðaði stranga eingyðistrú í samfélagi sem þá dýrkaði marga guði. Hann mætti mikilli andstöðu í Mekka, og árið 622 flúði hann ásamt fylgjendum sínum til borgarinnar Medína. Þessi flutningur, kallaður Hijra, markar upphaf islamska tímatalsins. Í Medínu byggði hann upp fyrsta múslimska samfélagið og varð bæði trúarlegur og pólitískur leiðtogi. Árið 630 sneri hann aftur til Mekka með her og náði borginni á sitt vald að mestu án blóðsúthellinga.

Trúarbrögðin sjálf Íslam byggir á fimm meginstoðum:

Trúarjátningin (shahada) – að það sé aðeins einn guð og Múhameð sé spámaður hans

Bænin fimm sinnum á dag (salat)

Ölmusugjöf (zakat)

Fasta í Ramadan-mánuði (sawm)

Pílagrímsferð til Mekka (hajj), að minnsta kosti einu sinni á ævinni ef aðstæður leyfa

Múhameð lést árið 632 í Medínu. Eftir andlát hans breiddist íslam hratt út um Arabíuskagann og síðar langt út fyrir hann, meðal annars vegna trúboðs, verslunar og landvinninga.

Múhammeð er talinn hafa verið ólæs og óskrifandi og fyrir liggur að hann var hershöfðingi sem fór um með brugðnum brandi og drap mann og annan. Hann fékk t.d. vitrun um að hann og aðrir múslimakarlar mættu eiga 4 konur en svo fékk hann aukavitrun fyrir sjálfan sig og gaf sér að hann mætti eiga 11 eða 13. Heimildum ber ekki saman. En Múhammeð kvæntist t.d. konu að nafni Aisha sem hann samdi um er hún var 6 ára en við 9 ára aldur tók hann hana til sín með öllu því sem slíku fylgir.

Kynnið ykkur vitnisburð hinnar hugrökku Ayan Hirsi Ali sem yfirgaf islam, var guðleysingi um tíma en gerðis svo kristin:

En þegar betur er að gáð þá er islam ekki bara trúarbrögð heldur líka rammpólitísk hugmyndafræði, stjórnmálaafl með innbyggða útþenslustefnu. Kristnin hefur reyndar líka þá stefnu að sigra heiminn en með kærleika Krists og Vesturlönd eru ótvíræður vitnisburður um að vel hafi tekist til enda þótt þau séu ekki fullkomin enda samansett af syndugu, mistæku fólki eins og allt mannkyn er í raun.

Í hinum Vestræna heimi, sem er í grunninn kristinn, hefur ríkisvald víðast hvar skilið á milli ríkis og kirkju til að tryggja að trúnni verði síður misbeitt. Ríkið og kirkjan eru þar með ekki í einni sæng, heldur kallast á, kirkjan talar til löggjafans og löggjafinn til kirkjunnar. Vesturlönd eiga allan sinn siðagrunn að þakka tveimur hugtökum, öðru úr GT en hinu úr NT.

„Hinn frægi heimspekingur, Jürgen Habermas (1929-2026), […] sagði að Vesturlönd hefðu allan sinn siðagrunn úr Biblíunni. Hann tiltók tvö hugtök. Réttlætishugsun Gyðinga úr GT og kærleikskenningu Krists í NT. Habermas var yfirlýstur guðleysingi, en hann þekkti rætur sinnar menningar og gekkst við þeim.“

Þegar kemur að islam þá er allt annað uppi en aðgreining trúar og stjórnmála eða kirkju og ríkis eins og við segjum á Vesturlöndum. Í ríkjum islam er enginn aðskilnaður milli trúar og stjórnmála. Islam er nefnilega pólitísk hreyfing sem ræður öllu í lífi múslima.

Þess vegna óttast ég islam, en verð eftir sem áður að elska múslima, elska fólkið en ekki trú þess eða skoðanir, hvað þá öfgar þess og yfirgang.

Þetta er grundvallaratriði sem allt of margi flaska á og eins og sagði hér að framan þá virðist fólki á vinstri væng stjórnmálanna eiga erfiðara með að skilja þarna á milli en flestum öðrum sem ég hlusta á í samtímanum ef marka má tjáningu þess á samfélagsmiðlum og hneykslunartón.

Margir virðast vilja meinlausa presta án skoðana. Í ljósi þess leyfi ér mér að segja:

– að fylgja Kristi er dauðans alvara.

Ég fylgist vel með fjölmiðlum víða um heim og ég óttast áhrif islam í Evrópu og á Vesturlöndum. Zohran Mamdami, nýkjörinn borgarstjóri New York, er múslimi. Hann setti nýlega á fót nefnd til að ræða lögfræðileg mál borgarinnar. Nefndin er skipuð 18 lögfræðingum, en enginn gyðingur er þar í hópi, enda þótt helmingur allra lögfræðinga í borginn séu gyðingar! Gyðingahatur er útbreitt vandamál og hefur verið um aldir. Gyðingahatur er ótrúlega útbreitt á Íslandi, en ef menn hnjóða í islam, þá setja menn upp krippu og kvæsa sem argir kettir, en steinþegja um gyðingahatrið!

Islam hefur sótt að Evrópu um aldir. Þeir tóku Spán og réðu þar ríkjum lengi vel. Þeir sátu um Vínarborg undir lok 15. aldar, en umsátrinu var hrundið með her undir stjórn Jans III Sobieski frá Póllandi. Þá fögnuðu Vínarbúar og bökuðu brauð og fengu sér kaffi. Brauði var í formi hálfmána og heitir croissant á frönsku. Þau átu bókstaflega trúartákn múslima!

Þegar múslimar tóku Konstantínópel og þar með Kirkju hinnar heilögu visku – Hagia Sophia – þá drápur þeir munka og presta og nunnur líka. Kirkjunni var breytt í mosku og síðar í safn og svo aftur í mosku á okkar tímum, nánar tiltekið á valdatíma Erdogans sem enn ríkir í Tyrklandi og hefur sóst eftir því að komast með sína þjóð, sem telur 69 milljónir inn í Evrópusambandið. Ef það gerist þá verður Evrópa ekki til í núverandi mynd eftir stutta veru Tyrkja þar á bæ. Og gleymum ekki Tyrkjaráninu sem reyndar var framið af Alsírbúum, en þar voru múslimar á ferð. Þrælahald var við lýði um allan heim á þeim tíma. Vesturlönd keyptu sér þræla í Afríku þar sem þeirra eigið fólk seldi það fyrir fé. Sama gerðu múslimsku löndin. Þau keyptu fleiri þræla en Vesturlönd og yfir mun lengri tíma og meðal þræla þar í heimi voru konur í meirihluta. Þrælar sem voru drengir voru geldir á unga aldri, þannig að afkomendur þræla í heimi múslima finnast ekki lengur. Afkomendur þræla í Bandaríkjunumm og á Vesturlöndum skipta milljónum. Þetta eru mikilvægar staðreyndir.

Bretar eru nú farnir að súpa seyðið af linri afstöðu til islam. Þar í landi eru heilu borgirnar nánast á valdi islam. Sharia lög sem leyfa m.a. kúgun kvenna, sæmdardráp á konum ef þær verða skotnar í orginal bretum og koma þar með óorði á ætt sína – og svo mætti lengi telja. Ungir múslimar nauðga stúlkum í þúsundatali í Bretlandi. Einn ungur múslimi, nýkominn til landsins frá Pakistan að mig minnir, var leiddur fyrir rétt þar í landi vegna nauðgunar nýlega og sagði við dómarann að hann hefði ekki hafa haft hugmynd um að hann mætti ekki nauðga konum í Bretlandi!

Undir Frökkum er farið að hitna. Danir finan fyrir áhrifum islam og vandræðum sem fylgja múslimum og svo mætti lengi telja. Á Fésbókinni fékk ég þessi skilaboð:

“ […] þróunin í Svíþjóð er engu að síður athyglisverð. Um árið 2000 voru múslimar þar taldir um 250–300 þúsund, eða 3–4% þjóðarinnar. Árið 2010 voru þeir um 451 þúsund, 4,9%, og árið 2020 var hlutfallið komið í um 8%.

Það sem vekur ekki síður athygli er framhaldið. Múslimar í Evrópu eru að meðaltali mun yngri en aðrir íbúar og hafa verið með hærri fæðingartíðni. Pew hefur því áætlað að jafnvel þótt frekari innflytjendur múslima til Svíþjóðar stöðvuðust alveg gæti hlutfallið samt farið í um 11% árið 2050 vegna náttúrulegrar fjölgunar einnar saman.

Þetta er því ekki bara umræða um innflytjendur heldur líka lýðfræðilega þróun til lengri tíma.“

Islam á varla neitt erindi í kristnu samfélagi og því er það óskiljanlegt að fv. borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, og meirihlutinn sem hann stýrði, hafi veitt múslimum ókeypis lóð í sjálfu borgarhliði Reykjavíkur, þar sem stofnbrautirnar tvær, Reykjanesbraut og Vesturlandsvegur mætast við Elliðaárnar. Eina bestu lóð borgarinnar! Já, í sjálfu borgarhliði Reykjavíkur stendur til að reisa mosku í boði Borgarstjórnar!

Á sama tíma fékk Hjálpræðisherinn lóð á sama svæði, kristin hreyfing sem hóf starf sitt hér á landi árið 1895 – fyrir 131 ári!!! – og hefur án efa varið jafgildi milljörðum króna til líknarmála með óeigingjörnu starfi sínu. Herinn aflar tekna sinn með frjálsum framlögum og hefur á að skipa mannafla sem líklega hefur lítil laun. Herinn varð að borga fullt verð fyrir lóðina en trúfélög eru undanþegin slíkum lóðagjöldum skv. lögum. Ég veit að Herinn er ekki skráð trúfélag, en sagan vitnar um að hann hefur starfað hér sem ígildi kristins safnaðar og lagt ómælt kærleiksstarf að mörkum fyrir samfélag okkar. Auðvitað átti Hjálpræðisherinn að fá ókeypis lóð! Þetta er hneisa og skömm og ég kalla á sitjandi Borgarstjórn að endurkalla þetta leyfi enda hafa múslimar ekki enn leyst lóðina til sín. Forðið því í lengstu lög að moska verði það sem mætir öllum sem aka inn í höfuðborg Íslands, í kristnu ríki sem staðið hefur í yfir þúsund ár!!!

Ég endurtek að ég virði múslima sem manneskjur, en hef ekki sömu afstöðu til trúar þeirra eða kennisetninga. Og þar stendur hnífurinn í kúnni milli mín og þeirra sem eiga erfitt með að skilja á milli manna og skoðana, syndara og syndar, trúaðra af hvaða trú sem er og trúarkerfisins, sem á við í hverju tilfelli.

Lærum þessa lífsreglu og höfum hana í heiðri í daglegu lífi.

Sú leið, getur af sér minni slaufun, minni skautun, minni skömmun.

Að endingu er hér texti úr Fyrra Korintubréfi Páls postula 1. kafla:

Kristur, kraftur Guðs og speki

18 Því að orð krossins er heimska þeim er stefna í glötun en okkur sem hólpin verðum er það kraftur Guðs. 19 Ritað er:

Ég mun eyða speki spekinganna

og hyggindi hyggindamannanna mun ég að engu gera.


20 Hvar er vitringur? Hvar fræðimaður, orðkappi þessa heims? Er ekki það sem heimurinn telur speki heimska í augum Guðs?
21 Enda þótt speki Guðs sé í heiminum gátu mennirnir ekki þekkt Guð með sinni speki. Þess vegna ákvað Guð að boða það sem er heimska í augum manna og frelsa þá sem trúa. 22 Gyðingar heimta tákn og Grikkir leita að speki 23 en við prédikum Krist krossfestan, Gyðingum hneyksli og heiðingjum heimsku 24 en okkur sem Guð hefur kallað, bæði Gyðingum og Grikkjum, Krist, kraft Guðs og speki Guðs. 25 Því að heimska Guðs er mönnum vitrari og veikleiki Guðs mönnum sterkari.
26 Minnist þess, systkin,[ hvernig þið voruð þegar Guð kallaði ykkur: Mörg ykkar voru ekki vitur að manna dómi, ekki voldug eða ættstór. 27 En Guð hefur útvalið það sem heimurinn telur heimsku til að gera hinum vitru kinnroða og hið veika í heiminum til þess að gera hinu volduga kinnroða. 28 Og hið lítilmótlega í heiminum, það sem heimurinn telur einskis virði, hefur Guð útvalið til þess að gera að engu það sem er í metum. 29 Enginn maður skyldi hrósa sér fyrir Guði. 30 Honum er það að þakka að þið eruð í samfélagi við Krist Jesú. Hann er orðinn okkur vísdómur frá Guði, bæði réttlæti, helgun og endurlausn. 31 Eins og ritað er: „Sá sem vill hrósa sér hrósi sér í Drottni.“

Og ég segi nú bara Amen

sem merkir: Verði svo!

Posted on

Greinar og hugvekjur / Articles
Minningarorð / Funeral Sermons
Myndlist / Art
Prédikanir / Sermons