Örn Bárður Jónsson – and "BARD-art"

The beauty of Life – Social Issues – Justice – Truth // Fegurði lífsins – Þjóðfélagið – Réttlæti – Sannleikur

Greinar og hugvekjur / Articles

Minningarorð / Funeral Speeches

Myndlistin mín / My Art

Skissað # 15 í Varsjá – 14 myndir á viku!

Náði mér í nýjar skissubækur á Netinu og Tombow penna sem eru skemmtilegir til að byrja skissur með, leggja grunn og skilgreina form. Síðan má halda áfram og lita með samskonar pennum eða beita vatnslitum. Hér eru nokkrar skissur gerðar með þessari aðferð.

Esjan eftir minni enda komin í mig heimþrá!
Kvöld við höfnina
Lóla var í pössum hjá Össa og Miriam og sat fyrir
Ímynduð hús í Varsjá
í miðborg Varsjár
Fólk á næsta borði í Fabrik sem er til húsa í gömlum verksmiðjum sem breytt hefur verið í mannlífstorg og arkitektar hlotið verðlaun fyrir
Tvö hús mér kær á Ísafirði – fæðingarstaður minn,
Sólgata 8 þar sem ég ólst upp til unglingsára
og svo nýja kirkjan við Sólgötu 1
Lét önnur hús liggja á milli hluta til að skerpa þessi tvö
Skáldað fjall heima og sumarbirtan einstaka
Jordan Peterson – hlustaði á hann í viðtali þar sem hann rökræddi
við harðan feminista og þau bæði frábær
Hann er orðinn heilsulaus eftir sinn harða sprett á liðnum árum
í öllum heimsálfum þar sem hann hefur rökrætt mannlífið
út frá sinni fræðigrein, sálfræðinni
Gangi honum vel að ná sér
Borgarferð í Varsjá
Kirkja Heil. Theresu þar sem enskumælandi messur safnaðar Heil. Páls eru haldnar en fjöldi útlendinga í borginni fyllir kirkjuna hverju sinni
Kór kirkjunnar með sínu steinda gleri og tveimur ölturum
Prestur frá Afríku stýrði messunni og gerði það fagulega
Kirkjan er eitt mesta undur heimsins
Fólk frá öllum heimsálfum í messu, marglitt og merkilegt
Kirkjan safnar öllum saman

Posted on

Greinar og hugvekjur / Articles
Minningarorð / Funeral Sermons
Myndlist / Art
Prédikanir / Sermons