
Viltu hlusta á upplestur? Smelltu þá á upptökuna:
Ég er um þessar mundir að lesa Lúkasarguðspjall, Bréf Páls til Rómverja og Davíðssálma. Ég læt millifyrirsagnir stýra lengd textanna.
Í dag 24. júni 2026 urðu þessir textar á lesvegi mínum:
Lúkas 6.37-42
Dæmið ekki
37 Dæmið ekki og þér munuð eigi verða dæmd. Sakfellið eigi og þér munuð eigi verða sakfelld. Fyrirgefið öðrum og Guð mun fyrirgefa yður. 38 Gefið og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar. Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða.“
39 Þá sagði Jesús þeim og líkingu: „Hvort fær blindur leitt blindan? Munu ekki báðir falla í gryfju? 40 Ekki er lærisveinn meistaranum fremri en hver sem er fullnuma verður eins og meistari hans. 41 Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? 42 Hvernig færð þú sagt við bróður þinn: Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér, en sérð ekki bjálkann í þínu auga? Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.
Þá fletti ég upp í 2. kafla Rómverjabréfs vers 1-16 –
Réttlátur dómur Guðs
1 Því hefur þú, maður, sem dæmir, enga afsökun hver sem þú ert. Um leið og þú dæmir annan dæmir þú sjálfan þig því að þú, sem dæmir, fremur hið sama. 2 Við vitum að Guð dæmir þá með réttu sem slíkt fremja. 3 Hyggur þú, maður, sem dæmir þá er þvílíkt fremja og gerir sjálfur hið sama, að þú munir umflýja dóm Guðs? 4 Eða forsmáir þú hans miklu gæsku, þolinmæði hans og biðlund og lætur þér ekki skiljast að gæska Guðs vill leiða þig til afturhvarfs? 5 En þverúð þín og fráhvarf hjartans frá Guði safnar að sjálfum þér reiði sem mætir þér á degi reiðinnar þegar Guð birtir réttlátan dóm sinn. 6 Hann mun gjalda sérhverjum eftir verkum hans, 7 þeim eilíft líf sem leita vegsemdar, heiðurs og ódauðleika með staðfestu sinni í góðri breytni 8 en reiði og óvild hinum sem stjórnast af eigingirni, óhlýðnast sannleikanum en þjóna ranglætinu. 9 Þrenging og angist kemur yfir sérhverja mannssál er illt fremur, yfir Gyðinginn fyrst en einnig alla aðra. 10 En vegsemd, heiður og frið hlýtur hver sá er gerir hið góða, Gyðingurinn fyrst en Grikkinn líka. 11 Því að Guð mismunar ekki mönnum.
12 Allir, sem syndgað hafa án þess að þekkja lögmál, munu og tortímast án lögmáls og allir, sem syndgað hafa þótt þeir þekki lögmál, munu dæmast eftir lögmáli. 13 Ekki munu menn réttlætast fyrir Guði með því að hlýða á lögmálið heldur verða þeir réttlættir sem breyta eftir því. 14 Þegar heiðingjar, sem þekkja ekki lögmál Móse, gera það eftir eðlisboði sem lögmál Guðs býður, þá eru þeir sjálfum sér lögmál þótt þeir hafi ekki neitt lögmál. 15 Þeir sýna að krafa lögmálsins er skráð í hjörtum þeirra með því að samviska þeirra ber þessu vitni og hugrenningar þeirra sem ýmist ásaka þá eða afsaka. 16 Þetta verður á þeim degi er Guð dæmir hið dulda hjá mönnunum samkvæmt fagnaðarerindi mínu sem ég hef þegið af Jesú Kristi.
Loks var það 6. Davíðssálmur –
1 Til söngstjórans. Með strengjaleik á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur.[
2Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni,
tyfta mig ekki í heift þinni.
3Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota,
lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta.
4Sál mín er skelfingu lostin,
Drottinn, hversu lengi?
5Snú þú aftur, Drottinn, bjarga lífi mínu,
hjálpa mér sakir elsku þinnar.
6Þar sem enginn minnist þín í dánarheimum,
hver lofar þig þá í helju?
7Ég er úrvinda af andvörpum mínum,
lauga rekkju mína tárum hverja nótt,
væti hvílu mína táraflóði.
8Augu mín eru döpur af harmi,
sljó vegna allra óvina minna.
9Víkið frá mér, allir illvirkjar,
því að Drottinn hefur heyrt grát minn,
10Drottinn hefur hlustað á ákall mitt,
Drottinn hefur bænheyrt mig.
11Allir fjandmenn mínir verða til skammar og skelfast,
hraða sér sneyptir burt.
Orð mín um þessa lestra:
Athygli vekur hvað þessir textar úr þremur ritum eftir ólíka höfunda eru í raun samhljóða, orð Jesú, orð Páls og orðin úr lofgjörðarsafni Gyðinga.
svo eru á upptökunni lokaorð sem ég bætti við af munni fram eins og sagt er.
You must be logged in to post a comment.